22.02.1960
Neðri deild: 34. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3564 í B-deild Alþingistíðinda. (1741)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir ofl.
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Það er út af ummælum hv. 1. þm. Austf., er hann talaði um það, að 32. gr. l. um efnahagsmál hafi verið brotin, að þá vil ég segja honum það, að allt bankaráð Búnaðarbankans og bankastjóri komu upp í stjórnarráð á föstudaginn, og var rætt við þessa aðila um þessi mál. Þeim var ekki tilkynnt, að það væri búið að ákveða vextina, heldur var leitað álits þeirra um það, hvort þeir gætu fallizt á till., sem ég lagði fram. — Ég vildi aðeins taka þetta fram, vegna þess að hv. þm. gaf í skyn, að lagaskyldunni hefði ekki verið fullnægt.