30.05.1960
Sameinað þing: 55. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3304 í B-deild Alþingistíðinda. (1620)

Almennar stjórnmálaumræður

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Góðir áheyrendur. Ég vil byrja mál mitt á því að minna á nokkur fyrirheit, er stjórnarliðar gáfu þjóðinni í kosningunum á s.l. hausti, svo sem stöðvun verðbólgu, án þess að nýjar álögur yrðu lagðar á almenning, sköttum skyldi aflétt, sparnaður viðhafður í ríkisrekstrinum, uppbyggingunni haldið áfram, styrkjastefnan afnumin og lífskjörin bætt. Ég mun nú athuga, hvernig til hefur tekizt með framkvæmd á þessum fyrirheitum, þó fyrst og fremst að því leyti, sem þessi atriði varða afgreiðslu fjárlaga.

Er þá fyrst að athuga, hvort á almenning hafa verið lagðar nýjar álögur. Ég hef gert samanburð á fjárl. tveggja síðustu ára og fjárlögum ársins 1960. Inn í það dæmi hef ég tekið niðurgreiðslur á vöruverði, er útflutningssjóður annaðist á árunum 1958 og 1959, þannig að niðurstöðutölur fjárlaga þau ár hækka sem því nemur, svo að um hliðstæðan samanburð er að ræða öll árin.

Rekstrartekjur ríkissjóðs hafa hækkað frá því 1958 og þar með álögur á almenning um 554 millj. kr., eða milli 50 og 60%, og um 358 millj. kr. frá því 1959, eða yfir 30%. Einhver kann að hugsa sem svo: Hér vantar að geta þess verkefnis, sem útflutningssjóður annaðist, en ríkissjóður gegnir nú. — Svo er þó ekki. Sá þáttur útflutningssjóðs, sem ríkissjóður tekur nú að sér, er niðurgreiðslur á vöruverði innanlands að fullu og annað ekki. Það kostar ríkissjóð 113 millj. kr. umfram það, sem hann greiddi á s.l. ári. Eins og ég hef tekið fram áður, er fjárveiting til niðurgreiðslna tekin með öll árin, svo að hér er ekki á neinn hallað. En ekki eru öll kurl komin til grafar um álögur á þjóðina af hendi ríkisstj. Ef innflutningur 1958 er lagður til grundvallar tekjuáætlun ríkissjóðs nú, ætti tekjuáætlun fjárl. 1960 að hækka a.m.k. um 250 millj. kr. Tekjuáætlunin er miðuð við 14% minni innflutning en hann var 1958, og hefur þó þjóðinni fjölgað um ca. 5–6% síðan. Þessi áætlun á innflutningi er þeim mun fráleitari, er það er haft í huga, að ríkisstj. hefur tekið erlent eyðslulán að fjárhæð 760 millj. ísl. kr. Þessi innflutningsáætlun kemur illa heim við þann boðskap hæstv. ríkisstj., að nú sé frelsi í viðskiptum að halda innreið sína, tími hafta og ófrelsis liðinn hjá. Innflutnings- og tekjuáætlun hæstv. ríkisstj. er á vissan hátt viðurkenning á því, að stefna hennar muni leiða til fátæktar og kyrrstöðu. En henni er einnig ætlað það hlutverk að leyna þjóðina, hve mikið af nýjum álögum er á hana lagt, og að skapa tekjuafgang, er ríkisstj. geti ráðstafað eftir eigin geðþótta.

Þó að ég hafi hér að framan sýnt, hvað gífurlegar álögur hafa verið á almenning lagðar, þegar litið er til fjárl., er dæmið ekki allt reiknað. Ber þá fyrst að líta á það, að hinir nýju tekjustofnar, t.d. söluskatturinn, gefa ekki tekjur nema hluta af árinu, svo að miðað við heilt ár eru auknar álögur til ríkissjóðs yfir 450 millj. a.m.k., þegar lækkun á tekjuskatti og söluskattur á innlendri framleiðslu og þjónustu, er niður var felldur, hafa verið dregin frá. Þar við bætast álögur þær á almenning, er lagðar eru á með breyttu skráðu gengi krónunnar og vaxtahækkuninni. Nema þá álögurnar a.m.k. yfir 600 millj. kr., þegar frá er dregið það, sem gengur inn og út í dæminu vegna atvinnuveganna og fjölskyldubóta. Hér er því um að ræða álögur, sem nema a.m.k. um 1100 millj. kr.

Það, sem hér hefur gerzt á yfirstandandi Alþingi, er það, að á almenning hafa verið lagðar svo stórkostlegar og skefjalausar álögur, að undrun sætir. Hitt er þó enn alvarlegra, að þetta skuli hafa verið gert þvert ofan í gefnar yfirlýsingar um hið gagnstæða og í þeim tilgangi að koma þar að nýrri stefnu í efnahagsmálum þjóðarinnar, stefnu, sem mun veita máttarstólpunum í liði stjórnarliða meira olnbogarúm, en skapa fátækt hjá almenningi, kyrrstöðu hjá þjóðinni, þ.e.a.s. leysir ekki vandamálin, heldur eykur þau.

