02.06.1960
Neðri deild: 93. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3608 í B-deild Alþingistíðinda. (1775)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir ofl.
Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Mér var ókunnugt fyrir fundinn um þá fsp., sem hv. 1. þm. Austf. (EystJ) ætlaði að bera hér fram. Við munum að sjálfsögðu í ríkisstj. taka það til athugunar, og þegar stjórnin hefur tekið þetta mál, sem hann spyr um, til athugunar og umr. í stjórninni, verður hv. þm. látinn vita um það.