30.05.1960
Sameinað þing: 55. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3293 í B-deild Alþingistíðinda. (1618)

Almennar stjórnmálaumræður

Hermann Jónasson:

Herra forseti. Góðir Íslendingar. Megingrundvöllur lýðræðis eru almennar kosningar til þjóðþings, er ræður málefnum, kosningar, þar sem frambjóðendur skýra fyrir þjóðinni skýrt og skilmerkilega, hvernig þeir ætla að starfa og stjórna, ef kjósendur veita þeim vald til þess.

Sjaldan í sögu þjóðarinnar mun hafa verið jafnötullega gengið til verks í þessu efni og fyrir síðustu kosningar. Leiðin til bættra lífskjara er að kjósa Sjálfstfl., var kosningakjörorð þessa flokks. Þeir, sem fylgja stöðvunarstefnunni, þeir, sem vilja stöðva verðbólguflóðið án þess að leggja á nýja skatta og álögur, þeir kjósa Alþfl. Þeir einir, sem ekki vilja stöðva, kjósa hina. — Þetta hátíðlega loforð til kjósenda var endurtekið á hverjum degi í blöðum flokkanna, á framboðsfundum, í útvarpsumræðum. Hver foringi Alþfl. eftir annan lét birta af sér stóra mynd ásamt fullyrðingum um það, að mönnum væri óhætt að treysta því, að þeir mundu framkvæma stöðvunarstefnuna eftir kosningar, og til að sanna kjósendum, hvað tryggð þeirra við stöðvunarstefnuna var einlæg, settu þeir brbl. um, að verð landbúnaðarafurða skyldi ekki hækka, eins og bændur áttu þó rétt til að lögum.

En nú blasa efndirnar við þjóðinni. Í stað bættra lífskjara meiri skerðing á lífskjörum almennings en dæmi eru til um áratugi. Í stað stöðvunar, sem lofað var, er steypt yfir þjóðina dýrtíðarflóði. Það, sem nú er framkvæmt, er alveg öfugt, alger andstæða þess, sem lofað var fyrir kosningar. Ég spyr ykkur, kjósendur: Ef þetta eru ekki kosningasvik, hvaða verknaður er það þá, sem á að kallast því nafni? Ég spyr enn: Fer ekki að rýrna gildi almennra kosninga, fer ekki lýðræðinu að verða hætt, ef hægt er að fá sig kosinn upp á það að gefa kjósendunum loforð um að framkvæma ákveðna stefnu, en gera alveg það gagnstæða eftir kosningar?

Fáum mun dyljast, að ólíklegt er, að núverandi stjórnarflokkar hefðu fengið meiri hluta í síðustu kosningum, ef þeir hefðu fyrir kosningarnar sagt satt um það, hvað þeir ætluðu að gera eftir kosningar. Sá meiri hl. þm., sem nú ræður, er fenginn á röngum forsendum og því tæplega lýðræðislegur. Vinnubrögðin sýna og sanna, að allt var þetta að yfirlögðu ráði. Þjóðinni, sem fyrir kosningar sigldi sléttan sjó verðstöðvunar, var tilkynnt, strax og atkvæðin voru komin í kassana, að hún væri að farast í verðbólguflóði, og 1. des. var notaður til þess að hrópa þetta að þjóðinni úr öllum áttum til þess að skelfa hana. Nú vantaði allt í einu hundruð milljóna í útflutningssjóð. Nú voru erlendar skuldir alveg að drekkja þjóðinni. En áður höfðu allir flokkar talið lofsvert að útvega erlend lán til að byggja upp arðbær fyrirtæki. Og loks þurfti að sögn að auka frelsið og afnema uppbótakerfið.

