11.02.1960
Efri deild: 18. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3545 í B-deild Alþingistíðinda. (1723)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir ofl.
Forsrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Ég skal vera stuttorður, enda er nú ekki fyrst og fremst þetta mál hér á dagskrá, og mér ber auk þess fremur að vera við umr. um efnahagsmálin, sem fara nú fram í hv. Nd., en það er það mikla mál, sem við erum að glíma við þessa dagana og ég hef þann heiður að flytja fyrir hönd ríkisstj.
Út af því, sem hv. 2. þm. Vestf. (HermJ) sagði, vil ég aðeins segja það, að það er náttúrlega örðugt að ganga úr skugga um, að allir séu sammála um efni skýrslu, sem kynni að vera gefin út af ríkisstj., því að jafnvel innan sömu flokka greinir menn stundum á í skoðunum um mikilvæg mál, og það er tæplega hægt að gera þá meginkröfu, sem hann gerir, að það verði að vera alveg ágreiningslaust allt, sem í skýrslunni stendur, ef á að vera heimilt að gefa hana út. Hitt get ég fremur skilið, að hann segir, að það sé ekki rétt að gefa út svona skýrslur nema allir, sem eiga í þeim hlut, vilji viðurkenna þann málflutning, sem við er hafður í skýrslunni. En ég get þá líka staðhæft, að allir þeir, sem hafa beinan og óbeinan hlut átt að þessari skýrslu, eru efnislega algerlega sammála hverju orði, sem þarna er flutt. Þetta er grg. frv. Fyrirsagnirnar — það kann að mega finna eitthvað að þeim, það finnst mér nú aukaatriði, en um sjálft efni málsins, skýrsluna, er enginn ágreiningur á milli þeirra, sem á henni bera ábyrgð eða að henni hafa unnið. Og varðandi þau höfuðádeiluatriði, sem hv. þm. beindi að stjórninni, segi ég það, að ég hygg ekki, að það hneyksli neinn, ekki heldur svo reyndan stjórnmálamann sem hann er, að hér sé sagt, að ný stefna sé mörkuð. Við erum með þessari stefnu, ef tekst að framkvæma hana, að snúa við af braut uppbótakerfisins, sem við höfum gengið á, hann og ég sameiginlega og raunar flestir aðrir, alllengi, svo að það eru alger straumhvörf, ef þetta verður framkvæmt. Það kann að vera, að hann greini á við mig um, hvort sá grundvöllur, sem við stóðum á, er heilbrigður. Ég tel það ekki. Ég tel, að við höfum alveg verið í feninu og ekki getað fótað okkur þar lengur. Við sjáum það miklu betur nú en við gerðum, þegar við sameiginlega fyrir 10 árum lögðum út á þessa hættulegu braut uppbótanna, og mér dettur ekki í hug, að það sé hans braut fremur en mín. Ég hugsa, að ég hafi átt meiri þátt í að leggja inn á brautina heldur en hann, en hann var mér þó alveg samþykkur um það, sem þá var gert.
Ég hef ekki sagt, að bótakerfið sé afnumið. En það er náttúrlega ekki sama, hvort við notum 1400 millj. í þessu skyni eða hvort við forðum bændum frá því mikla böli, að hætt sé að greiða niður framleiðsluvöru bændanna, sem auk þess mundi náttúrlega, eins og nú er ástatt, hafa m. a. þær afleiðingar, að börnin gætu ekki fengið mjólk nema að mjög takmörkuðu leyti.
Hv. þm. þykir ofmælt, að tekjuskattur sé felldur niður. Það er rétt, hann er ekki felldur niður. Af hátekjumönnum er hann ekki felldur niður. En hann er felldur niður af öllum almennum launatekjum, eins og tekið er fram í stefnuskrá ríkisstj. Þannig greiða hjón með 3 börn engan tekjuskatt af 100 þús. kr.
