31.05.1960
Sameinað þing: 56. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3365 í B-deild Alþingistíðinda. (1632)
Almennar stjórnmálaumræður
Jón Þorsteinsson:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Einu sinni var maður, sem fór inn í húsgagnaverzlun og keypti sér borðstofuhúsgögn, sem kostuðu 10 þús. kr. Hann borgaði út 7500 kr., en afganginn, 2500 kr., átti hann að greiða síðar með afborgunum. Nú leið nokkur tími. og maðurinn stóð ekki í skilum með greiðslu afborgananna, enda var ekki fast gengið eftir með innheimtuna. Var að lokum svo komið, að maðurinn hafði alveg gleymt því, að skuldin væri til. Einmitt um þær mundir fór maðurinn aftur í þessa sömu verzlun til að kaupa sams konar húsgögn og áður. Hann skoðaði borðstofuhúsgögnin vel og vandlega og spurði, hvað þau kostuðu. „10000 kr.,“ svaraði afgreiðslumaðurinn. „Hvað er að heyra þetta?“ sagði kaupandinn. „Á nú að níðast á mér og láta mig sæta okurkjörum? Síðast þegar ég keypti hér húsgögn, borgaði ég ekki nema 7500 kr. fyrir þau. Hvernig stendur eiginlega á þessari hækkun?“ „Ég veit því miður ekkert um þín fyrri viðskipti hér,“ svaraði afgreiðslumaðurinn, „en nú kosta þessi húsgögn 10000 kr., og þá upphæð verður þú að borga út í hönd.“
Sama sagan og gerðist um manninn, sem keypti húsgögnin, hefur gerzt með íslenzku þjóðinni. Við gengisfellinguna og aðrar efnahagsráðstafanir á s.l. vetri hækkaði verð erlendrar vöru allmikið og margir spurðu: Hvað eiga þessar hækkanir eiginlega að þýða, er þeirra nokkur þörf, er ekki hér verið að níðast á almenningi? — Þegar málið er skoðað niður í kjölinn, hafa erlendar vörur í raun réttri ekkert hækkað í verði. Það, sem skeð hefur, er einfaldlega það, að nú verðum við að borga allt verð vörunnar strax, en áður greiddum við aðeins hluta af raunverulegu verði og afgangurinn var fenginn að láni. Að vísu var þetta ekki svo með hvern einstakling, heldur þjóðina í heild. Fyrir gengisfellinguna var í sannleika sagt hluti af verði allrar erlendrar vöru og þjónustu borgaður með erlendum lánum, sem þjóðin tók, en stóð ekki í skilum með að greiða. Verðhækkunin, sem við köllum svo, stafar því eins og hjá manninum, sem keypti húsgögnin, af þeim orsökum, að okkur hefur hætt til að gleyma þeim hluta verðsins, sem var óborgaður og stóð í skuld. Að ekki var unnt að halda áfram slíkum viðskiptaháttum, er augljósara en svo, að fleiri orð þurfi um það að hafa, en á hinu leytinu auðsætt, að eðli þessara hækkana var slíkt, að þar var ekki um nein brot gegn stöðvunarstefnu að ræða.