Vitað var og nú sannað, að miklu minna vantaði í útflutningssjóð en þjóðinni var sagt. Einn þekktasti hagfræðingur landsins, dr. Benjamín Eiríksson, gerði skuldasöfnunargrýluna að engu með rökstuddum útreikningum, er sönnuðu, að vegna gjaldeyrissparandi fyrirtækja, sem fyrir erlendu lánin höfðu verið reist, væri þjóðinni nú auðveldara að standa í skilum en áður. Skuldagrýluna gerði ríkisstj. síðan sjálf hlægilega með því að semja um hærra erlent lán en áður hefur verið tekið og það til eyðslu, og uppbóta- og niðurgreiðslukerfið hefur ríkisstj. vissulega ekki afnumið, eins og ég mun síðar sanna.

Hvers vegna var allur þessi fyrirgangur og óp að þjóðinni um það, að hún væri að farast? Það var allt gert í þeim tilgangi að skapa hræðsluástand til þess að geta í kjölfar óttans gerbreytt fjárhagskerfi þjóðarinnar, komið á nýrri skiptingu auðs og arðs til hagsbóta fyrir þá ríku og tekjuháu, til kjaraskerðingar fyrir hina. Að ríkisstj. hafi orðið að gera svokallaðar viðreisnarráðstafanir vegna neyðarástands, er tilbúningur. Neyðarástandið var aldrei til. Það er sett á svið til þess að gefa ríkisstj. átyllu til að koma hér á afturhaldspólitík í fjárhags- og atvinnumálum þjóðarinnar.

Ég neita því ekki, að nokkurra aðgerða var þörf í efnahagsmálum s.l. haust. En eftir kauplækkunina og niðurfærslu á afurðaverði bænda í ársbyrjun 1959 voru þær aðgerðir ekki stærri en svo, að þær mátti gera án nokkurs sársauka. Það, sem gera þurfti, var að draga úr framkvæmdum, sem helzt máttu bíða, afla nokkurra tekna í útflutningssjóð af óþarfari innflutningi. Ef þetta reyndist síðar ófullnægjandi, mátti komast út úr uppbótakerfinu í áföngum með því að hækka yfirfærslugjaldið. Þegar yfirfærslugjaldið var á lagt 1958, var ætlunin sú, að það væri fyrsti áfanginn til þess að komast út úr uppbótakerfinu, að svo miklu leyti sem það er framkvæmanlegt. Þannig var hægt að halda áfram. Þessi þróun hefði alls ekki þurft að vera tilfinnanleg fyrir þjóðina. Hún var gerólík og raunar andstæða við þá fjárhagsbyltingu, sem núv. ríkisstj. hefur gert með jafnvægi í þjóðarbúskap að yfirvarpi, en raunverulega í allt öðrum tilgangi, eins og ég þegar hef sýnt og manni skilst, þegar aðgerðir stjórnarinnar eru krufnar til mergjar.

Það, sem hefur komið í veg fyrir þá íhaldspólitík, sem nú ríkir hér á landi, var kjördæmaskipunin. Sjálfstfl. hefur alltaf verið og er fyrirtæki fámennrar klíku, sem hefur aflað sér kjósendafylgis með því að látast vera umbótasinnaður og eigna sér vinsæl framfaramál, sem hann hefur verið þvingaður til að fallast á í samstarfi við umbótaflokkana á undanförnum árum. Hann var neyddur til þess að reka þessa pólitík til að reyna að ná þeim 300 atkv., sem hann vantaði á vissum stöðum, eins og kjördæmaskipunin var, til þess að fá meiri hl. á Alþingi. Og þetta var óbeint játað í ræðu sjálfstæðisþingmanns hér á Alþ., þar sem hann lýsti því af miklum feginleik, að nú gæti Sjálfstfl. eftir breytta kjördæmaskipun og í nánu samstarfi við Alþfl. hætt að reka þá pólitík, sem hann hefði neyðzt til að reka í samstarfi við umbótaflokkana undanfarin ár, og framkvæmt þá stefnu, sem hann hefði löngum þráð. Hæstv. forsrh. sagði, að nú væru að koma í stjórnmálunum þeir góðu, gömlu dagar, sem flokk sinn hefði alltaf dreymt um.