Lækkun skatta var annað boðorðið í boðskap stjórnarliða. Skal lítið eitt að því vikið. Ég hef ekki reiknað með þeim hluta söluskattsins, er rennur til sveitarfélaganna, í dæminu hér að framan. Þeim álögum er þar sleppt. Ríkisstj. hefur notað þessa ráðstöfun á skattinum ásamt tekjulækkuninni sér mjög til hróss. Verður ekki hjá því komizt að benda á, hvaða stefnu ríkisstj. hefur fylgt í framkvæmd þessa máls. Hún er þessi: Því meira burðarþol, því meiri byrðum aflétt, því minna burðarþol, því minni byrðum aflétt. Þetta er réttlætið, sem ríkisstj. býður þjóðinni upp á. Um þetta réttlæti hæstv. ríkisstj. má með sanni segja, að vont er hennar ranglæti, en verra er hennar réttlæti.

Sparnaður var eitt af boðorðum stjórnarliða, og mun ég nú víkja að því. Ekki hefur skort yfirlýsingar undanfarin ár hjá stjórnarliðum um, að mikið mætti spara í ríkisrekstrinum, ef ekki skorti einbeitta forustu, víðsýni og kjark. Fyrrv. fjmrh., Guðmundur Í. Guðmundsson, lýsti því yfir við afgreiðslu fjárl. 1959, að unnið væri að sparnaðaráætlun hjá ríkisstj. Og hæstv. fjmrh. taldi upp einar 12 sparnaðartill. í fjárlagaræðu sinni í haust, er hann mundi nú beita sér fyrir. En hvað segja staðreyndirnar í þessu máli? Ekki ein einasta sparnaðartillaga kom fram við afgreiðslu fjárl. að þessu sinni frá ríkisstj. Var þó fullkomin ástæða til þess að ætla, að nú yrðu bornar fram rökstuddar sparnaðartillögur. Hér hefur farið sem fyrr, að lítið hefur orðið úr efndunum. Hins vegar berast fregnir af útfærslu ríkisbáknsins og nefndaskipun til margs konar verka, eins og t.d. með endurskoðun útsvars- og skattalaga, sem við höfum séð árangurinn af, nefnd til að líta eftir starfsemi bænda í ræktunarsamböndunum o.fl., o.fl. Sparnaðurinn kemur e.t.v. síðar, en sjáanlegur er hann ekki enn þá.

Uppbyggingarstefnunni í landinu átti að halda áfram samkvæmt stefnu stjórnarliða. Skal nú athuga, hvernig að því hefur verið staðið.

Þegar svo mikið hefur verið tekið af þjóðinni í álögur sem nú er, má ætla, að miklu fé sé varið til uppbyggingar, enda skiptir það mestu máli fyrir þjóðina, hvort hún nýtur verulegs hluta þess fjár, er af henni er tekið með álögum, til þess að bæta land sitt. Ég hef gert samanburð á, hve miklu af rekstarútgjöldum ríkissjóðs hefur verið varið til uppbyggingar í landinu, þ.e.a.s. til nýbygginga á þjóðvegum, brúm, til hafna, skóla, raforkuframkvæmda og atvinnuveganna. Það tímabil, sem ég hef tekið, eru árin 1950–1960, að báðum meðtöldum. Ef árin 1950–1958 eru tekin sérstaklega, er það að meðaltali 28.5% af heildarrekstrarútgjöldum fjárl., sem er varið til uppbyggingar. Mest er það þó árið 1957, eða 31.8%, en lækkar niður í 21.2% 1959, og á fjárl. 1960 nema þessi framlög aðeins 19.7%. Hér er um eins greinilegan stefnumun að ræða og orðið getur. Eftir að Framsfl. hætti að hafa áhrif í ríkisstj., lækka framlög til uppbyggingar í landinu úr 31.8%, eins og var 1957, í 19.7%, eins og nú er orðið. Þetta sýnir líka glögglega það, sem áður átti að vísu að vera fullkunnugt almenningi, að Framsfl. er að þakka hin mikla þátttaka ríkisins í þeirri uppbyggingu, sem hér hefur átt sér stað um meira en 30 ára skeið.

Eitt gleggsta dæmið um viðhorf hæstv. ríkisstj. til uppbyggingarstefnunnar kemur fram í viðhorfum hennar til samgöngubóta á landi. Ekki þarf mörgum orðum að því að eyða, að samgöngumálin eru þau mál, er heitast brenna í hverju byggðarlagi, enda lyftistöng í viðskipta- og athafnalífi landsmanna og ástandið þannig, að ekki einungis einstakir bæir, heldur heil byggðarlög eru samgöngulaus á landi verulegan hluta ársins. Ekki er aðeins knýjandi nauðsyn að bæta úr þessu, heldur að hefja framkvæmd í vegagerð úr varanlegu efni, þar sem umferðin er mest, eins og t.d. hér á Reykjanesi. Við afgreiðslu fjárl. í vetur sköpuðust möguleikar til þess að gera stórt átak í samgöngumálum, og skal það nú skýrt.