Vissulega hefur margt fleira en erlendar vörur hækkað í verði við gengisbreytinguna, þó að þær hafi yfirleitt hækkað mest. En orsakir þess, að innlend framleiðsla hefur hækkað, eru þó sama eðlis. Við skulum taka t.d. sement, sem hækkaði um 49% og kostar nú 1120 kr. smálestin í Reykjavík. Margir spyrja að vonum, hvers vegna svona mikil hækkun hafi verið nauðsynleg, þar sem kaupið hafi ekkert hækkað. Til að svara þessari spurningu þarf að rannsaka málið nokkru nánar. Sementsverksmiðjan var byggð á árunum 1956–1958 og kostaði um 130 millj. kr. Þar af var um 50% erlendur kostnaður. Erlend lán voru tekin handa verksmiðjunni til að borga 85% af öllum byggingarkostnaðinum. Afgangurinn var fenginn af innlendu fjármagni. Það er því ljóst, að verksmiðjan þarf að standa undir miklum greiðslum afborgana og vaxta í erlendri mynt, sem hækka mikið við gengisbreytinguna, og er þetta ein aðalástæðan til hækkunar sementsverðsins. En við skulum athuga þetta dæmi nokkru betur. Ef innlent fjármagn hefði verið fyrir hendi til að borga helminginn af verði verksmiðjunnar, svo að aðeins hefði þurft að taka erlend lán fyrir þeim 50%, sem erlenda kostnaðinum nam, í staðinn fyrir 85%, eins og gert var, þá hefði verðið á hverri sementssmálest nú getað verið 70–80 kr. lægra en það er. Ef við á hinn bóginn hefðum auk þess búið svo vel að eiga gjaldeyrisvarasjóð, þegar verksmiðjan var byggð, þannig að við hefðum ekkert erlent lán þurft að taka til byggingar verksmiðjunnar, þá gæti sementssmálestin nú verið um það bil 200 kr. ódýrari en hún er í dag, eða kostað rúmar 900 kr. í stað 1120. Þessar 200 kr., sem við greiðum nú aukalega fyrir tonnið af sementinu eða 10 kr. fyrir hvern poka, eru þau syndagjöld, sem íslenzka þjóðin verður nú að borga fyrir það að hafa vanrækt sparnað og látið hjá líða að safna gjaldeyrisvarasjóðum. Er þó hér aðeins um eitt dæmi að ræða af mörgum áþekkum.
Eitt af þeim atriðum í efnahagsmálalöggjöf ríkisstj., sem sætt hefur hvað mestum árásum af hálfu stjórnarandstæðinga, er ákvæði um, að verkalýðsfélögum og vinnuveitendum sé óheimilt að semja um vísitöluuppbætur á kaupgjald. Þetta kalla þeir þrælalög og ofbeldisaðgerðir gagnvart verkalýðnum og öðrum illum nöfnum. Rökin fyrir þessari breyt. eru þau, að við höfum síður en svo góða reynslu af vísitöluuppbótum á kaup, sem hafa verið hér í gildi frá því á styrjaldarárunum. Ef verkalýðurinn skoðar málið frá lagalegu sjónarmiði, má að vísu segja, að um réttindasviptingu sé að ræða. En frá hagsmunalegu sjónarmiði horfir málið allt öðruvísi við.
Gallinn við vísitölukerfið er sá, að það stuðlar mjög að aukinni og hraðvaxandi verðbólgu í landinu, en af því leiðir, að vísitalan er alltaf á eftir verðbólgunni og uppbætur samkvæmt vísitölunni verða því aldrei fullnægjandi. Hefur reynslan sýnt, að ýmsir aðilar í þjóðfélaginu aðrir en launþegar hafa haft aðstöðu til að bæta sér verðbólguna jafnharðan að fullu og sumir þeirra jafnvel hagnazt á henni. Varanlegt verðbólguástand er því algerlega andstætt hagsmunum launþega og verkafólks, og því er það í þágu þessara stétta að leggja nokkuð af mörkum til að komast hjá slíku ástandi. Við verðum einnig að hafa það í huga, að vísitalan mælir aðeins framfærslukostnaðinn, en er ekki mælikvarði á það, hvað þjóðfélagið hefur ráð á að greiða mönnum í kaup. Ef t.d. erlend vara, sem við flytjum inn, hækkar í verði á heimsmarkaðinum, hækkar að sjálfsögðu vísitalan, en þessi verðhækkun gerir ekki innlenda atvinnurekendur færa um að greiða hærra kaup en áður. Á samsvarandi hátt má segja, að ef erlend vara lækkar í verði, sé ástæðulaust að veita atvinnurekendum rétt til að lækka launagreiðslur. Í annan stað verða menn að játa, að vísitöluuppbætur á kaup hafa verið mjög ótryggar. Sé litið 10–15 ár aftur í tímann, kemur í ljós, að hver einasta ríkisstj., sem setið hefur á þessu tímabili, hefur með lagaboði skert vísitöluuppbæturnar. Vinstri stjórnin gerði þetta t.d. tvívegis, fyrst um 6 stig og síðar um 9 stig, og var að því komin að gera þetta í þriðja sinn, en stjórnin sálaðist úr kjarkleysi, áður en hún kæmi því í verk.