Hin breytta kjördæmaskipun leysti einnig önnur öfl úr læðingi. Úr Alþfl. hefur á undanförnum árum streymt látlaust vinstra sinnað fólk, einn og einn eða í stórum hópum. Eftir svo margendurtekna úthreinsun vinstri aflanna sat auðvitað eftir afturhaldssinnaðasta foringjaliðið og flokksmenn, sem áttuðu sig ekki á, hvert stefnt var. Við urðum fljótt varir við þetta, framsóknarmenn, er samstarfið hófst við Alþfl. í ríkisstj. 1956. Við rákum okkur á það sama og radikala fólkið, sem hafði flúið úr flokknum. Íhaldsliðið í Alþfl. í Reykjavík utan Alþingis beitti sér sem einn maður gegn myndun vinstri stj., og þétta liðmyndaði þegar samtök sín á milli við sjálfstæðismenn til þess að rjúfa stjórnarsamstarfið. Saga þeirrar skemmdarverkastarfsemi er svo kunn, að ekki ber að rekja hana hér. Hún reisti dýrtíðarölduna 1958 til þess að rjúfa samstarfið, sem henni tókst með samþykktum Alþýðusambandsþings, sem Alþb. þorði ekki að standa gegn.

Þeir, sem eru undrandi yfir þeirri íhaldspólitík, sem ráðamenn Alþfl. nú reka í einlægu og ágreiningslausu samstarfi við Sjálfstfl., verða að gera sér ljósar þessar sögulegu staðreyndir og þá einnig það, að er Alþfl. myndaði ríkisstj. á Þorláksmessu 1958, urðu alger þáttaskil í stefnu og þó sérstaklega starfi flokksins. Þá hét Sjálfstfl. hinni svokölluðu Alþýðuflokksstjórn stuðningi, enn fremur að breyta kjördæmaskipuninni, eins og hann raunar sjálfur vildi, og taldi Alþfl. trú um, að hann væri með þessu að bjarga honum úr lífsháska. Þessu tækifæri var að sjálfsögðu tekið tveim höndum af þeim mönnum í Alþfl., sem í raun og veru vildu samstarf við Sjálfstfl. frekar en aðra flokka og höfðu stefnt að því leynt og ljóst. Hinir sættu sig við það, sem gert var, af ótta við lífsháska. En um leið kom Sjálfstfl. því í kring, að samið var um myndun þeirrar stjórnar, sem nú situr, og í öllum aðalatriðum um þá íhaldsstefnu, sem nú gengur yfir þjóðina. Í þessum samningum sameinast áhugi og stefnumál Sjálfstfl. og íhaldsaflanna í Alþfl., sem náðu þar algerum yfirráðum árið 1958, eins og ég hef áður sýnt. Ef menn efast um þetta, skulu menn hugleiða ummæli eins af þm. Sjálfstfl., Jóhanns Hafsteins, hér á Alþ., þar sem hann segist heldur vilja meiri hl. með Alþfl. en hreinan meiri hl. Sjálfstfl. Svo ágreiningslaust er samstarf stjórnarflokkanna. Þessi yfirlýsing sannar tvennt: Í fyrsta lagi, að sjálfstæðismenn álíta, að ráðandi íhaldsöfl í Alþfl. séu þeim svo sammála pólitískt, að við þau sé samstarfið eins öruggt og við eigin flokksmenn. Í öðru lagi, að þessi sömu íhaldsöfl séu örugg með alger yfirráð í Alþfl. Ég efast ekki um, að hið fyrra er rétt. Um hið síðara skal ég engu spá.

