25.04.1960
Sameinað þing: 42. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3610 í B-deild Alþingistíðinda. (1777)
Landhelgismál
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég hafði ætlað mér að kveðja mér hljóðs utan dagskrár til þess að biðja einmitt um upplýsingar um þetta mál, sem hæstv. forsrh. hefur nú gert að umtalsefni, og þykir mér vænt um, að hann skuli þess vegna hafa lagt hér málið fyrir. Sú fsp., sem ég vildi fyrst og fremst beina til ríkisstj. í þessu sambandi, er sú: Hvað gerir hæstv. ríkisstj. eða lætur sína fulltrúa í Genf gera, svo framarlega sem íslenzka tillagan yrði samþykkt?
Ég skal fyllilega taka trúanlegt frá hálfu hæstv. forsrh. það, sem hann segir því viðvíkjandi, að hann hafi ekki verið að semja við erlenda stjórnmálamenn. En hitt er alveg gefið, að þeir ráðh., sem eru í Genf, hafa vafalaust ekki komizt hjá því að tala við allmarga erlenda stjórnmálamenn undanfarna daga og undanfarnar vikur. Það er vitanlegt, að Bandaríkjastjórn hefur unnið að því af miklu kappi að reyna að ná út úr röð þeirra ríkja, sem staðið hafa saman um 12 mílurnar, ríkjum, sem hún hefur haldið að væru að einhverju leyti eitthvað veik fyrir. Það hefur jafnvel gengið orðrómur um það, eftir því sem ég hef heyrt frá Genf, að sjálfur Eisenhower forseti hafi verið að skrifa ríkisstj. hinna og þessara landa til þess að reyna að hafa áhrif í þessum málum á ýmis ríki, þannig að þau taki afstöðu með till. Bandaríkjanna og Kanada.
Við Íslendingar höfum í landhelgismálinu ekki aðeins verið að berjast fyrir okkar hagsmunum, þótt þeir séu höfuðatriði fyrir okkur. Við Íslendingar höfum í sambandi við landhelgismálið verið að berjast fyrir ákveðnu prinsipi, fyrir því prinsipi að fá 12 mílna fiskveiðilandhelgi viðurkennda, og við höfum verið, þegar unninn væri sigur í því máli, sem við höfum álitið að við hefðum raunverulega í hendi okkar nú, að reyna að fá einhver fríðindi utan við þá 12 mílna fiskveiðilandhelgi fyrir þær þjóðir eins og okkur, sem eiga sitt að öllu leyti að heita má undir fiskveiðunum. Allt, sem heitir þess vegna tilslökun fyrir okkur, að ganga inn á eitthvað minna en 12 mílna landhelgina eða samþykkja það undir nokkrum kringumstæðum, það er að slá úr hendi okkar sigri, sem við erum raunverulega búnir að vinna. Ég held, að það sé óhætt að fullyrða það, að eins og ástandið er nú í þessum fiskveiðilandhelgismálum, þá mundu Bretar ekki treysta sér til þess að leggja aftur í það að senda her á móti okkur, eins og þeir hafa gert undanfarið. Þess vegna er öll tilslökun frá okkar hálfu í þessu máli hrein vitleysa frá okkar eiginhagsmunasjónarmiði. Þess vegna álít ég í fyrsta lagi rangt að hafa borið fram þessa brtt., en að öðru leyti væri það rangt af okkur að greiða atkv. með till. Kanada og Bandaríkjanna, þó að okkar brtt. yrði samþ., þannig að ganga þar með raunverulega inn á það prinsip, sem þeir eru að leggja og er þveröfugt við allt það, sem við höfum verið að berjast fyrir. Ég álít þess vegna, að það hafi verið mikil skyssa, svo að ekki sé verra sagt, af hálfu þeirra ráðh., sem nú eru í Genf, að bera fram þessa brtt. Og mér skildist á hæstv. forsrh., að svo framarlega sem hún mundi verða samþ., sem hann gerði sér litlar vonir um, mundi að öllum líkindum verða litið þannig á, að við mundum á eftir greiða atkv. með till. Bandaríkjanna og Kanada. En það er aftur það, sem ég spyr um, hvort það væri ekki hugsanlegt þó, að ríkisstj. tæki þá ákvörðun, jafnvel þótt okkar brtt. væri samþ., að greiða atkv. á móti till. Bandaríkjanna og Kanada.
Sú skyssa, sem gerð er með því að flytja þessa till., liggur í því, að við Íslendingar höfum ekki aðeins verið að berjast fyrir okkar eigin hagsmunum í þessum málum, við höfum verið að berjast fyrir alþjóðlegu prinsipi, fyrir alþjóðlegri höfuðreglu, 12 mílna fiskveiðilandhelgi, og verið að reyna að koma okkar eigin hagsmunum að utan þeirrar 12 mílna landhelgi, hvað snertir landgrunnið þar fyrir utan. Við höfum í þessu máli, baráttunni við Bretann út af þessu, vakið á okkur heimsathygli og það á mjög gæfuríkan hátt fyrir Ísland. Það hefur verið ritað um Ísland í flestum blöðum heims á undanförnum árum út af þeirri djörfung, sem þetta litla ríki hafi sýnt í því að berjast fyrir þessu prinsipi, sem það byggir sínar framtíðarvonir á hvað snertir sína efnahagslegu afkomu. Og það hefur jafnvel gengið svo langt, að við skulum segja t.d. í grískum blöðum hefur okkar baráttu verið stillt upp svipað og baráttu Davíðs og Golíats fyrr á öldum, að því er sagt er.