Ég vil því segja, að það sé miklu heiðarlegra gagnvart verkalýðnum að hafa hreinar línur í þessum málum og banna vísitöluuppbætur á kaup algerlega heldur en að láta verkalýðsfélögin treysta á umsamdar uppbætur, sem sífellt er verið að skerða eftir á. Verkalýðsfélögin hafa líka flest haft lausa samninga um nokkurt skeið og geta því tekið tillit til breytts viðhorfs að þessu leyti við nýja samningsgerð.
Þeir, sem nú formæla mest afnámi vísitöluuppbóta, hafa ekki alltaf verið sama sinnis áður. Í setningarræðu sinni á síðasta Alþýðusambandsþingi sagði forseti sambandsins, er hann ræddi um aðkallandi lausn efnahagsvandamálanna, m.a. þetta:
„Þriðja leiðin, sem bent er á, er einfaldlega sú að hætta að mæla kaup allra launastétta þjóðfélagsins með vísitölu og benda á, að þetta fyrirkomulag hafi illa gefizt og leiði til sífelldra víxlhækkana verðlags og kaupgjalds.“
Ekki andmælti forsetinn þessari leið einu einasta orði í sinni ræðu.
Í bréfi, sem þáverandi forsrh., Hermann Jónasson, ritaði Alþýðusambandsþinginu haustið 1958, segir svo orðrétt:
„Þegar gengið var frá löggjöf um efnahagsmál á síðasta vori, var gert ráð fyrir því, að endurskoða yrði reglur um kauphækkanir samkvæmt vísitölu í haust.“
Með endurskoðun er hér vitanlega átt við skerðingu eða afnám uppbótarinnar.
Í athugasemdum við lagafrv., sem forsrh. vinstri stjórnarinnar sendi þessu sama Alþýðusambandsþingi til umsagnar, segir svo:
„Þegar lögin um útflutningssjóð voru sett á s.l. vori, var það ljóst, að þau ákvæði um greiðslu kaupgjalds samkvæmt vísitölu, er 55. gr. laganna hafði að geyma, gætu ekki staðizt til frambúðar.“
Með þessu er átt við, að það geti ekki staðizt til frambúðar að skerða vísitöluna aðeins um 9 stig, heldur sé óhjákvæmilegt að ganga lengra. Í athugasemdum, sem fylgdu frv. um áðurgreind útflutningssjóðslög, segir enn fremur:
„Í sambandi við lausn efnahagsmálanna er því nauðsynlegt að taka sjálft vísitölukerfið til athugunar, þ.e. þá skipan, að allt kaupgjald og afurðaverð breytist sjálfkrafa með breytingu á framfærsluvísitölu.“
Af öllum þessum tilvitnunum má alveg ljóst vera, að þeir, sem nú fordæma harðast afnám vísitöluuppbótanna á kaupgjald, höfðu allmikið aðra afstöðu í þessu máli, þegar þeir sjálfir voru í valdaaðstöðu.
Sú vísitala, sem helzt ætti að miða kaupgjald við, væri þjóðhagsvísitala, sem byggðist á heildarverðmæti þjóðarframleiðslunnar. Þegar sú vísitala hækkaði, ætti það að koma fram í hækkuðu kaupi eða lækkuðu vöruverði. Þær kauphækkanir hins vegar, sem byggjast ekki á auknu framleiðsluverðmæti, eru í rauninni falskar og í eðli sínu ekkert annað en gengislækkun.
