02.06.1960
Efri deild: 92. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3274 í B-deild Alþingistíðinda. (1602)

153. mál, dragnótaveiðar í fiskveiðilandhelgi

Björn Jónsson:

Herra forseti. Ég mun ekki lengja mjög þessar umræður, en kemst þó ekki hjá því að gera nokkra grein fyrir afstöðu minni í þessu máli.

Ég vil þá fyrst taka það fram, að óhæfilega skammur tími hefur verið til stefnu fyrir sjútvn. til athugunar á málinu og svo skammur, að jafnvel þótt einhverjir nm. hefðu viljað flytja við það brtt., er bókstaflega ekkert ráðrúm til þess að gera það með þeim undirbúningi, sem nauðsynlegur væri. Ekki hefur heldur verið tími til að kalla neina kunnáttumenn um útveg eða fiskifræði til viðtals við n. um slíkar hugsanlegar breyt. á þessu frv. eða til þess að afla svara og gagna um atriði, sem máli skipta.

Ég álít, að það sé í rauninni óréttmætt að ætlast til þess, að nokkur ábyrg þn. geti með góðri samvizku afgreitt slíkt stórmál sem þetta er á rúmum sólarhring, jafnvel þó að önnur nefnd hafi fjallað um það mánuðum saman annars staðar. Eðlilegt hefði því verið, úr því að það tók hv. Nd. því nær allan þingtímann í vetur og sumar að fjalla um málið, að það hefði verið látið daga þegjandi og hljóðalaust uppi á þessu þingi. En nú hefur hins vegar af einhverjum þeim máttarvöldum, sem ráða hér þingstörfum, verið ákveðið, að málið skuli afgreitt með einhverjum hætti fyrir þingslit, enda þótt enginn tími sé til fullnægjandi athugunar á því nema fyrir aðra deild þingsins. Breytingar á frv. koma því tæpast til greina nú, og því er aðeins um það að ræða að taka afstöðu til frv. eins og það liggur nú fyrir, með eða móti. Andstaða við þetta frv. hér og nú þarf því ekki endilega að vera tjáning á því trúaratriði sumra manna, að það veiðarfæri, dragnót, skuli aldrei og hvergi notað á grunnmiðum við landið, og er ég þó ekki að lá neinum, þótt hann sé haldinn slíkri trú, svo ill sem reynslan hefur orðið af þessu veiðarfæri. Andstaða nú gegn frv. getur allt eins stafað af því, að mönnum þyki ekki nægilega vel um hnútana búið til þess, að öruggt verði talið, að ekkert skaðræði í líkingu við það, sem orðið hefur og mörgum er ekki úr minni liðið, geti á ný orðið að veruleika.

Þeir, sem áhuga hafa á þessu máli nú, segja í fyrsta lagi: Okkur vantar verkefni á sumrum fyrir dekkbáta, sem eru undir 35 tonnum og því of smáir fyrir síldveiðar. Í öðru lagi segja þeir, að kolastofninn þoli mikla veiði umfram það, sem nú er, án þess að högg sjáist á vatni. Í þriðja lagi, að dragnótin sé eina veiðarfærið, sem hentugt geti talizt fyrir kolaveiðar. Og í fjórða lagi, sem ekki er minnst gert úr, að vísindamennirnir mæli með því, að dragnótin sé leyfð.

Vissulega er hægt að taka undir það, að þetta eru að miklu leyti rétt rök og mikilsverð. En ég fyrir mitt leyti tel, að þau séu samt ekki nægileg til þess að setja löggjöf, sem getur opnað allt grunnsvæðið við strendur landsins fyrir dragnótaveiðum, án þess að viðhafður sé sá háttur að þreifa sig áfram með ýtrustu varfærni, fyrst t.d. á mjög takmörkuðu eða takmörkuðum svæðum undir nákvæmu eftirliti vísindamanna og auka þá fyrst við veiðisvæðin, þegar alveg óyggjandi er, að ekkert tjón verði af.

