27.05.1960
Neðri deild: 89. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3247 í B-deild Alþingistíðinda. (1579)

153. mál, dragnótaveiðar í fiskveiðilandhelgi

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti. Mér þykir rétt í þessum umr. að segja hér örfá orð, þar sem aðrir nm. í hv. sjútvn. þessarar d. hafa látið til sín heyra í sambandi við það frv., sem hér liggur fyrir og er nú til 2. umr.

Það er vissulega rétt, að það mál, sem hér er til umr., er mjög vandasamt mál. Saga þess kennir þeim, sem fjalla um málið nú, að það ber vissulega að hafa gát á. Frá mínu sjónarmiði við samningu þessa frv. reyndi ég að gera mér grein fyrir því, á hvern hátt hægt yrði að leysa þetta mál þannig, að þau sjónarmið, sem þar rákust á, yrðu sem bezt samræmd í þessu frv., eins og mögulegt væri. Þau orð, sem komið hafa hér fram hjá hv. 2. þm. Norðurl. v. (JPálm), eru vissulega orð, sem okkur yngri mönnunum er rétt að athuga og staldra við og taka til greina. Það þarf ekki annað en líta í þá grg., sem fylgdi því frv., sem sú nefnd samdi, sem sjútvmrh. skipaði, og líta þar á örlítinn kafla til að sjá, hvernig saga þessa máls raunverulega er. Hitt er svo annað mál, hvort við eigum ekki að læra af reynslunni, og þegar nú málið er tekið til endurskoðunar og athugunar á ný, þá sé hins vegar ekki þannig litið á það, að ekki verði hægt að þoka því, sem komið er, heldur hitt, að reynslan verði tekin til lærdóms og framgangur þess máls þannig hafður, að slíkir hlutir endurtaki sig ekki sem áður höfðu gerzt.

Það má segja, að dragnótaveiði hafi ekki verið hér við land að mestu leyti allt frá því 1952. Nú er svo komið, að þeir sérfræðingar, sem um þessi mál fjölluðu á þeim tíma, þegar lokað var fyrir dragnótaveiði, hafa bent á það og lagt til, að opnað yrði fyrir dragnótaveiðina, og fært fyrir því rök, sem ýmsir telja svo veigamikil, að rétt sé að fara eftir því. Þegar þetta mál var til afgreiðslu í sjútvn., voru þar uppi sjónarmið með opnuninni svo og þau sjónarmið, sem töldu opnun varhugaverða, en vildu þó ekki leggja stein í götu hennar. Þess vegna varð þetta frv. til sem samkomulagsatriði, og við nm. töldum okkur vera að reyna að vinna að þessu máli á þann hátt, að hægt yrði að mynda um það samstöðu og jafnframt þeir varnaglar settir í frv., sem segja má að fyrirbyggi, að þeir hlutir geti komið fyrir, sem áður höfðu gerzt í sambandi við dragnótaveiðar hér við land.

Á þeim fundum, sem n. ræddi þetta mál, voru tekin fyrir álit ýmissa aðila. Þau sögðu sitt hvað, mæltu með og móti, og má segja, að n. hafi reynt að fara bil beggja í því, án þess þó að því atriði, sem mest er um vert, þ.e.a.s. vernd fiskistofnsins, yrði stefnt í nokkurn voða. Frumkvæðið til opnunar landhelginnar til dragnótaveiði má segja að sé í höndum þeirra vísindastofnana, sem allar ríkisstj. undanfarið hafa leitað til í sambandi við það mikilvæga utanríkismál, landhelgismálið okkar, og verð ég að segja, að ég treysti þeim til að hafa þær gætur á í þessu máli, sem þarf til þess að fyrirbyggja niðurstöðu, sem áður hafði komið í þessu máli. Þó ber þessum aðilum að hafa samráð og leita álits þeirra aðila, sem hagsmuna hafa að gæta á þeim veiðisvæðum, sem hugsað er að opna, áður en veiðisvæðin eru opnuð. Ég get sagt það hér, að afstaða mín byggðist fyrst og fremst á því, að þessir sérfræðingar töldu þetta rétt, og það fékkst samkomulag um það í n. að flytja frv. með þessum takmörkunum, sem raun er á.

Ég tel ekki ástæðu til að orðlengja þetta meira hér. Ég vildi aðeins lýsa þessari skoðun minni og taka undir þau orð, sem aðrir nm. hafa sagt hér, að þetta frv. er flutt sem samkomulagsfrv. til þess að reyna að finna lausn á því vandasama deilumáli, sem hér er um að ræða, þó þannig, að það geti orðið allri þjóðinni til heilla í framtíðinni og við gætum um leið hagnýtt okkur þann fiskafla, sem við strendur þessa lands er.