Þegar Alþfl. sat í stjórn á árunum 1956–1958 með framsóknarmönnum og kommúnistum, setti hann fram kröfu um hækkun ellilauna og örorkulífeyris um 20%. Þessari kröfu höfnuðu samstarfsflokkarnir algerlega. Það má þó segja Sjálfstfl. til hróss, að hann hefur í núverandi ríkisstj. gengið inn á kröfur Alþfl. um stórkostlega aukningu almannatrygginganna. Svo sem kunnugt er, hefur elli- og örorkulífeyrir nú hækkað um 44–60% og fjölskyldubætur í heild hækkað um 400–500%. Þó þykir stjórnarandstæðingum og þó einkum kommúnistum ekki nóg að gert og telja lítið til þessara hækkana koma. Væri hér um hugarfarsbreytingu hjá kommúnistum að ræða, en ekki sýndarmennsku, væri afstaða þeirra nú vissulega fagnaðarefni. Yfir því er þó hægt að gleðjast, að þeir gera margfalt meiri kröfur til núverandi ríkisstj. í þessum efnum en þeirrar ríkisstj., er þeir sjálfir áttu sæti í. Stjórnarandstæðingar tala um, að hinar stórauknu tryggingabætur séu aðeins sárabætur fyrir alþýðu manna til að mæta þeirri kjaraskerðingu, sem nú hafi dunið yfir. Ein af ástæðunum fyrir auknum tryggingum er að vísu sú að vega upp á móti hækkuðu vöruverði vegna gengisbreytingarinnar. En hins vegar mega menn ekki gleyma, að hækkunin hjá sumum bótaþegum er meiri en kjaraskerðingunni nemur, og þá ekki síður hinu, að þegar hin tímabundna og óhjákvæmilega lífskjaraskerðing er yfirunnin, munu hinar stórauknu bætur að sjálfsögðu haldast.
Núverandi ríkisstj. hefur beitt sér fyrir því að auka tekjustofna bæjar- og sveitarfélaga, en létta jafnframt nokkuð á útsvarsbyrði einstaklinganna. Eru þetta hvort tveggja mikil nauðsynjamál, sem snerta hag hvers einasta manns í landinu. Aðallega hefur þetta verið gert með því að láta hluta af söluskattinum renna til bæjar- og sveitarfélaganna, en að öðru leyti hefur það verið gert með því að heimila álagningu veltuútsvara á félagsmannaviðskipti samvinnufélaga, en þessi viðskipti voru áður algerlega útsvarsfrjáls. Telja stjórnarandstæðingar þetta vera hið mesta gerræði gagnvart samvinnufélögum, árás á samvinnuhreyfinguna í landinu o.s.frv. Hér er þó um herfilegan misskilning að ræða.
Útsvarsálagning á samvinnufélög hefur um margra áratuga skeið verið þannig að lögum, að útsvör hafa verið lögð á utanfélagsmannaviðskipti eftir sömu reglum og á kaupmenn og aðra atvinnurekendur á staðnum, þ.e.a.s. bæði tekjuútsvar og veltuútsvar hefur verið lagt á. Á félagsmannaviðskiptin, sem eru aðalviðskipti samvinnufélaganna, hefur hins vegar ekki mátt leggja neitt útsvar. Í þess stað hafa bæjarfélögin mátt leggja smávægilegan skatt á samvinnufélögin, svonefndan samvinnuskatt, sem nemur 2% af fasteignamatsverði þeirra húsa, sem samvinnufélögin nota til starfrækslu sinnar.
Breyt., sem útsvarslöggjöf ríkisstj. hefur í för með sér, er sú, að samvinnuskatturinn er felldur niður, en aftur á móti heimilað að leggja veltuútsvar á félagsmannaviðskipti. Öll veltuútsvör samkv. hinum nýju lögum, sem Alþ. væntanlega samþ., eru þó takmörkuð við vissan hundraðshluta veltu, en voru áður engum takmörkunum háð. Réttmæti veltuútsvara yfirleitt er að vísu umdeilanlegt, en svo sem tekjuþörf bæjar- og sveitarfélaga er háttað, er óhjákvæmilegt annað en leyfa álagningu þeirra.