Það, sem mér finnst einkum skorta á, að rök þeirra, sem vilja samþ. þetta frv. nú með óeðlilegum hraða, séu nægjanleg, er einkanlega þetta:

Í fyrsta lagi, að ekki liggja fyrir, a.m.k. svo að mér sé kunnugt, neinar óyggjandi vísindalegar álitsgerðir um áhrif slíkrar botnsköfunar sem dragnótin er á sjávargróður og hver áhrif eyðilegging hans hefur á lífsskilyrði hinna ýmsu tegunda ungfisks og þar með á magn fiskistofnanna yfirleitt, ekki aðeins á kola og ýsu, en þær álitsgerðir, sem ég hef séð viðkomandi þessu frv., fjalla einvörðungu um þessar fisktegundir. Það mun vera talið, að eitt „hal“, sem kallað er, dragnótar, skafi svæði, sem tekur yfir um 3 ha. af sjávarbotni, og rífur þar upp gróður, sem trúlega styður að lífsskilyrðum ungfisks, og má nokkuð af þessu marka, að þetta veiðarfæri er ekki lítilvirkt. Blýteinn dragnótarinnar leggst fast að botni, og ekkert kvikt kemst undan annað en það, sem sleppur í gegnum möskva. Með þeirri möskvastærð, sem hér var leyfileg, áður en dragnótin var með öllu bönnuð, þótti það ekki svo slæmt á snurvoðarbátum, ef ¼ af því, sem fékkst úr hverju „hali“, var hirðandi fiskur, en margföldu magni við það, sem hirt var, var iðulega hent útbyrðis. Ekkert liggur fyrir um það í þessu frv., hver möskvastærð á að vera. Það á aðeins að vera reglugerðarákvæði eins og áður, og yrðu trúlega ekki stórbreytingar þar á. En þó mun það vera samdóma álit kunnugra og m.a. vísindamanna eins og Árna Friðrikssonar, að nauðsynlegt sé að auka möskvastærðina, en ekkert liggur fyrir um það í þessu frv. Það má vel vera, að hér í hv. d. séu einhverjir þeir menn, sem kunna svo góð skil á öllum afleiðingum botnsköfunar á sjávarlífið, á fiskistofnana og fiskigöngurnar, að þeir séu þess albúnir í krafti þekkingar sinnar að fullyrða, hvað nærri megi ganga að skaðlausu, en því miður er ég ekki á meðal þeirra.

Í öðru lagi tel ég, að verulega skorti á, að þær takmarkanir, sem frv. gerir ráð fyrir, séu fullnægjandi trygging gegn ofveiði og spilli ekki öðrum veiðum. En vísindamennirnir, segja menn, er atvinnudeildinni og Fiskifélaginu virkilega ekki trúandi fyrir því að gera aðvart í tíma, ef út af ber? Ég vil ekki gera lítið úr fiskifræðingum okkar. Við eigum marga og merka vísindamenn í þeim greinum, og þjóðin bindur miklar vonir við árangur af starfi þeirra. En er aðstaða þeirra slík, að fullyrða megi, að þeir geti haft fullkomna yfirsýn yfir afleiðingar slíkra veiða á öllu svæðinu í kringum landið, eins og hér er ráðgert? Ég dreg það í efa. Ég hef líka fyrir mér það álit manna, sem ég veit að kunna nokkur skil á störfum þessara ágætu vísindamanna, að enn sem komið sé hafi störf þeirra fyrst og fremst beinzt að veiðum og fiskigöngum og sjávarlífi á djúpmiðum, en grunnsævið upp við strendurnar og þýðing þess fyrir fiskveiðarnar væri miklu minna rannsakað. Þessi fræðigrein er tiltölulega ung hérlendis. Hún hefur haft allt of fáum mönnum á að skipa, ónógum tækjum og aðstöðu, og það er því sízt nokkurt vanmat, þó að það sé sagt, sem flestum er ljóst, að margar ályktanir þeirra, ef ekki flestar, á sumum sviðum eru enn sem komið er mörgum vafa og efa blandnar. Það er svo heldur ekkert að undra, þó að nú rifjist upp fyrir mönnum, að dragnótaveiðar hafa áður, t.d. eftir 1937 og þau lög, sem þá voru sett, verið stundaðar við alveg sérstaklega illa reynslu þrátt fyrir meðmæli vísindamannanna, þrátt fyrir jafneindregin meðmæli þeirra og þeir veita þessu frv. nú.

