31.05.1960
Sameinað þing: 56. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3381 í B-deild Alþingistíðinda. (1635)

Almennar stjórnmálaumræður

Alfreð Gíslason læknir:

Herra forseti. Góðir hlustendur. Þjóðin öll stendur agndofa þessar vikurnar gagnvart hamförum hæstv. ríkisstjórnar í efnahagsmálunum, og menn spyrja hver annan, hvort stjórninni geti verið þetta sjálfrátt. Hún neytir allra bragða til að skerða lífskjör almennings sem mest og leggur ríka áherzlu á að framkalla samdrátt í atvinnu og viðskiptum. En ekki nóg með það. Í blindu ofstæki sínu skirrist þessi ríkisstj. ekki við að stofna sjálfum bjargræðisvegum þjóðarinnar í hættu og spilla markaðsmöguleikum hennar á erlendum vettvangi. Það er þetta, sem slær menn furðu, hvar í stétt eða flokki sem þeir standa. Hvað veldur þessu undarlega háttalagi stjórnarflokkanna tveggja. Sjálfstfl. og Alþfl.? Í hverra þágu er það gert að koma kreppu á í landinu?

Árásir þessara flokka á launastéttirnar og þá sérstaklega láglaunafólk eru að vísu ekki nein ráðgáta. Þær aðfarir eru ekki annað en liður í hagsmunabaráttu flokka, sem styðja og styðjast við fjármálavaldið í landinu. Stórkaupmönnunum og stóratvinnurekendunum er ótvíræður hagur í háu verðlagi og lágu kaupgjaldi og mörgum öðrum ráðstöfunum hæstv. ríkisstj. Með því er hún aðeins að hygla sínum sterkustu liðsmönnum, færa til fjármagnið í landinu, eins og Gylfi Þ. Gíslason, hæstv. ráðh., orðaði það. Með slíkri tilfærslu er stjórnin að gera hlut sinna gæðinga meiri en hann var og launþeganna að sama skapi minni. Þetta liggur í augum uppi. Hitt sýnist furðulegra, að valdhafarnir skuli ekki nema staðar við þetta mark, heldur æða áfram og stofna þjóðarbúskapnum í heild í vísan voða. Slíkt getur ekki verið gert í þágu neinna stétta þjóðfélagsins, heldur hljóta annarleg sjónarmið að valda því, og er þá komið að þættinum um ósjálfræði þessarar hæstv. stjórnar.

Nýlega las ég í tímariti, sem utanríkisráðuneyti Dana gefur út, að stjórn Suður-Kóreu hafi í febr. s.l. lækkað gengi gjaldmiðilsins þar í landi og að sú ráðstöfun hafi verið gerð samkvæmt fyrirmælum frá Bandaríkjunum. Þetta er engin stórfrétt, því að allur heimurinn veit, að Suður-Kórea er hjálenda Bandaríkjanna. Það var í sama mánuði, febr. s.l., sem gengi íslenzku krónunnar var lækkað, og sú ráðstöfun var einnig gerð í samræmi við fyrirmæli eða við skulum segja tilmæli frá Bandaríkjunum. Ísland og Kórea munu vera ólík um margt, en sitthvað eiga þau sýnilega sameiginlegt og þá helzt það, er Íslendingum ætti að vera ógeðfelldast.

Bandaríkin láta sig innanríkismál Íslands miklu varða og hafa gert síðustu tuttugu árin, enda eiga þau hér að eigin dómi mikilla hagsmuna að gæta, eins og í Kóreu og víðar. Þau taka þátt í íslenzkum stjórnmálum á sinn hátt og bak við tjöldin og leggja á það mikið kapp, að hér sitji að völdum menn, sem stórveldinu séu hliðhollir og eftirlátir. Bandarísk stjórnarvöld skipta sér af efnahagsmálum okkar sem öðru og hefur nú tekizt að þröngva upp á okkur efnahagslegri forskrift, sem notuð er um allar jarðir, þar sem þau ráða. Er í þeirri forskrift ekkert farið eftir aðstæðum á hverjum stað, heldur miðað við hagsmuni Bandaríkjanna. Gengi dollarans á að vera hátt, kaupgjald lágt, helzt engin viðskipti við þjóðir utan áhrifasvæðis Bandaríkjanna og þannig áfram í sama dúr. Nærtækt dæmi um áhrif þessarar forskriftar er það, að vegna verðfellingar krónunnar í vetur lækkar herkostnaður Bandaríkjanna hér á landi um tugi milljóna króna. Það er póstur, sem jafnvel stórveldi lætur sig muna um.