Það voru nokkur stóryrði í ræðu hv. þm., sem ég sé enga ástæðu til að svara, enda var það miklu minna en hann hafði lært af hinum siðferðisfullkomna manni, siðferðispostulanum, hv. 3. þm. Norðurl. v. (ÓlJ), sem margir brosa að vegna þess, hversu hátíðlega hann tekur sjálfan sig.
Ég hélt ég þyrfti nú ekki að vera að upplýsa þennan mann um það, hverjir eru höfundar þessarar skýrslu. Auðvitað ber ríkisstj. alla ábyrgð á henni. Hún er höfundur skýrslunnar. Þetta eru hennar skoðanir, sem þarna koma fram. En þær eru studdar í öllum aðalefnum og þær beinlínis standa á grundvelli þeirrar þekkingar, sem hagfræðingarnir hafa miðlað okkur.
Hv. þm. hneykslast mjög á því, að ég get ekki alveg upplýst í dag, hvað bókin kostaði. Ég efast um, að hann hefði sjálfur vitað það í mínum sporum, því að hann hefur verið að láta háskólann gefa út eða gefið sjálfur út sínar eigin bækur án þess að vita fyrir fram, hvað þær mundu kosta.
En með hvaða heimild, — og það var þýðingarmesta spurningin, — með hvaða heimild er skýrslan prentuð? Rétt eins og það hafi aldrei komið fyrir, að nein ríkisstj. hafi varið fé úr ríkissjóði án heimildar. Ég man nú ekki sannast sagna, hvað fjáraukalögin eru há árlega, en þessi síðustu, sem birt hafa verið fyrir árið 1956, sem ég hef hér, nema 113 millj. kr., fyrir það eina ár. Það er til viðbótar við þau gjöld, sem veitt eru í fjárlögum 1956. Þá voru veittar kr. 113212982,48 til gjalda þeirra, sem tilfærð eru í 2. gr. Það ætti því engum að þurfa að koma á óvart, að ríkisstj. hafi ekki fyrir fram samþykkt fjárlaga. Það er eins og annað, að þessi hv. þm. með sinni ágætu þekkingu, sem ég dreg ekki í efa á lagasviðinu, hefur ekki enn þá nægjanlega gefið sér tíma til að kynna sér margt, sem að hans núverandi störfum lýtur, og það virðist alveg koma honum á óvart, að nokkurn tíma sé greitt nokkuð úr ríkissjóði án fyrirframheimilda. Ég man t.d. eina af mínum syndum. Ég held ég hafi verið forsrh., þegar Skálholt var vígt. Þá var haldin veizla af einum hæstv. þáv. framsóknarráðherra. Hún kostaði á annað hundrað þús. kr. Okkur láðist að kalla saman aukaþing til þess að spyrja, hvort við mættum brúka þessa peninga. Nei, það má kannske finna að þessari sérstöku fjáreyðslu vegna eðlis hennar frá sjónarmiði stjórnarandstæðinga, en að láta sem það sé einhver goðgá, að fé sé án fyrirframheimildar greitt úr ríkissjóði, það get ég ekki talið eðlileg rök af hendi lagaprófessors.
Ég gat nú ekki annað en brosað. Mér varð á að vitna til áðan, að Framsfl. hefði gert eitthvað. Þá flaut nú fyrst yfir hjá þessum hv. þm., að bera sig saman við fordæmi Framsfl. Það fannst honum bara að tala alveg eins og götustrákur, hreint eins og götustrákur. Ég hef margviðurkennt, að fordæmi Framsfl. er á mörgum sviðum til viðvörunar, en ekki til eftirbreytni. En það hlægir mig, þegar þessum hv. þm. þykir það einhver goðgá að leyfa sér að halda, að einhvers skjóls sé að leita í fyrri gerðum ríkisstj., ef í ríkisstj. eru framsóknarmenn. Þeir séu svo berir að misbrestum í sínum aðgerðum, að það sé alveg hrein fjarstæða, að nokkur stjórn megi taka þá sér til fordæmis. Og ég skal reyna að hafa þetta hugfast, að muna það, að a.m.k. að hans dómi má alls ekki nefna Framsfl. frekar en það væri fjandinn sjálfur.