En er þá ekki full trygging í ákvæðum 1. gr., um áhrifavald sveitarstjórna og annarra óákveðinna aðila, sem hagsmuna hafa að gæta um opnun veiðisvæða eða hluta úr veiðisvæðum? Þessi ákvæði eru nú, eins og greinin er, slíkur hrærigrautur algerlega óskilgreindra hugtaka, að mér er óskiljanlegt, hvernig hún verður í framkvæmd. Þar segir, að áður en gerðar séu till. um opnun einstakra veiðisvæða, skuli Fiskifélag Íslands leita álits sveitarstjórna og annarra aðila, sem hagsmuna hafa að gæta á viðkomandi veiðisvæði. Berist slíkar álitsgerðir, skuli ráðherra óheimilt að opna veiðisvæði eða hluta þess, nema álitsgerðirnar styðji almennt þá framkvæmd. Ég dreg mjög í efa, að þeim hugvitsmönnum, sem þessa þvælu hafa samið, hafi komið til hugar, hvað þetta merkir í framkvæmd. Hverjir eru þeir aðilar, aðrir en sveitarstjórnir t.d., sem hagsmuna hafa að gæta og taka á tillit til? Eru það aðeins útvegsmenn? Hvað um félög sjómanna og verkafólks, sem eru ekki nefnd í þessu sambandi, en í öðru sambandi í næstu málsgr. á eftir? Hvað t.d. um félög sjómanna og verkafólks? Er það ekki ærið teygjanlegt, hvar takmörkin eru á því, hverjir hafi hagsmuna að gæta í sambandi við útveginn og í sambandi við þessar veiðar? Hvar á að setja mörkin? Engar nánar skýringar hef ég heyrt á því. Hvað er veiðisvæði? Er það hver fjörður eða flói fyrir sig, eða er um miklu meiri víðáttur að ræða? Á t.d. að skipta grunnsævinu niður í 4 eða 5 veiðisvæði eða jafnvel enn færri? Engin skýring er á því, og skiptir það þó ekki litlu máli. Hvað merkir það, að álitsgerðir hinna óskilgreindu aðila styðji almennt opnun veiðisvæðis? Engin skýring er á því. Ef t.d. Eyjafjörður væri talinn sérstakt veiðisvæði og við skyldum segja að sýslunefndir Suður-Þingeyinga og Eyfirðinga væru meðmæltar opnun, en t.d. Akureyrarbær á móti eða bæjarstjórnin þar, hver væri þá hin almenna skoðun, sem ráðherra ætti að fara eftir um opnun veiðisvæðis þess, sem þarna væri um að ræða? Ég held, að því fari mjög fjarri, að gr. gefi nokkra skilgreiningu á því.

Ég held, að úr framkvæmd fyrstu greinanna hlyti að verða algert öngþveiti, svo mjög sem um þetta yrði deilt, að eina færa leiðin yrði úrskurðarvald ráðherra, sem þá hlyti að fara fyrst og fremst eftir áliti fiskifræðinganna, og yrði þá næsta lítið eftir af hinum almenna ákvörðunarrétti. Mér sýnist líka, að hvergi nærri sé loku skotið fyrir það, að dragnótaveiðum sé þröngvað inn á viss veiðisvæði þrátt fyrir mótmæli íbúa þeirra byggðarlaga, sem að því liggja. Ef t.d. miðin fyrir Norðurlandi væru eitt veiðisvæði, yrði það auðvitað að teljast almennt álit íbúa þessa landshluta, að leyfa ætti dragnótaveiðarnar, enda þótt t.d. íbúarnir við Skjálfandaflóa eða aðra firði norðanlands væru því mótmæltir. Að minnsta kosti taka ákvæði 1. gr. engan vafa af um þetta.