Til útflutningssjóðs runnu 50 aurar af þeim benzínskatti, er áður var á lagður. Með breytingu á gengi krónunnar féll þetta gjald að sjálfsögðu niður, enda greiða benzínnotendur gjald sitt til framleiðslunnar með hærra gjaldeyrisverði. Auk þessa hækkaði ríkisstj. benzínskattinn um 34 aura á hvern benzínlítra. Hún hafði því til ráðstöfunar 84 aura nýtt gjald af hverjum benzínlítra, eða 42 millj. kr. Hér voru skapaðir möguleikar til þess að gera stórt átak í samgöngumálum, enda eðlilegt, að þeir, er nota vegina, byggi þá upp, svo sem gert er með öðrum þjóðum. Hver var stefna hæstv. ríkisstj. í þessu máli? Hún var sú, að 3 millj. kr. af þessari fjárhæð ganga til nýbygginga í samgöngumálum, en hvorki meira né minna en 39 millj. kr. af þessum nýja skatti, er vegfarendur greiða umfram aðra, tekur hæstv. ríkisstj. til ríkissjóðs. Þrátt fyrir auknar tekjur ríkissjóðs af vegfarendum tókst ekki að halda í horfinu með framlag á fjárl. til samgöngubóta á landi, hvað þá að gera nokkurt átak, eins og efni stóðu til.

Við Framsóknarflokksmenn höfum gert margar tilraunir til þess að fá stjórnarliða til þess að falla frá þessari fráleitu stefnu sinni, og þeirri baráttu verður haldið áfram. Allar till. okkar hafa verið felldar, en þó tókst fyrir þessa baráttu að þoka framlögum til vega lítið eitt til hækkunar frá því, sem ríkisstj. ætlaði sér.

Sömu söguna er að segja um till. okkar um aukin framlög til atvinnuveganna, svo sem sjóða Búnaðarbankans, fiskveiðasjóðs, iðnlánasjóðs, til raforkuframkvæmda, framlag til rannsókna í þágu atvinnuveganna og aukið atvinnuaukningarfé. Allar till. okkar til hækkunar á fjárl. gengu í þá átt að halda áfram með uppbyggingarstefnuna í landinu, halda því hlutfalli, er uppbyggingarstefnan hefur haft á fjárl., meðan Framsfl. hafði forustu um afgreiðslu þeirra.

Eitt af fyrirheitum stjórnarliða var, að styrkjastefnan skyldi lögð til hliðar. Skal nú vikið að því. Hvernig hefur tekizt með framkvæmdina? Aldrei hefur á fjárl. íslenzka ríkisins verið meira varið en nú til niðurgreiðslna á vöruverði, eða 303 millj. kr., og hefur sú fjárhæð meir en tvöfaldazt á tveimur árum. Þá ver ríkisstj. um 100 millj. kr. til að greiða fjölskyldubætur með fyrsta og öðru barni. Er það viðurkenning á því, að vegna stjórnarstefnunnar sé þannig að þjóðinni búið, að fólki á bezta aldri sé það ofraun að sjá fyrir tveimur börnum án styrkja. Ber að sjálfsögðu að virða þessa viðurkenningu, því að öllum er ljóst, hvað þessi styrkjastefna væri fráleit, ef lífskjörin væru eðlileg. Hins vegar hefur þannig tekizt með framkvæmdina, að þessar uppbætur eru aðeins 269 kr. með fjórða barni og þar yfir umfram það, sem áður var, svo að réttlætið er samt við sig hjá hæstv. ríkisstj. sem fyrr.

Ég hef hér að framan drepið á örfá atriði um framkvæmd á fyrirheitum stjórnarliða frá kosningunum. Þess er þó ógetið, hvernig til hefur tekizt með stöðvun verðbólgunnar. Það atriði minnir svo á sig sjálft, að óþarft er að geta þess hér, enda látið nægja að geta orsakanna.

Niðurstaðan af því, sem að framan er sagt, er þessi: Heitið var stöðvun verðbólgu, framkvæmd óðaverðbólga. Heitið var lækkun skatta, framkvæmdar skefjalausar álögur. Heitið var sparnaði í ríkisrekstrinum, framkvæmd aukin eyðsla. Erlendar lántökur fordæmdar, stórkostleg eyðslulán tekin. Verzlunarfrelsi boðað, samdráttur í viðskiptalífinu áætlaður. Hækkun fjárl. talin uggvænleg fyrir tveimur árum, fjárlög hækkuð um 50–60%. Heitið var áframhaldandi uppbyggingu, framkvæmdur samdráttur og kyrrstaða. Heitið var afnámi styrkjastefnunnar, í framkvæmd styrkjastefna stóraukin. Heitið var bættum lífskjörum, kjararýrnun framkvæmd.

Góðir áheyrendur. Þannig hafa stjórnarliðar staðið við fyrirheitin, sem þeir gáfu ykkur í kosningunum s.l. haust, en eftir er enn yðar hlutur. — Góða nótt.