Ég held, að það hafi verið hann, þessi hv. þm., sem sérstaklega benti á, að skýrslan um greiðsluhallann væri mjög villandi. Hún er að einu leyti villandi, sem ég efast um að hann hafi gert sér grein fyrir, en er mjög þýðingarmikið. Þar eru allar tölur miðaðar við, að dollarinn væri 16 kr. Þess vegna er greiðsluhallinn í krónum, sem við höfum verið að tala um, nærri helmingi minni en hann ætti að vera, svo að þjóðin fengi rétta mynd af, hve hræðilegar greiðsluhallinn er. Þar er alltaf miðað við 16 kr. En hann veit sjálfur eða honum bæri að vita það, að ef þessu er breytt í meðalgengi innflutnings og útflutnings og verðlag á dollaranum í innflutningi og útflutningi eins og Framsóknarstjórnin skildi við, þá má hækka þessa tölu um 80–90% , svo að að svo miklu leyti sem þessi hv. þm. er að tala um villandi myndir þarna, þá liggja þær í því, að dollarinn er reiknaður á 16 kr., í staðinn fyrir að meðalgengið er yfir 29 kr. í innflutningi og útflutningi, eins og það hefur verið og er í dag.
Að lokum sagði þessi hv. þm., að það mundi nú sjálfsagt margt sæmilegt um mig sagt, þegar ég væri dauður. Ég vildi nú heldur, að hann vildi byrja strax að segja eitthvað af því, sem honum finnst. Ég finn það, að hann hefur hreint ekki svo mikla skömm á mér, eins og sumir aðrir. En ég segi honum að gæta sín gegn ofmati á mér. Ég er enginn risi í einu né neinu. En hann má ekki í alvöru halda, að minn dómur velti á því, hvað hæstv. núv. viðskmrh. hafi einhvern tíma sagt um mig, frekar en hans manngildi verður fundið út úr mínum orðum, — eða kannske mitt af því, sem hv. þm. sagði um mig, þó að hann væri góður í minn garð, eða t.d. manngildi hæstv. fyrrv. forsrh., sem þarna situr, á því, sem ég hef sagt um hann — eða hann um mig. Nei, það er staðreynd, sem allir vita, að hér á þingi eru menn taldir vera góðir vinir og vildu fegnir kannske margt fyrir hvern annan gera. En það eru fáir, sem unna hinum sannmælis, þegar þeir eru að skammast eða rífast á þinginu, svo að mér finnst það nú eitt, sem muni venjast af þessum hv. þm., að halda, að manngildið finni hann í þingtíðindum með því að lesa yfir, hvað andstæðingarnir segja hver um annan. Ég hygg, að manngildið geti þeir fundið, þess manns, sem um er að ræða, og líka þess manns, sem er að ræða illa um náungann, með því að sjá, hvernig við hugsum hver um annan og hvað við mundum gera hver fyrir annan, ef hinum lægi á. Það er til skammar á Alþingi, hvað menn spara — ja, ég segi ekki lofið, en rétt mat á náunganum. En ég hygg, að það sé einstakt aðalsmerki á okkur Íslendingum, að þrátt fyrir þetta, þessar ofsaskammir, sem eru blettur á þinginu, þá unnum við hver öðrum sannmælis, — ég tala nú ekki um þegar fáir heyra eða þegar maður hugsar sjálfur, — og viljum allt það bezta.
Ég verð svo að láta þessi orð nægja hér og ætla nú að hlýða á umr. um efnahagsmálin. Ég mun hins vegar koma inn, ef ég heyri hér þrumur eða sé eldingar, svo að ég geti þá komið og tekið þátt í leiknum áfram.