Lengi var búið að nudda í því við íslenzk stjórnarvöld, að gengi krónunnar yrði lækkað, kaupgjaldi haldið í skefjum og segi dregin saman á sviði framleiðslu og viðskipta, og þar kom, að nuddið bar árangur. Leiðtogar Sjálfstfl. og Alþfl. tóku verkið að sér og eru nú sem óðast að framkvæma það, en alþjóð að byrja að finna fyrir svipuólinni á baki sér.

Erlendar fjármálastofnanir með ýmsum nöfnum gæta hagsmuna Bandaríkjanna hér á landi, að svo miklu leyti sem stjórnarvöld þeirra gera það ekki beint. Ein þessara stofnana ber nafnið Efnahagssamvinnustofnun Evrópu. Forstjóri hennar hefur komið hingað oftar en einu sinni með forskrift handa okkur, síðast nú í haust. Efni forskriftarinnar má ráða af erindi, sem hann flutti hér og birtir í október-desemberhefti Fjármálatíðinda. Getur þar hver sem vill kynnt sér fyrirmælin, en í heild er ræðan gagnsýrð af tillitslausri heimtufrekju annars vegar og hins vegar af takmarkalausri fáfræði um öll grundvallaratriði íslenzkra efnahagsmála.

Hæstv. ríkisstj. ráðfærði sig við þennan erlenda mann og marga aðra af sama sauðarhúsi. Ég hef séð álitsgerð og kröfur eins þeirra, hagfræðiprófessors í Vesturheimi. Plaggið hefst á órökstuddri fullyrðingu um, að Íslendingar lifi um efni fram, og allt úir þar og grúir af missögnum og rangfærslum, en hverju máli skiptir það, niðurstaðan var fyrir fram gefin sú, að íslenzka þjóðin verði að lækka seglin og herða að sér sultarólina.

Þannig eru fyrirmælin, sem berast erlendis frá, og þau er hæstv. ríkisstj. nú að framkvæma. Ástæðan til þessara afskipta Bandaríkjamanna af okkar högum er fyrst og fremst ágirnd þeirra á landi okkar. Hér hafa þeir náð fótfestu, og henni vilja þeir halda. Þess vegna telja þeir sig þurfa að gera þjóðina sér sem háðasta. Efnalega sjálfstæð þjóð með blómlegan atvinnurekstur og víðtæk viðskiptasambönd í austri og vestri gæti fundið upp á öllum skollanum og jafnvel því að reka útlenda herinn burt og jafna herstöðvarnar við jörðu. Það er hægara að fást við þjóð í kreppuástandi. Hún lætur sér frekar segjast, einkum ef öðru hvoru falla molar af borði hinna ríku. Hæstv. ríkisstj. hefur sem kunnugt er þegar fengið 800 millj. kr. eyðslulán. Slíkt er líka bindandi.

Ég hef nú greint nokkuð frá afskiptum hins erlenda valds af efnahagsmálum okkar. En þau afskipti hafa því miður fallið í góðan jarðveg hjá ýmsum hérlendum mönnum. Hinir afturhaldssömustu í hópi kaupsýslumanna og atvinnurekenda auk ýmissa pólitískra ævintýramanna sjá sér leik á borði, og þeir brosa gleitt um þessar mundir. Þessir menn hafa hug á afturhvarfi til löngu liðinna ára, þegar láglaunafólk mátti sin einskis og lifði við sult og seyru, en fáein stórmenni í hverju plássi fleyttu rjómann. Það eru slíkir menn, sem nú fagna útlendri íhlutun um efnahagsmálin, og þeir eru, eins og sakir standa, valdamiklir í þessu landi.