Á veltuútsvarið er eðlilegt að líta sem nokkurs konar rekstrargjald eða þóknun fyrir ýmiss konar aðstöðu, er bæjarfélagið lætur atvinnufyrirtækjum í té, án þess að sérstök gjöld séu greidd fyrir. Þessi aðstaða er sama eðlis og jafnverðmæt fyrir öll fyrirtæki í sömu atvinnugrein, hvert sem rekstrarform þeirra er, hvort þau eru hlutafélög, samvinnufélög eða í einstaklingseign. Er því fyllilega réttmætt, að þau greiði öll veltuútsvar eftir sama skala á sama hátt og þau greiða nú önnur þess konar gjöld öll eftir sömu reglum, svo sem t.d. vatnsskatt og holræsagjöld.
Afstaða hvers og eins til spurningarinnar um það, hvort draga hafi átt úr hinum stórfelldu forréttindum samvinnufélaganna með því að auka útsvarsskyldu þeirra, hlýtur fyrst og fremst að mótast af því, hvort maður metur meira hagsmuni bæjarfélags síns eða hagsmuni kaupfélagsins, sem þar starfar. Frá sjónarmiði okkar Alþfl.-manna er valið auðvelt.
Hagur bæjarfélagsins er hagur allra bæjarbúa. Hagur kaupfélagsins snertir á hinn bóginn aðeins hluta af bæjarbúum. Þeir, sem vilja heimila samvinnufélögunum að skjóta sér að mestu eða öllu undan útsvarsálagningu, hljóta að gera sér ljóst, að það verður ekki gert nema á kostnað hvers einasta gjaldanda í viðkomandi bæjar- eða sveitarfélagi.
Tökum dæmi frá mesta samvinnubæ landsins, Akureyri. Verkamaður, sem verzlar við Kaupfélag Eyfirðinga, hagnast t.d. um 500 kr. á ári, samanborið við það, ef hann hefði verzlað við kaupmann. Svo verður þessi sami maður að borga 1000 kr. hærra útsvar en ella vegna útsvarsfríðinda kaupfélagsins. Er þá hagnaður hans af samvinnuviðskiptum vægast sagt orðinn ærið tvísýnn.
Samkvæmt lögum um samvinnufélög, er upphaflega voru sett árið 1921, var bæjarfélögum í stað útsvars á félagsmannaviðskipti heimilað að leggja á samvinnuskatt, er næmi 2% af fasteignamatsverði þeirra húsa, er samvinnufélögin nota til starfsemi sinnar. Þessi skattur var settur með fullu samþykki samvinnuhreyfingarinnar. Á þessum tíma var fasteignamatsverð húsa réttur mælikvarði á raunverulegt verðmæti þeirra. Síðan gerbreyttist þetta, einkum þó á stríðsárunum og á því verðbólguskeiði, er síðan hefur ríkt. Síðustu tvo áratugina hefur fasteignamatið þrátt fyrir breytingar aldrei verið nema lítið brot af verðmæti húseigna, en samvinnuskatturinn samt sem áður ávallt verið miðaður við þetta mat, að undanskildu þriggja eða fjögurra ára tímabili, þegar innheimta mátti skattinn með nokkru álagi, sem þó var algerlega ófullnægjandi. Það er því ljóst, að skattur samvinnufélaganna til bæjar- og sveitarfélaga hefur um langt skeið verið mörgum sinnum minni en forustumenn samvinnuhreyfingarinnar ætluðust til í upphafi.
Þeir samvinnumenn, sem sjá ekki, að hér hefur átt sér stað ranglæti, sem bæta þarf úr, hafa glatað því dýrmætasta úr samvinnuhugsjóninni. Þeim má líkja við sjófugl, sem setzt hefur á olíubrák og getur þar af leiðandi ekki hafið sig til flugs.