Nú skulum við athuga, hvað þessir flokkar eru að gera. Ég hef sýnt fram á, að halli útflutningssjóðs var að verulegu leyti skröksaga, að skuldasöfnunin við útlönd var yfirskinsástæða. Þeir segjast hafa gert þessar viðreisnarráðstafanir til þess að auka frelsið og losna við uppbótakerfið. Rétt kann að vera, að frelsi hinna fáu og stóru hafi aukizt. En hvað skyldi almenningi finnast? Uppbótakerfið hefur ekki verið lagt til hliðar. Útflutningsuppbætur á landbúnaðarvörur verða að haldast, og nýlega varð að leiðrétta eina reikningsskekkjuna enn með því að greiða 60 millj. í útflutningsuppbætur á fisk, þótt að krókaleiðum sé gert. Niðurgreiðslur hafa verið auknar, svo að nú nema þær 300 millj. kr., en auðvitað eru niðurgreiðslur gerðar til þess, að kaupið geti verið lægra, framleiðslukostnaðurinn minni, og eru því uppbótakerfið sjálft í öðru formi. Fjölskyldubætur eiga að greiðast með fyrsta og öðru barni og eru ekki lengur venjulegar tryggingar, heldur niðurgreiðslur, sem eru viðurkenning ríkisstj. á því, að hún veit sig hafa sorfið svo að almenningi, að hjón geta ekki lengur lifað af launum sínum, ef þau eiga fyrir einu barni að sjá, og þurfi því að jafna þessum byrðum á þá, sem einhleypir eru. Að uppbótakerfið hafi verið afnumið með viðreisnaraðgerðunum, er því einnig tilbúningur. En það er annar þráður, sem gengur óslitinn gegnum allar ráðstafanir ríkisstj., falinn, en þó augljós, ef vel er að gáð. Það er engin tilviljun, að ríkisstj. vildi ekki fara út úr uppbótakerfinu í áföngum, leið þróunar, leið, sem gat orðið sársaukalítil vegna þess, að hún raskaði ekki hag manna með skyndibyltingu. Ástæðan til þess, að gengisbreytingin varð, er sú, að það var auðveldara að gera um leið í blóra við hana ráðstafanir, sem miða að því að gerbreyta tekjuskiptingu í þjóðfélaginu, gera þá fátæku fátækari, þá ríku ríkari.

Þetta er þráðurinn, sem gengur í gegnum allar ráðstafanir ríkisstj. og er ekki hægt að fela. Þegar gera verður gengisbreytingu, hafa umbótaflokkar hér og annars staðar talið sér skylt að gera ráðstafanirnar þannig, að það dragi úr þeirri kjaraskerðingu, sem þeir valda þeim, sem fátækari eru. Stjórnarflokkarnir fara alveg öfugt að. Fjölskyldubæturnar eru það eina, sem hæstv. ríkisstj. gerir í þessa átt, og það er til bóta, þó að lítið sé, enda rétt að ríkum sem fátækum.

Að öðru leyti miða ráðstafanir ríkisstj. allar í þá átt að rýra kjör almennings í ofanálag á kjaraskerðingu gengisbreytingarinnar og rífa niður umbótastarf síðustu áratuga og koma klafa afturhalds á þjóðina, líkt og var fyrir 30 árum, þegar umbótamennirnir brutu hann af þjóðinni.

Með þeirri skinhelgi, sem er einkenni á málflutningi afturhalds allra landa og allra tíma, halda stjórnarflokkarnir því fram, að breyting á tekjuskattslögunum sé gerð til hagsbóta fyrir hina fátækari. Hið rétta er, að um leið og lækkaður er tekjuskattur á tekjulágum um nokkur hundruð, er lækkað á hinum tekjuháu um þúsundir og tugi þúsunda. Ráðstöfunin er því ein af mörgum gerð fyrir hina tekjuháu og ríku, hækkar nettótekjur hátekjumanna stórlega, lækkar hlutfallslega tekjur hinna.

Hliðstæðu takmarki ná stjórnarflokkarnir nú með breytingu útsvarslaganna. Að sama marki er miðað og náð með söluskattinum. Eðli hans hefur ekkert breytzt, síðan hæstv. viðskmrh. taldi hann óréttlátastan allra skatta. Það er rétt, hann er skattur á heiðarleikann og kemur þyngst niður á þeim, sem hafa flesta að fæða og klæða. Veltuútsvarið er sama eðlis. Með því er þeim refsað, sem hafa mikla umsetningu, en leggja lítið á.