Jarðvegurinn var einnig á annan hátt hentugur. Íhlutun Bandaríkjanna er ekki að hefjast nú, heldur hefur hún varað í nærri 20 ár. Allan þann tíma hafa íslenzkir ráðamenn verið vandir við að láta undan hverri ásókn. Það byrjaði 1941, þegar Ísland var knúið til að farga hlutleysi sínu og látíð biðja Bandaríkin um hervernd. Árið eftir voru Íslendingar neyddir til að fresta áformaðri lýðveldisstofnun, með því að Bandaríkin töldu það geta skaðað hagsmuní sína. Og þannig hefur áfram verið haldið æ síðan. Árið 1946 var Keflavíkursamningnum troðið upp á okkur, 1949 vorum við ginntir í Atlantshafsbandalagið, og 1951 var smiðshöggið rekið á með afsali íslenzkra landsréttinda og byggingu erlendra herstöðva.

Aftur og aftur hafa íslenzkir forráðamenn staðið frammi fyrir þjóðinni og strengt þess heit, að ekki skyldi lengra gengið í þjónkun við stórveldið, og jafnoft hafa þeir orðið að éta ofan í sig stóryrðin. Ég skal hér aðeins minna á eitt dæmi. Í útvarpsumræðum á Alþingi 18. marz 1949 skýrði þáv. utanrrh. frá þeirri skoðun ríkisstj., að of dýru verði væri keypt dvöl hermanna hér á friðartímum fyrir það öryggi, sem við slíkt fengist. Kvaðst þessi ráðh, ásamt tveim samráðherrum sínum þá nýlega hafa lýst því yfir í áheyrn utanrrh. Bandaríkjanna, að ekki kæmi til mála, að útlendur her fengi að hafa aðsetur á Íslandi á friðartímum né yrðu þar leyfðar erlendar herstöðvar. Með þessum fyrirvara, sem Bandaríkjastjórn féllst á, voru Íslendingar látnir ganga í Atlantshafsbandalagið. En tveim árum síðar hafði útlendur her fengið aðsetur á Íslandi og þar leyfðar herstöðvar. Hin fögru fyrirheit voru með köldu blóði svikin. En hvorra skömmin er meiri, Bandaríkjastjórnar eða hinna íslenzku valdamanna, skal ég ekki dæma um. Eftir stóð íslenzka þjóðin með sárt enni, svikin, blekkt og ringluð.

Bandarísk yfirvöld telja vafalaust núverandi stjórnarflokka á Íslandi sér hliðholla og trygga öðrum flokkum fremur, enda verðskulda þeir það álit. Þeir hafa brugðizt vel við öllum fyrri málaleitunum Bandaríkjanna, og nú síðast hafa þeir sameinazt um að framkvæma þeirra óskir um lausn íslenzkra efnahagsmála. Það er því ekki ástæða til að vantreysta þeim.

