31.05.1960
Efri deild: 88. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3263 í B-deild Alþingistíðinda. (1596)

153. mál, dragnótaveiðar í fiskveiðilandhelgi

Jón Árnason:

Herra forseti. Frv. til l. um takmarkað leyfi til dragnótaveiða í fiskveiðilandhelgi Íslands undir vísindalegu eftirliti, eins og það er orðað, var þegar á öndverðu yfirstandandi þingi flutt af nokkrum hv. alþm. Nd. Er það samhljóða frv., sem flutt var á vetrarþinginu 1958–59, en náði þá ekki fram að ganga og var vísað frá með miklum meiri hl. atkv. Sjútvn. hv. Nd. afgreiddi málið að þessu sinni með því að flytja nýtt frv., sem að nokkru er frábrugðið hinu fyrra. Er nú tekið inn í frv. ákvæði um eins konar neitunarvald til handa einstökum sveitarstjórnum, samtökum útvegsmanna og sjómanna, og geta þessir aðilar sent mótmæli gegn því, að ákveðin veiðisvæði verði opnuð fyrir dragnótinni. Má segja, að nokkur vörn sé með ákvæði þessu fyrir þá staði, sem ekki óska eftir, að þessum skaðræðisveiðarfærum verði beitt á fiskimiðum, sem næst liggja, með þeim afleiðingum, sem þekktar eru af fyrri reynslu.

Þau fskj., sem frv. fylgja, eru glögg dæmi þess, hvernig komið var. Fiskistofnarnir voru að ganga til þurrðar, það var sýnilegt, að þeir þoldu ekki veiðarfærið, og því var horfið að því að banna með öllu dragnótaveiðar.

Það hefur um langan tíma verið ágreinings mál Íslendinga, hvort leyfðar skyldu í íslenzkri landhelgi veiðar með dragnót eða ekki. Það hefur oltið á ýmsu með mál þetta hér á hv. Alþ., og nú, eins og oft áður, er leitað ýmislegra raka, sem flm. telja málinu til stuðnings. Það eru höfuðrök þeirra manna, sem nú vilja heimila, að landgrunnið umhverfis landið, hrygningarsvæðin og uppeldisstöðvarnar, verði vettvangur hinna skaðlegustu veiðarfæra fyrir ungfiskinn, sem þjóð vor á svo mikið undir að nái fullum þroska, að vísindamenn þjóðarinnar á sviði fiskirannsókna hafi gengið í lið með þeim og telja nú, að fiskimiðin umhverfis landið verði ekki fullnýtt, nema dragnótin komi til. Þá er á það bent, að þetta sé mikið hagsmunamál fyrir fiskiðju og mikil atvinna muni skapast við hagnýtingu á hinu mikla flatfisksmagni, sem nú syndir umhverfis landið og bíður þess eins að verða fullþroska og synda síðan rakleitt í veiðarfæri Bretanna utan 12 mílna markanna, eins og þeir hafa bent á. Á þessa leið voru m.a. rök flm. í hv. Nd., þegar málið var þar til umr.

Mér finnst það vera nokkuð mikil blinda og oftraust á fáfræði almennings að ætla að telja fólki trú um, að Íslendingar séu ekki þess umkomnir, rétt eins og hver önnur þjóð, að ná sínum skerf af fiskinum, þótt utan 12 mílnanna sé. Það er viðurkennt, enda bera skýrslur það með sér, að íslenzku togararnir eru að miklum mun hærri hvað aflamagn snertir en þekkzt hefur með öðrum þjóðum, sem hér stunda veiðar.

Ég hafði ekki ætlað mér að flytja langt mál um dragnótaveiðarnar og áhrif þeirra að þessu sinni. Má vera, að tilefni gefist frekar við 2. umr. um málið, ef það nær svo langt í þessari hv. d. En það skulum við hafa hugfast, að á undanförnum árum, þegar þjóð vor hefur sótt fram af einurð og festu til þess að helga sér í æ ríkari mæli þau auðæfi, sem í hafinu búa umhverfis landið, þá hafa það verið okkar þyngstu rök, að botnvarpan og hliðstæð veiðarfæri tortímdu ungviðinu og eyðilegðu hrygningarstöðvarnar. Það er af öllum viðurkennt, sem til þekkja, að engin veiðarfæri séu ungfiskinum jafnskaðleg og dragnótin og trollið, og er þar ekki mikill munur á, enda segja fiskifræðingar um þetta í umsögn sinni um dragnótaveiðarnar, að af rannsóknum undanfarinna ára sé vitað, að dragnót hlífir heldur betur ungviðinu en botnvarpan að öllu öðru jöfnu, en ekki er munurinn mikill.

Einn fiskifræðinganna telur, að dragnótaveiðar eigi að vera lyftistöng fyrir smábátaútgerð. Í þessu tilfelli má eflaust segja, að eins dauði sé annars líf, og það er nokkurn veginn víst, að verði dragnótaveiðin leyfð á ný, þá muni fljótlega þyngja undir fæti hjá öllum þeim, sem nú stunda veiðar á smæstu bátunum, þ.e. trillubátunum. Í skjóli þeirrar friðunar, sem á undanförnum árum hefur átt sér stað á grunnmiðum við landið, hefur fiskistofninn farið jafnt og þétt vaxandi. Afkoma útgerðar og sjómanna hefur batnað, og mikill fjöldi einstaklinga í bæjum og í þorpum allt í kringum landið hefur í þeirri trú, að sú mundi þróunin verða í framtíðinni, ráðizt í það að byggja sér smábáta, sem að vísu kosta mikið fé, en geta að óbreyttu veitt þeim mikilvægt atvinnuöryggi. Dragnótaveiðarnar geta aldrei orðið þessum unga atvinnuvegi lyftistöng, og það mun sýna sig, að nú eins og fyrr muni dragnótin, ef leyfð verður, ekki aðeins ná til flatfisksins, sem henni er þó fyrst og fremst ætlað, heldur mun eyðileggingin verða áhrifaríkust í að tortíma hvers kyns öðrum fiskistofnum, sem nú alast upp á hinum fengsælu uppeldisstöðvum og þjóðin á allt líf sitt undir að haldi áfram að vaxa og hagnýtast á eðlilegan hátt, en verði ekki slíku drápsveiðarfæri að bráð.