Með þessu á að níðast á félagssamtökum fólksins, sem annast viðskipti fyrir félagsmenn fyrir mjög litla þóknun. Heiðarlegar verzlanir og kaupfélög geta hvorki né vilja fela umsetninguna. Þetta eru því verðlaun fyrir þá, sem leggja mikið á og kunna að fela umsetninguna. Með því að flytja útsvörin þannig í vaxandi mæli yfir á veltu er þeim, eins og söluskattinum, komið á bakið á almenningi og létt af hátekjumönnum útsvörum, svo að tugþúsundum nemur, því að auðvitað bera hvorki verzlanir né kaupfélög veltuútsvarið, heldur leggst það í hækkuðu verðlagi á bak viðskiptamanna.

Í stað þess að létta byrðarnar, sem gengisbreytingin veldur, er skatta- og útsvarslögum breytt til þess að færa byrðarnar af baki þeirra, sem hafa þau breiðust, yfir á bak hinna. Þetta er alls staðar reglan. Gengisbreytingin stórhækkar byggingarkostnað, útilokar efnalítið fólk frá því að eignast þak yfir höfuðið. En þetta er ekki nóg. Vextir af lánum til bygginga eru hækkaðir í ofanálag og dregið úr útlánum. Hinir ríku eiga að byggja, hinir efnaminni að leigja, eins og í hina góðu, gömlu daga. Gengisbreytingin veldur stórhækkun á tækjum og vélum til framleiðslu. Af þessum ástæðum hafa ýmsir þegar gefizt upp við áform sín um búskap. En betur skal að vinna. Vextir hjá sjóðum, sem lána til uppbyggingar við sjó og í sveit, eru hækkaðir, og sumir sjóðir hafa verið lokaðir um lengri tíma.

Atvinnuaukningarféð, sem hefur verið helzta stoð við uppbygginguna úti um land til sjávar og sveita, er lækkað, það á alls staðar að dragast saman.

Skortur á fjármagni hefur mest hindrað uppbyggingu og framleiðsluaukningu úti um landið, við sjó og í sveit. Innlánsdeildir kaupfélaganna og sparisjóðir hafa verið þar nokkur hjálp. Nú á að taka helminginn af aukningu innlánssjóðanna og loka inni í Seðlabankanum í Reykjavík til þess að koma í veg fyrir framkvæmdir úti um landið. Bankavextir eru stórhækkaðir, svo að okur má kallast, og ofan á allt annað enn eitt, sem hækkar vöruverðið. Margir, sem minna mega sín, eru með víxillán og önnur óumsamin lán á húsum sínum, og liggur nú víða við, að þeir séu að sligast undir byrðunum.

Auðsætt er, að landbúnaðurinn verður hart úti, og sjávarútvegurinn, sem þetta átti allt að vera gert fyrir, er uggandi um sinn hag. Það er sama, hvar gripið er niður. Alls staðar er stefnt að stöðvun og samdrætti. Allt á að bera sig sjálft og leita jafnvægis. Það á að vera hæfilegt atvinnuleysi, eins og það heitir. Kaupið á að vera hæfilega lágt, til þess að fólkið hafi úr hæfilega litlu að spila og kaupi hæfilega lítið af vörum. Gerið svo vel, segir ríkisstj. Nógar vörur, allir frjálsir að kaupa allt, sem þeir vilja. En skorturinn er skömmtunarstjórinn.