Það er engum efa bundið, að Ísland hefur áunnið sér heiður og virðingu hjá öðrum þjóðum einmitt fyrir þessa baráttu, ekki aðeins vegna þess, að við þyrðum að berjast vel fyrir okkar eigin hagsmunum, heldur líka vegna þess, að við berðumst vel fyrir hagsmunum fjölmargra annarra þjóða og fiskimannastétt annarra þjóða, eins og við höfum greinilega fengið að heyra, bæði frá fiskimönnum í Færeyjum, Skotlandi, Írlandi og víðar. Fátækir fiskimenn hér allt í kringum okkur hafa samúð með þessari baráttu okkar, og þeir hafa litið á okkur sem foringja í þessari baráttu, sem brautryðjanda, sem væri ekki aðeins að berjast fyrir sínum eigin hagsmunum, eins og eðlilegt væri, heldur væri líka að berjast fyrir hagsmunum annarra, sem oft og tíðum var lítið tillit tekið til. Og það var engin tilviljun, að hjá fiskimannastéttunum allt í kringum okkur við Atlantshafið komu fram kröfur, strax eftir að við höfðum brotið ísinn. Það, sem er gert með því að flytja þessa brtt., er, að við glötum þessu áliti og þessum heiðri, við setjum blett á hann, vegna þess að í okkar kaldranalega heimi mun verða erfitt, jafnvel þótt við vildum einhverju trúa af því, sem hæstv. forsrh. segir, að telja mönnum trú um, að okkar fulltrúar í Genf hafi ekki verið í neinu samningamakki við fulltrúa Bandaríkjanna og jafnvel Bretlands þar syðra, eða a.m.k. að það hafi ekki verið reynt að hafa áhrif á þá, þannig að eitthvert samningamakk hafi farið fram. Það verður þess vegna, er ég hræddur um, litið svo á, að við séum með flutningi þessarar brtt. að bjóðast til að skera okkur út úr þeim hóp, sem með okkur hefur staðið, bregðast hagsmunum þeirra annarra fiskimanna í heiminum, sem hafa litið til okkar sem forustumannsins og forustuþjóðarinnar í þessu, svo framarlega sem við gætum skarað eld að okkar eigin köku.
Það vitum við bezt, sem höfum haft nokkuð að gera með verkföll og þá samheldni, sem er grundvöllur allra verkalýðssamtaka, að það er alltaf hægt fyrir þann, sem er forustumaður í verkfalli eða slíkri baráttu fyrir hagsmunum fjölda, að tryggja sína eigin persónulegu hagsmuni hjá einum atvinnurekanda gegn því að skerast úr leik og skilja hina eftir. Og það, sem ég óttast, og það, sem mér þykir sárt í sambandi við þetta, það er, að þessi till., sem nú hefur verið flutt í Genf, verði skoðuð sem tilboð um slíkt frá Íslands hálfu, sem tilboð um að skerast úr leik. Þá mundum við standa þannig, svo framarlega sem við samþykktum á eftir, ef okkar brtt. yrði samþykkt, brtt. Kanada og Bandaríkjanna, að við hefðum samið við þessi ríki og skorizt svona úr leik. Ef hins vegar okkar till. væri ekki samþ. og við greiddum síðan atkv. á móti tillögu Kanada og Bandaríkjanna, þá mundi vera litið svo á eins og við hefðum verið að reyna að gera tilraun til þess, hvort við gætum ekki komið ár okkar fyrir borð án þess að hugsa um hina, og okkur hefði mistekizt, m.ö.o.: við hefðum bæði skaðann og skömmina af því.
Ég álít þess vegna ákaflega illa farið og blettur settur á heiður Íslands með því að flytja þessa brtt. Ég álít, að það eina, sem eitthvað gæti dregið úr þessu, væri það, að nú kæmi ótvíræð yfirlýsing um, að jafnvel þótt till. okkar væri samþ., þá mundum við ekki greiða atkv. með till. Kanada og Bandaríkjanna, það mundi þó ofur lítið draga úr þessu, og sú yfirlýsing væri strax gefin. En ég álít sjálfa aðferðina að flytja þessa brtt., eins og ég hef tekið fram, mikla skyssu, og þar að auki vil ég minna á, að því var lofað að hafa samráð við utanrmn. og þannig væri utanrmn. þá gefið tækifæri til þess að hafa samráð við Alþingi um, hvað gert yrði í þessum málum. Það hefur ekki verið gert, og það mun vafalaust koma betur fram í þessum umr. Þetta eru sem sé skoðanir, sem ég hef viljað láta í ljós á þessu, en höfuðatriðið er hitt, að ég vil beina þeirri fsp. til hæstv. forsrh., hvort ríkisstj. vilji nú þegar gefa yfirlýsingu um, að hvort sem okkar brtt. verður samþykkt eða ekki, muni ríkisstj. greiða atkv. á móti till. Bandaríkjanna og Kanada. Það heppilegasta hins vegar af öllu álit ég, að till. væri þegar tekin til baka.