11.02.1960
Neðri deild: 26. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3554 í B-deild Alþingistíðinda. (1730)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir ofl.
Forseti (JóhH):
Þessa fsp. hafa ráðh. heyrt, og hún er í sambandi við það mál, sem hér er um að ræða, því að mér skilst, að hér sé um að ræða prentun á grg. efnahagsmálafrv., og vafalaust gefast næg tækifæri til þess að fá þessari spurningu svarað. (EystJ biður um orðið.) Hv. þm. hefur nú stigið tvisvar í ræðustólinn. (EystJ: Er nokkuð á móti því, að hann geri það í þriðja sinn?) Það getur verið, að svo sé, því að það eru ákvæði þingskapa, sem segja til um það. Hann hefur fengið að gera aths. um þingsköp, fsp. utan dagskrár, í samræmi við þingsköp. Er það eitthvað annað mál, sem hv. þm. vill tala um? (EystJ: Ég vildi gjarnan bæta fáeinum orðum við þetta.) Ég skal ekki meina þm. að bæta nokkru við.