28.11.1959
Neðri deild: 5. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3451 í B-deild Alþingistíðinda. (1668)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir ofl.

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Það er sannarlega ánægjuefni fyrir mig að heyra nú, að framsóknarmenn hafa sérstaklega mikinn áhuga fyrir því að rétta hlut bændastéttarinnar. Þess gerist líka þörf eftir meðferðina á henni í vinstri stjórninni, þegar framsóknarmenn réðu mestu um mál hennar. Ég hugsa gott til þess að njóta stuðnings þeirra til þess að lagfæra það, sem gleymdist að lagfæra og fór úr skorðum, á meðan framsóknarmenn höfðu öll völd í málefnum landbúnaðarins.

Í gær var gerð fsp. hér út af brbl. og aftur í dag. Hv. framsóknarmenn virðast ekki gera sér ljóst, hvernig þingsköpin eru, að þegar um fsp. er að ræða, þá ber að leggja þær formlega fram til þess þá að fá við þeim fullnægjandi svör, en ekki á þann hátt, sem nú hefur verið gert, utan dagskrár. Ég get hins vegar gert hv. 1. þm. Norðurl. v. það til þægðar og öðrum hv. þm., sem óska eftir svari við fyrirspurnum hans, að minna hv. þm. á, að við sjálfstæðismenn erum vel þess minnugir, hvernig yfirlýsingar okkar voru í haust í sambandi við brbl. Það var þess vegna alveg óþarfi fyrir hv. þm. að vera að lesa þær hér upp. Ég get einnig upplýst hv. þm. um, að ég hef átt tal við framleiðsluráð landbúnaðarins um þessi mál og mun halda þeim samtölum áfram. Ég vil hins vegar segja, að fyrirspurn á að bera fram á eðlilegan, réttan hátt. Úr því að svo er ekki, verður tækifæri í sambandi við þá þingfrestunartill., sem hér hefur verið lögð fram. Ég tel því ekki þörf á því við þetta tækifæri eða í dag að svara fyrirspurnum hv. þm. nánar en þetta og tel, að hann geti látið sér þetta nægja.

Ég veit, að bændur landsins treysta því og reikna með því, að þeirra hlutur verði bættur undir forustu núv. ríkisstj. og að þær skerðingar, sem þeir urðu fyrir undir forustu Framsfl., verði þeim bættar, ekki kannske allt í einu, en með breyttum stjórnarháttum verði því ekki gleymt að sjá hagsmunum allra stétta í landinu sem bezt borgið. Bændur eru þess minnugir, að hv. framsóknarmenn innleiddu alveg nýja reglu í sambandi við landbúnaðarmálin vorið 1958, þegar 55% gjaldið var lagt á rekstrarvörur atvinnuveganna, að hv. framsóknarmenn gleymdu því þá að tryggja, að bændur fengju peninga til þess að standa undir þessum sköttum, eins og var að mestu leyti tryggt varðandi aðra atvinnuvegi.

Nú er auðheyrt, að það eru alger sinnaskipti orðin hjá hv. framsóknarmönnum hvað þetta snertir og að nú hafa þeir áhuga á því að lagfæra misfellurnar, lagfæra hag bænda, og það er ekki nema ánægjulegt og gott, því að sannarlega er þörf á því, að allir stjórnmálamenn geri sér ljóst, að það þarf að hafa auga með öllum stéttum þjóðfélagsins, þegar byrðar eru lagðar á landsmenn.