Þetta sýnir m.a. greinilega, hvað þetta frv. er illa gert að þessu leyti, og hefur mér reyndar ekki sýnzt örgrannt um, að sumir áhugamenn um þetta frv. hafi sjálfir kímt að þessum furðulega samsetningi, þessum samsetningi, sem hv. 5. þm. Vestf. (BF) mun eiga höfundarlaunin að, ef dæma má eftir frásögn Alþýðublaðsins.

Ef vilji almennings á einhverju að ráða í þessu máli, sem verið er að reyna að gefa í skyn, a.m.k. með ákvæðum 1. gr., þá verður auðvitað að setja skýr og óvefengjanleg ákvæði um, hvernig það megi verða, en ekki einhverja orðafroðu, sem engin haldfesta er í. Verði niðurstaðan sú, að veiðar séu ýmist leyfðar eða bannaðar á miklum fjölda veiðisvæða umhverfis landið aftur á móti, þykir mér líka sýnt, að mikið misræmi og erfitt viðureignar skapist. Þannig gætu þá t.d. bátar, sem gerðir væru út frá bönnuðu veiðisvæði, t.d. skammt frá mörkum bannaðs og leyfðs svæðis, óhindraðir sótt yfir mörkin, og þannig hlyti þungi veiðarinnar og afleiðingar hennar að leggjast tvöfaldur eða margfaldur á einstök leyfð svæði við hlið þeirra bönnuðu, því að ekki mundi þykja fært að binda veiðileyfi á opnum veiðisvæðum aðeins við báta, sem þaðan eru gerðir út. Það mundi algerlega stríða á móti öllum fornum og nýjum erfðavenjum um sjósókn. Enn kemur það svo til, sem fram kemur greinilega í álitsgerð landhelgisgæzlunnar, að gæzla með stærri togbátum yrði óframkvæmanleg með nokkru öryggi, eftir að e.t.v. hundruðum smærri báta yrði leyft að stunda dragnótaveiðar upp að landsteinum, og aukin freisting mundi að sjálfsögðu skapast fyrir togbátana til þess að brjóta landhelgisreglugerðina.

Margs konar önnur vandkvæði fleiri en ég hef nefnt mundu skapast við framkvæmd þessara laga, eins og þau nú eru, en sumra þeirra hefur verið getið af öðrum ræðumönnum hér á undan mér. En loks er svo það að nefna, sem þó er kannske aukaatriði, að öll framkvæmdin mundi valda heiftarlegum illdeilum milli manna, milli hagsmunahópa og jafnvel milli byggðarlaga. En aðalatriði málsins er þó þetta: Annars vegar eru misjafnlega vel rökstuddar fullyrðingar um, að enginn skaði sé skeður, þótt dragnót verði leyfð, eins og frv. gerir ráð fyrir, og vonin um að geta aukið framleiðsluna með þeim hætti. Hins vegar er sárbitur reynsla af skaðsemi þessara veiða, — reynsla, sem áreiðanlega enginn óskar eftir að reyna öðru sinni og hvetur til meiri varfærni en hér á að viðhafa. Við höfum síðustu árin í skjóli friðunar verið að síauka smáútgerðina, trilluútveg og minnstu dekkbáta, og þau sjávarþorp eru nú orðin mörg, sem byggja afkomu sína að miklu leyti og sum að öllu leyti á þessum atvinnuvegi, og arðsemi þessa atvinnuvegar, bæði fyrir einstaklingana og þjóðfélagið í heild, hefur farið vaxandi. Ég held, að það væri glapræði að ætla sér að grípa skyndigróða af dragnótaveiðum, ef það yrði á kostnað þessara þýðingarmiklu atvinnu- og framleiðslugreina.

