05.12.1959
Neðri deild: 13. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í B-deild Alþingistíðinda. (167)
30. mál, bráðabirgðabreyting og framlenging nokkurra laga
Frsm. minni hl. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Í því stjórnarfrv., sem hér liggur fyrir, eru ákvæði fimm laga, sem nú eru í gildi. Þeim hefur verið steypt saman í eitt frv. Áður hefur þetta verið þannig um mörg ár, að ár hvert hafa þessi lög verið framlengd um eins árs skeið í senn, og þannig var það einnig nú, að ríkisstj. lagði fram í upphafi þings fimm lagafrv. um þetta efni, shlj. frumvörpum, sem lögð hafa verið fyrir á undanfarandi þingum. En eins og ég hef áður nefnt, gerist það nú, eftir að meðferð þeirra frv. er hafin, að stjórnin steypir þessu saman öllu í eitt frv., og við, sem skipum minni hl. fjhn., teljum þetta óeðlilega og óviðeigandi aðferð við afgreiðslu málanna, eins og fram er tekið í okkar nál. á þskj. 62.
Um þetta talaði hæstv. fjmrh. nú fyrir skömmu og sagði, að það hefði áður komið fyrir, að mörgum lögum væri breytt með einum lögum, og nefndi dæmi um það. Það mun rétt vera. Þess má finna dæmi, og fyrst mun þetta hafa verið upp fundið skömmu eftir 1930. Þá var með einum lögum, sem ég held, að hafi heitið lög um bráðabirgðabreyting nokkurra laga, frestað framkvæmd nokkurra laga, sem í gildi voru og höfðu útgjöld í för með sér fyrir ríkissjóð. Þau lög, sem þar var verið að breyta eða fresta framkvæmd á, voru um málefni, sem heyrðu undir fjmrn., og þegar þetta gerðist eða þessi aðferð var fyrst upp tekin, þá var fjmrh. hér á landi Ásgeir Ásgeirsson, núverandi hæstvirtur forseti Íslands. Þessi lög um bráðabirgðabreyting nokkurra laga voru framlengd fyrir eitt ár í senn um allmörg ár þar á eftir og einnig eftir að sá hæstv, ráðh. lét af fjármálaráðherraembætti. En ég held, að ég muni það rétt, að það sé alllangt liðið, síðan þau lög féllu úr gildi, og þetta hefur ekki verið gert, það hefur ekki verið farið inn á þessa götu alllengi, fyrr en nú að hæstv. stjórn flytur þetta frv., sem hér liggur fyrir.
Það, sem við í minni hl. fjhn. teljum þó sérstaklega athugavert við þessa meðferð þingmálanna nú, er það, að þetta er einn þátturinn í baráttu stjórnarinnar fyrir því að koma fram þingfrestun nú þegar, víkja þingmönnum frá störfum á Alþ., frá athugun og afgreiðslu margra mála, sem þegar liggja fyrir þingi, og full þörf er á að sinna og afgreiða a.m.k. sum þessaxa mála, áður en jólahlé hefst. Þetta teljum við, eins og ég hef áður tekið fram, sérstaklega aðfinnsluvert.