11.02.1960
Neðri deild: 26. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3559 í B-deild Alþingistíðinda. (1736)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir ofl.
Eysteinn Jónsson:
Hæstv. dómsmrh. fékk nú málið áðan og var að gefa í skyn, að það væri ekki meira, þó að þetta áróðursrit væri gefið út, en ýmisleg útgáfustarfsemi, sem hefði verið á undanförnum árum, og viðhafði nokkur smekkleg ummæli í því sambandi. Ég hefði gaman af því, að hæstv. dómsmrh. fyndi fordæmi fyrir því, að það hafi verið kostuð útgáfa áróðursrita á síðari árum af ríkisfé, og vildi færa fyrir ásökunum sínum í því efni einhver rök. Það var ekki hægt að skilja hann öðruvísi en svo, að þetta væri síður en svo fordæmalaust á síðari árum. Í því sambandi vil ég upplýsa, að það hafa stundum sagt menn við mig undanfarin ár: Hvers vegna er fjárlagaræðan ekki prentuð sérstaklega og útbýtt? Ég hef svarað þeim, að ég teldi ekki heimilt að prenta fjárlagaræðuna og kosta prentunina af ríkisfé, — þó að í henni væru margs konar upplýsingar um ríkisbúskapinn og mætti kalla hana skýrslu að sumu leyti, þá væri í henni venjulega túlkuð um leið stefna stjórnarinnar hverju sinni, og ég teldi því óheimilt að kosta slíkt rit af ríkisfé. Þessi hefur verið og er skoðun mín á því, hvað heimilt sé að prenta fyrir ríkisfé. En hæstv. dómsmrh. virðist hafa aðra skoðun.
Að lokum vil ég aðeins segja þetta: Vitanlega er þessi skýrsla alls ekki hagfræðileg skýrsla, — það hefur enginn hagfræðingur lagt nafn sitt við þessa skýrslu. Þetta er árróðursrit, sem stjórnin hefur tekið saman og notað í það vissar niðurstöður úr skýrslum hagfræðinga, en setur inn í þetta pólitískan áróður að sinni vild og kallar svo hagfræðilega skýrslu.