En Bandaríkin eiga mýmörg áhugamál hér á landi, þar sem ekkert virðist þeim óviðkomandi. Eitt þeirra er fiskveiðilandhelgin. Í því máli berst stórveldið eins og ljón gegn hagsmunum okkar, og er atlaga þess gegn okkur á síðustu Genfarráðstefnu enn í fersku minni. Fulltrúi Bandaríkjanna þar, Mr. Dean, hafði í heilt ár fyrir ráðstefnuna verið látinn ferðast til 50 þjóðlanda þeirra erinda að spilla fyrir 12 mílna fiskveiðilandhelginni. Þetta og allt annað var gert til að hjálpa Bretum gegn okkur Íslendingum. Tilræði Bandaríkjanna við hagsmuni okkar mistókst á sjóréttarráðstefnunni. En enginn skyldi ætla, að baráttunni sé lokið með því. Nú er hún háð á bak við tjöldin, og eftir öllum sólarmerkjum að dæma gera Bretar og Bandaríkjamenn sér vonir um, að hæstv. ríkisstj. Íslands muni semja, þ.e.a.s. slaka til í landhelgismálinu. Beðið er eftir því, að þingið ljúki störfum. Á meðan sveima brezk herskip úti fyrir ströndum landsins og halda togurunum í skefjum. Brezkir togaraeigendur refsa skipstjórum sínum með brottrekstri, ef þeir sigla inn fyrir 12 mílna mörkin. Þess er vandlega gætt að espa ekki íslenzku þjóðina upp einmitt nú, á meðan ríkisstj. undirbýr uppgjöfina. Ég játa það hreinskilnislega, að ég ber kvíðboga fyrir úrslitum þessa lífshagsmunamáls okkar í höndum hæstv. ríkisstj. Brtt. hennar á Genfarráðstefnunni sýnir vel, hversu illa henni er trúandi fyrir þessu mikilsverða máli, hversu gálauslega hún leikur með það og hversu annt henni er um að þóknast andstæðingum okkar í málinu. Af eintómri þjónustusemi við þá er hún líkleg til að breyta vísum sigri okkar í ósigur nú í sumar og þar með stöðva alla frekari framsókn okkar í landhelgismálum um ófyrirsjáanlega framtíð.

Þetta var um landhelgina. Þar taka Bandaríkin afstöðu gegn minnstu bandalagsþjóðinni til þess að geðjast og vinna hylli þeirrar sterkustu, Breta. Það er skýring þeirrar afstöðu gagnvart okkur.

Nú mætti spyrja: Hvernig stendur á þessari stöðugu afskiptasemi Bandaríkjanna um íslenzk mál? Svarið við þeirri spurningu er ofur einfalt. Bandaríkin eru að gæta sinna hagsmuna sem stórveldis í heiminum.

Á Íslandi þykjast þau þurfa að hafa herstöðvar og her og trausta aðstöðu til allra umsvifa. Þess vegna reyna þau að gera þjóðina sér háða og umfram allt að styðja hverja þá ríkisstj., sem þeim reynist auðsveip og eftirlát. Þetta er allur leyndardómurinn. Og Ísland er svo sem ekki eina smáríkið, sem fyrir þessu verður. Í Kóreu studdu Bandaríkin árum saman alræmdan einræðisherra einungis af því, að hann var þjált verkfæri í hendi þeirra. Í Tyrklandi er nýbúið að steypa einræðisstjórn, sem Bandaríkin héldu við völd í lengstu lög. Í síðasta Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins er rætt um ástandið í Tyrklandi undir fyrirsögninni: „Ekki með öllu ólíkt.“ Þar er getið ummæla öflugasta stjórnarandstæðingsins þar í landi, og tilgreini ég orðrétt úr blaðinu þetta, með leyfi hæstv. forseta: „Hitt lét hann uppi ekki alls fyrir löngu, þegar honum, aldrei þessu vant, var leyft að halda blaðamannafund, að ríkisstj. væri haldið uppi með bandarísku fé. Bandaríkjamenn hafa flugstöðvar í landinu og hafa verið ósínkir á fé til ýmiss konar framkvæmda. Hann taldi, að eins og á stæði væru þessar fjárveitingar íhlutun um stjórnmál landsins, því að án þeirra gæti stjórnin með engu móti hjarað.“ Þannig er frá sagt í Morgunblaðinu, og þykir bréfritara ástandið í Tyrklandi og á Íslandi ekki með öllu ólíkt.

Þjóðarbúskapur okkar er vissulega mikilsvert mál, enda sígilt umræðuefni. En það er fleira nauðsynlegt. Þannig þyrftum við að ræða utanríkismálin miklu meir en gert er, en á því virðist einhver undarleg tregða hér. Það ber oft við á Alþingi, þegar imprað er á utanríkismálum, að þá rölta út úr þingsalnum þeir ráðherrar og aðrir, sem mest hafa verið við þau mál riðnir á undanförnum árum. Er einna líkast því, sem þessum mönnum séu utanríkismál hrein feimnismál, er ekki sæmi að ræða opinberlega, og máske er þeim í þessu nokkur vorkunn.