Það má vel vera, að ég og ýmsir aðrir, sem erum andsnúnir þessu frv., séum of ragir við að leyfa þessar veiðar. En þar má segja, að við vitum, hvað við höfum, en ekki, hvað við vinnum á móti, og ekki, hverju við kunnum að tapa. Þess vegna held ég, að ýtrasta varfærni eigi rétt á sér. Allir viðurkenna, að ég held, að dragnótin hafi reynzt og sé í rauninni skaðræðisveiðarfæri. Skoðanamunur er ekki ýkjamikill um það, heldur hitt, hvort það sé samt ekki verjandi, þar sem ekkert annað verulega hentugt veiðarfæri sé til til þess að veiða flatfiskinn. Ágreiningur er aðallega um það, hve mikil varfærnin þyrfti að vera. Auðvitað væri æskilegast, að tækni okkar reyndist þess megnug að skapa eitthvert nýtt veiðarfæri eða endurbætur annarra, sem gætu með góðum árangri náð botnfiski án þeirrar skaðsemi sem dragnótinni er samfara, og þykir mér raunar ekki ósennilegt, að hún reynist þess megnug fyrr eða síðar. En meðan svo er ekki, má segja, að ekki sé nema eðlilegt, að litið sé til dragnótarinnar og hún verði reynd með miklum takmörkunum og undir ströngu eftirliti um allar afleiðingar.

Ég tel, eins og ég áður sagði, að takmarkanirnar, meðan verið er að þreifa sig áfram, séu ekki nægilegar í þessu frv. og ekki heldur séð fyrir nægu vísindalegu eftirliti. Þess vegna get ég ekki samþykkt þetta frv., eins og það nú er. Of margt er mjög óljóst um framkvæmdina til þess. Ég hefði talið réttara og raunar vel athugandi að leyfa nú, t.d. um 1–2 ára skeið, dragnótaveiðar á fyrir fram alveg ákveðnu og takmörkuðu svæði, þar sem almenningur og allir, sem hagsmuna hafa að gæta, væru sammála um að veita slíkt leyfi. Vísindamenn okkar fylgdust síðan nákvæmlega með veiðunum og afleiðingum þeirra. Ef slík takmörkuð tilraun gæfi góða raun, mætti svo smám saman slaka á, slaka til á hömlum, eftir því sem óyggjandi niðurstöður kynnu að sanna að gera mætti öllum að skaðlausu, sem menn tækju almennt góðar og gildar. Þetta frv. gengur ekki í þessa átt. Það opnar möguleika á því, að allt grunnsævið verði opnað, eða a.m.k. mjög stórir hlutar þess, og er mjög óljóst um alla framkvæmd í mikilvægum atriðum. Mörgum spurningum þarf að mínum dómi að leysa úr í því sambandi, mörgum spurningum, sem er ósvarað og ég hef að sumu leyti bent hér á.

Það má segja, að ýmsir aðilar, sem hagsmuna hafa að gæta í sambandi við framkvæmd slíkrar lagasetningar og þeirrar, sem hér er fyrirhuguð, hafa verið spurðir ráða og álits. En þó hefur verið gengið fram hjá mjög mörgum. T.d. er mér ekki kunnugt um, að sjómannafélögin í landinu hafi verið spurð neins álits um þetta, og það eina álit, sem borizt hefur frá sjómannafélagi, var eindregið á móti.

Að lokum vil ég segja það, að ég tel, að of mikið sé í húfi og of lítið víst um ávinning til þess, að hægt sé að samþykkja þetta frv., eins og það liggur fyrir, og held, að sú afgreiðsla sé eftir öllum atvikum réttust, sem við í meiri hl. sjútvn. leggjum til, þ.e. að málinu verði að þessu sinni vísað frá með þeirri rökst. dagskrá, sem við berum fram á þskj. 609.