02.06.1960
Efri deild: 92. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3189 í B-deild Alþingistíðinda. (1552)

121. mál, vitabyggingar

Frsm. (Jón Árnason):

Herra forseti. Sjútvn. hefur haft mál þetta til athugunar og rætt það á fundi sínum í gær, en þá hafði hún kynnt sér umsögn vitamálastjóra um frv., en hann hafði fengið málið til umsagnar. Mælir vitamálastjóri með frv., eins og það liggur fyrir til afgreiðslu nú, eftir að frá því var horfið, sem upphaflega var í frv., að vitinn yrði einnig hljóðviti. Eru taldir margir annmarkar á þeirri framkvæmd, og slíkur viti yrði einnig mjög dýr í rekstri.

Sjútvn. hefur því samþ. einróma að leggja til, að frv. verði samþ. svo sem það liggur hér fyrir til afgreiðslu.