30.05.1960
Neðri deild: 91. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3262 í B-deild Alþingistíðinda. (1590)
153. mál, dragnótaveiðar í fiskveiðilandhelgi
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Eins og ég gat um, heyrðu lögin um bann gagn dragnótaveiðum ekki undir mig samkv. úrskurðinum, sem upp var kveðinn, og ég sé í sjálfu sér ekki, að það sé nein eðlisbreyt. við þá löggjöf, sem nú er, frá því, sem verið hefur. Dragnótaveiðarnar hafa tilheyrt sjútvmrn., og stærð lögsögunnar er allt annað mál en það, hvernig við hagnýtum okkur þá lögsögu, sem við höfum áskilið okkur. Það er auðvitað sjálfsagt, að um þetta verði haft samráð milli ráðh., eins og hlýtur að verða innan hverrar samstarfshæfrar ríkisstj., og efast ég ekki um, að svo verði. En það er ekkert í þessu máli, sem gerir það að verkum, að ég telji nú frekar en áður nauðsyn að leggja meiri hluta sjútvmrn. en upphaflega var lagður undir mig af þessum sökum.