Við Íslendingar höfum í rauninni aldrei haft neina grundvallaða stefnu í utanríkismálum. Við tókum þessi mál úr höndum Dana fyrir 20 árum og höfum síðan í verki trúað Bandaríkjum Norður-Ameríku fyrir þeim. Sá trúnaður hefur hvorki orðið þjóðinni til gagns né vegsauka. Ísland var látið kasta hlutleysinu á glæ, og er það upphaf þeirrar ógæfu, sem síðan hefur hvílt á þessum mikilsverðu málum okkar. Við verðum að endurheimta hlutleysið og móta síðan á því sjálfstæða utanríkisstefnu, er sé í samræmi við lífsviðhorf og þarfir íslenzku þjóðarinnar. Við eigum að fylkja okkur við hlið annarra hlutlausra ríkja í heiminum. Þar getur Ísland sómt sér, en ekki í stríðsbandalagi. Finnland, Svíþjóð, Austurríki, Sviss og Írland eru meðal hlutlausra ríkja, og þau gæta hlutleysis síns eins og sjáaldurs auga síns, enda njóta þessar þjóðir virðingar alls heims.

Í Atlantshafsbandalaginu er Ísland eins og illa gerður hlutur. Þangað átti það aldrei erindi, enda vélað inn í það af framandi öflum, og hefur þjóðin þegar fengið að súpa seyðið af því. Aldrei hafa forustuþjóðir þessa bandalags, Bretar og Bandaríkjamenn, níðzt eins á Íslendingum og síðan Atlantshafssamningurinn um gagnkvæma hjálp og vernd var undirritaður. Öll veigamikil ákvæði þessa samnings hafa þessar þjóðir brotið og margbrotið gagnvart okkur. Við höfum ótal ástæður til að hætta hlutdeild í þessu bandalagi, sem kallað er varnarbandalag, en reynist skálkaskjól vissum stórþjóðum til að skara eld að sinni köku á kostnað smærri þjóða.

Fyrir fáum dögum minnti ég hér í sameinuðu þingi á ummæli utanrrh. Svía, ég vil leyfa mér að endurtaka þau. Þessi ráðh. var staddur í Reykjavík fyrir fáum árum og sagði þá m.a. þetta í blaðaviðtali: „Hlutleysi í átökum stórveldanna er grundvöllur sænskrar utanríkisstefnu, og það er skoðun okkar, að hernaðarbandalög auki hættu á árekstrum milli þjóða. Svíar gengu ekki í Atlantshafsbandalagið, af því að þeir töldu það rangt, og sú afstaða þeirra er óbreytt.“ Þessi er skoðun Svía, og hún er sú eina, sem sæmir friðsamri smáþjóð.

Íslenzk örlög hafa verið tengd Bandaríkjunum órofaböndum undir því yfirskini, að þetta stórveldi væri brjóstvörn lýðræðisins í heiminum. Það er þó ekki nema hálfur sannleikur. Bandaríkin eru að vísu lýðfrjálst land, en þau hafa nú um árabil fylgt utanríkisstefnu, sem ber ekki lýðræðisást sérlega fagurt vitni. Þessa voldugu lýðræðisþjóð henti það ólán í lok síðustu heimsstyrjaldar að verða fyrst þjóða til að beita kjarnorkuvopni. Að nauðungarlausu breytti hún stríði úr átökum milli herja í milljónamorð óbreyttra borgara. Fordæmið var skapað, og enginn veit um afleiðingarnar. „Með sprengjunni á Hirósjíma dó út virðingin fyrir manninum og þar með lýðræðið í heiminum.“ Þessi orð á háttsettur Ameríkumaður að hafa sagt, er honum barst fregnin um sprenginguna. Þetta er þung sök, sem Bandaríkin eiga eftir að bæta fyrir.