Það er sama stefnan, sem ríkti á hinum góðu og gömlu dögum hér á landi, þegar bændur urðu næstum allir gjaldþrota, þegar framleiðslan gafst upp í Hafnarfirði, Ísafirði og víða í kauptúnum landsins og fólkið var atvinnulaust og hálfsvalt. Það var þá, sem umbótamennirnir byrjuðu að brjóta niður þessa frumstæðu stjórnmálastefnu, þar sem allt á að stjórna sér sjálft af handahófi og hinn ríki og sterki á að fá að gramsa og hrifsa til sín, en hinn veiki á að lúta. Það er þessi sama stefna, sem ríkti í Bandaríkjunum 1930 og leiddi yfir þetta land auðlegðarinnar margar milljónir atvinnuleysingja, hungur, bankahrun og fjöldagjaldþrot. Það var þá, sem Roosevelt kom til sögunnar og bjargaði þjóð sinni úr heljargreipum handahófstefnunnar, sem ríkisstj. hér er að innleiða eftir erlendri forskrift. Afturhaldsstefnur birtast einatt í nýjum og nýjum gervum, kalla sig viðreisnarstefnu eða öðrum slíkum gervinöfnum, en undir gervinu er íhaldsskrímslið, sem þjóðirnar þekkja.

Síðustu 30 árin hefur þessi stefna orðið að víkja hér á landi fyrir stefnu félagshyggju og framfara. Undir merkjum framtaks hinna mörgu einstaklinga, sem ríkið hefur unnið í samstarfi við og stutt eftir megni, hafa orðið hér á Íslandi slíkar framfarir, að varla munu finnast hliðstæður. Þessa stefnu á nú að brjóta á bak aftur. Við erum mörg, sem teljum okkur vita það með vissu, að þótt afturhaldsófreskjan skjóti upp hausnum, muni henni reynast ofraun að brjóta þessa stefnu niður, því að í henni lifir þrá fólksins eftir betra þjóðfélagi. Sá tími er kominn, og skilningur á því mun verða enn almennari, að þjóðfélag án stjórnar, sem gerir fyrirframáætlun um þróun þess og grípur inn í, þar sem þess er þörf, til að skipa fyrir verkum, er viðlíka fjarstæða og atvinnurekstur við sjó eða í sveit, þar sem hver, sem að verki gengur, ræður sjálfur, hvað hann gerir. Þjóðfélagið er eins og stórt heimili. Ofstjórn, þar sem ríkið er allt, einstaklingurinn ekkert, er álíka fávísleg og þjóðfélag, þar sem örfáir einstaklingar eiga að vera forsjón allra og ráða í hlutfalli við þá aðstöðu, auð og völd, sem þeim hefur tekizt að hrifsa til sín, oft um stundarsakir.

Gallar áætlunar- og skipulagsbúskapar eru margir. Allt nýtt á við marga barnasjúkdóma að stríða, meðan það er að þróast. Leiðin er ekki að brjóta það niður, eins og nú á að gera, heldur að endurbæta. Einstaklingsframtakið er mikið afl, sem þarf að njóta sín eðlilega í þjóðfélaginu. Hlutverk þjóðfélagsins, rannsókna þess og áætlana, á einmitt að vera til þess, að framtak hinna mörgu einstaklinga geti notið sín sem bezt. Einstaklingsframtakið og þjóðfélagið þurfa að læra að vinna saman og einnig þannig, að hvort hafi sitt starfssvið.

Við Íslendingar höfum verið að þreifa okkur áfram á þessum leiðum á undanförnum áratugum, og þótt andstæðingarnir bendi á mistök, stendur þó óhögguð þessi stefna, þessi vinnubrögð, sem hafa skapað hér nýtt og betra þjóðfélag á örskömmum tíma, reist þjóðina úr niðurlægingu og örbirgð. Framfarahugur og þrá eftir betra og bjartara lífi í þessu landi hefur verið aflgjafi hinna miklu umbóta á öllum sviðum þjóðfélagsins. Þessi þrá hefur séð árangur verka sinna, og hún er svo lífseig, hún er svo sterk með þjóðinni, að hún mun vissulega ganga af núverandi íhalds- og samdráttarstefnu dauðri. Þau leikslok sjá flestir skynbærir menn fyrir.

Spurningin í dag er aðeins sú, hve lengi ríkjandi afturhalds- og samdráttarstefna tórir og hve mikið tjón hún fær tækifæri til að vinna þjóðinni, áður en hún gengur til grafar.