Við verðum að hafa ríkt í huga, að ákvæðið um útsvarsfrelsi samvinnufélaga var upphaflega aðeins sett til bráðabirgða. Á þeim tíma fengust samvinnufélögin eingöngu við almenna verzlun og sölu á framleiðsluvörum bænda. Nú nær starfsemi þeirra einnig yfir iðnrekstur, siglingar, tryggingastarfsemi o.fl., o.fl. Hér er því um mjög breyttar aðstæður að ræða. Hitt má okkur ekki heldur sjást yfir, að breytingarnar á útsvarslöggjöfinni hrófla ekkert við þeim rétti samvinnufélaganna að vera undanþegin tekjuútsvari af félagsmannaviðskiptum. Er það líka fyllilega sanngjarnt, svo sem eðli þeirra viðskipta er háttað.
Að breytingar á útsvarslöggjöfinni voru orðnar aðkallandi, sést bezt á því, að á undanförnum árum höfðu nokkur kaupfélög greitt hærri útsvör en þeim bar að lögum.
Forráðamenn þessara félaga sáu, að forréttindin voru svo stórfelld, að þeir gátu samvizku sinnar vegna ekki notfært sér þau.
Andstöðuflokkar ríkisstj. tala mikið um, að þungbærar álögur hafi verið lagðar á þjóðina. Í umr. hér í gærkvöld sagði Jón Skaftason frá því, að þessar álögur næmu samtals 1000 millj. kr. Næstur á eftir honum talaði svo Halldór E. Sigurðsson. Hann kvað álögurnar vera 1100 millj. Þetta met Halldórs var þó slegið von bráðar, því að næstur á eftir honum talaði Karl Guðjónsson, og hann sannaði auðveldlega, að álögurnar næmu alls 1250 millj. kr. Það, sem gaf Karli sigurinn í þessari hörðu samkeppni, var sú bráðsnjalla aðferð hans að reikna alla vaxtahækkunina, sem lendir á flestum þeim, sem skulda fé, sem álögur á þjóðina, en sleppti alveg að draga frá þann hagnað, sem tugþúsundir sparifjáreiganda í landinu hafa af vaxtahækkuninni, en þetta hvort tveggja nemur að sjálfsögðu svipaðri upphæð. Þessa reikningskúnst vöruðust framsóknarmennirnir ekki, og því var það Karl, sem gekk með sigur af hólmi í gærkvöld, en búast má við því, að met hans standi ekki lengi og kunni vel að verða slegið af einhverjum stjórnarandstæðingi hér í umr. í kvöld.
Þó að andstæðingarnir tali mikið um, að þungbærar álögur hafi verið lagðar á, virðist svo sem þeim þyki sjálfum ekki nóg að gert. Hér á Alþ. hafa þeir við afgreiðslu fjárlaga, með einstökum frumvörpum og með brtt. við frumvörp stjórnarinnar gert till. um útgjaldaaukningu fyrir ríkissjóð, sem nemur samtals yfir 500 millj. kr. yfir árið. Þeim hefur þó alveg láðst að gera grein fyrir, á hvern hátt ríkissjóður ætti að afla tekna til að mæta slíkum útgjöldum, en það yrði auðvitað ekki gert nema með nýjum álögum á þjóðina, sem svöruðu til gjaldanna. Stjórnarandstæðingar hafa því fullan vilja til, að því er bezt verður séð, að gera þær álögur, sem á þjóðina hafa nú verið lagðar, enn þá þungbærari. Sem dæmi um útgjaldaaukninguna, þar sem vitleysan gengur einna lengst, má nefna frv. frá nokkrum framsóknarmönnum í Ed., þar sem lagt er til, að ríkið gefi févana bændasjóðum samtals 160 millj. kr., eða sem svarar að meðaltali 26 þús. kr. á hvern bónda í landinu. Það er út af fyrir sig ágætt að vera rausnarlegur, en hætt er þó við, að landsfólkinu, sem býr í kaupstöðum og kauptúnum og væntanlega er ætlað að greiða þessar gjafir, þætti höfðingsskapurinn keyra nokkuð úr hófi.