Síðan þetta gerðist, hefur þessu stórveldi orðið á hver skyssan af annarri í alþjóðamálum. Gagnstætt flestum öðrum þjóðum fást Bandaríkin ekki til þess enn í dag að viðurkenna hina raunverulegu stjórn Kínaveldis og meina þannig fjölmennustu þjóð heims aðgang að Sameinuðu þjóðunum. Eykur þetta undarlega tiltæki í vaxandi mæli víðsjár í heiminum, sem vonlegt er.

Þá hafa Bandaríkin og lagt kapp á að lyfta undir einræði og styðja einræðisstjórnir í hverju landinu af öðru, bæði í Evrópu og Asíu, sínum hagsmunum til framdráttar, en frelsi og lýðræði til tjóns. Um ýtni þeirra í garð smáþjóða er Ísland talandi tákn. En öll sýnir þessi upprifjun staðreynda það, að lýðræðisást stórveldisins eru settar býsna þröngar skorður.

Danmörk var meðal þeirra smáríkja, sem villtust í Atlantshafsbandalagið. Þar mun nú farið að gæta vaxandi gagnrýni á þeirri aðild og jafnvel tæpt á, að úrsögn úr bandalaginu sé orðin nauðsynleg öryggis þjóðarinnar vegna. Hefur verið á það bent, að forsendurnar fyrir inngöngu Danmerkur í bandalagið séu úr sögunni með tilkomu vetnissprengjunnar og hinna langdrægu, markvissu flugskeyta. Engin þjóð og ekkert hernaðarbandalag geti eftirleiðis staðið við skuldbindinguna um að vernda og hjálpa bandalagsþjóð, sem sprengjusendingu fær, og því hljóti samningar um gagnkvæma hjálp í komandi styrjöld að vera minna en skóbótarvirði. Á þessa leið eru Danir byrjaðir að ræða þetta vandamál. Hvað mættum við Íslendingar þá gera?

Af skiljanlegum ástæðum hef ég gerzt fjölorður um Bandaríkin, svo mjög koma þau við sögu hér. Ég hef borið fram aðfinnslur. Mér er ekki í nöp við Bandaríkjamenn, síður en svo. Ég dái þá fyrir margra hluta sakir og tel okkur Íslendingum ávinning að því að ástunda vinsamleg samskipti við þá. En við eigum ekki að lúta í duftið fyrir þeim, eins og við nú erum látnir gera. Með því öðlumst við aldrei þá vináttu og virðingu, sem við æskjum að njóta hjá þessari voldugu þjóð. Við eigum að segja okkur úr Atlantshafsbandalaginu, með því mæla öll rök. Við eigum að vísa erlendum her úr landinu, það er okkur lífsnauðsyn, einkum ef til vopnaðra átaka kæmi. Við eigum að lýsa yfir hlutleysi landsins. Hlutleysisstefnan ein sæmir fullvalda smáþjóð. Það má vel vera, að Bandaríkin styggist við okkur í bili, verði það gert, sem gera þarf, en sú þykkja verður tæpast langvinn. Í öllu falli verður fæðin, sem á okkur verður lögð fyrir að standa á réttinum, léttbær í samanburði við þau örlög, sem óhjákvæmilega bíða þess, sem frelsinu fargar.

Hlutlaust Ísland á veglegu hlutverki að gegna meðal þjóða. Óháða afstöðu sína notar það í þágu sátta, afvopnunar og friðar og til stuðnings þeim smáþjóðum, sem rangsleitni eru beittar. Hlutlaust Ísland ástundar vináttu við allar þjóðir.

Herra forseti. Heiðruðu hlustendur. Við skulum berjast gegn allri erlendri íhlutun um mál okkar og afmá þann smánarblett, sem herstöðvarnar og hernaðaraðildin eru á þjóð okkar. Þokum til hliðar þeim mönnum og þeirri ríkisstj., sem telja hlýðni við NATO sitt æðsta boðorð.