Framsóknarmenn og kommúnistar hafa mikið staglazt á því, að nú sé verið að gera hina ríku ríkari og hina fátæku fátækari. Þó er þetta reyndar ekki undantekningarlaust hjá þeim. Í Þjóðviljanum 18. marz s.l. segir t.d. svo orðrétt:
„Eitt fyrsta verk þessarar stjórnar var að vonum stórfelld árás á bændur og verkamenn í landinu svo og á velflestan atvinnurekstur og verzlunarfyrirtæki.“
Tíminn sagði skömmu síðar í stórri fyrirsögn, að ríkisstj. hefði gert öllum stéttum eitthvað til miska. Með þessum ummælum og öðrum slíkum hafa stjórnarandstæðingar, án þess ef til vill að gera sér grein fyrir því, viðurkennt, að í raun réttri sé byrðunum réttlátlega skipt niður.
Núverandi ríkisstj. hefur markað alveg skýra og ákveðna stefnu til að leysa efnahagsvandamál þjóðarinnar. Framsfl. er hins vegar annaðhvort alveg stefnulaus í þessum málum ellegar hann lætur stefnuna ekki birtast nema í einhvers konar felumynd, þar sem öllu verður að snúa á haus til þess að rýna í rétta ráðningu. Til efnahagsmálanna hafði flokkurinn lítið annað að leggja en að kosin skyldi þingnefnd til að finna bráðabirgðaúrræði, en síðan skyldi leita varanlegra úrræða fyrir haustið. Framsfl. gaf þó á engan hátt til kynna, í hverju þessi úrræði ættu að vera fólgin að hans dómi. Enginn veit t.d., hvort Framsfl. var í hjarta sínu með eða móti gengisfellingunni, því að flokkurinn hefur tekið upp þá siðu að láta málefnalegar ástæður lönd og leið, en láta afstöðu sína markast af svokölluðum taktískum ástæðum, en þær eru í því fólgnar að vera yfirleitt á móti ríkisstj. í einu og öllu.
Um kommúnista gegnir nokkuð öðru máli. Flestir gera sér ljóst, hver þeirra raunverulega stefna er, þó að þeir sjálfir flíki henni að vísu ekki mikið. Stefna þeirra kom samt mjög skýrt fram í ræðu, sem Einar Olgeirsson hélt á Alþ. ekki alls fyrir löngu. Hann sagði, að efnahagsaðgerðirnar, svo sem gengisbreyt., vaxtabreyt., lækkun tekjuskatts og aukning almannatrygginganna, væru allar saman hégómamál. Hið einasta efnahagsmál, sem vert væri um að tala, væri að koma upp stóriðju á Íslandi fyrir rússneskt lánsfé til þess að vinna þar framleiðsluvörur handa Rússum. Þessi stefna þarf engra frekari skýringa við.
Framsóknarmenn og kommúnistar telja sig nú í orði kveðnu geta sætt sig við niðurfellingu tekjuskatts á almennar launatekjur þrátt fyrir fyrri afstöðu. Hins vegar telja þeir, að lækkun skattsins hjá hátekjumönnum hafi verið allt of rífleg og þar sé að finna eitt dæmi þess, að ríkisstj. geri meira fyrir hina ríku en fyrir hina fátæku. Þegar þessi mál eru rædd, sést stjórnarandstæðingum alveg yfir, að það er aðeins hluti af öllum hátekjumönnum á landinu, sem borga háa skatta, og það er áreiðanlega minni hlutinn. Meiri hlutinn eru menn, sem hafa með einhvers konar rekstur að gera og hafa því aðstöðu til að draga undan af tekjum sínum og borga því aðeins tiltölulega lága skatta. Hinir fáu, sem eru hátekjumenn samkvæmt skattframtölum, eru nær eingöngu launþegar, svo sem t.d. skipstjórar og menntamenn, og það er ekkert réttlæti í að skattpína þessa menn, sem margir hverjir vinna mjög nytsöm störf í þágu þjóðfélagsins. Hitt taka svo stjórnarandstæðingar ekki heldur með í reikninginn, að þær vörur og þjónusta, sem hátekjumenn nota í miklu ríkara mæli en láglaunamenn, hafa við efnahagsaðgerðirnar hækkað mun meira í verði en almennar nauðsynjavörur. Það er því síður en svo, að hátekjumönnum yfirleitt sé hlíft, heldur alveg þvert á móti.
Nú eru liðnir rúmlega 7 mánuðir frá kosningunum í haust. Alþfl. getur litið til baka yfir þetta tímabil með fögnuði. Sjaldan eða aldrei hefur flokkurinn getað komið fram jafnmörgum góðum málum á jafnskömmum tíma. Mikil leiðrétting hefur fengizt á reglunum um verðlagningu landbúnaðarvara, en það var eitt helzta baráttumál flokksins í kosningunum. Neytendur hafa nú jafnræði á við bændur um ákvarðanir á dreifingarkostnaði landbúnaðarvara, og sérstök skattlagning neytenda vegna halla á útflutningi búvöru er nú bönnuð. Fyrir nokkru lækkaði kjötverðið um á þriðju krónu kg til neytenda, án þess að heildarniðurgreiðslur væru auknar, og var sú lækkun bein afleiðing af baráttu Alþfl. í þessum málum. Þá hefur flokkurinn á þessu tímabili einnig komið í höfn tveimur mjög þýðingarmiklum baráttumálum sínum, þ.e. lækkun og afnámi tekjuskatts og mjög auknum almannatryggingum. Síðast, en ekki sízt, hefur flokkurinn átt hlut að því að koma á fót nýju efnahagskerfi, en ávaxta þess mun þjóðin njóta um langa framtíð. Þessu efnahagskerfi mega menn á engan hátt kenna um þá kjararýrnun, sem átt hefur sér stað í bili. Hún var óhjákvæmileg, við hvaða efnahagskerfi sem við hefðum búið, því að þegar til lengdar lætur, kemst enginn hjá því að borga skuldir sínar. Á hinn bóginn er það alveg í anda þessa kerfis, að þjóðin taki upp þær byrðar, sem fortíðin hefur á hana lagt, og skili þeim í áfangastað, en hætt sé að leysa vandamálin sífellt til bráðabirgða með því að velta byrðunum yfir á framtíðina.
Íslenzkur verkalýður getur verið þess fullviss, að hann getur tryggt sér aukinn kaupmátt launa, áður en langt um líður. Í fyrsta lagi munu skuldabyrðarnar smátt og smátt léttast og þar með álögurnar á þjóðina, svo framarlega sem árferði og aflabrögð verða með eðlilegu móti. Í öðru lagi mun sú hvatning til heilbrigðari rekstrarhátta, sem í efnahagskerfinu felst, gera atvinnurekendum fært, þegar frá liður, að greiða hærra kaupgjald en nú á sér stað. Hjá öðrum þjóðum hefur þetta sama efnahagskerfi leitt af sér aukinn kaupmátt launa um að jafnaði 2–3% á ári. Uppbóta- og styrkjakerfið, sem við höfum búið við um langt skeið, hefur ekki skilað neinum slíkum árangri. Það var því brýnasta hagsmunamál verkalýðshreyfingarinnar að varpa slíku kerfi fyrir borð.
Efnahagsaðgerðirnar eru hornsteinninn að öllum þeim kjarabótum, sem þjóðinni munu hlotnast í framtíðinni. Það verða eingöngu íslenzkar kjarabætur, en ekki kjarabætur fengnar að láni í austri eða vestri. Þess vegna verður þjóðin að fylkja sér um þessar aðgerðir og láta harmatölur hinna úrræðalausu sem vind um eyrun þjóta. — Góða nótt.