25.04.1960
Sameinað þing: 42. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3613 í B-deild Alþingistíðinda. (1778)
Landhelgismál
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Þessar umr., sem hér hafa orðið utan dagskrár, eru auðvitað til komnar vegna þeirra umr., sem orðið hafa síðustu daga út af atburðunum á Genfarráðstefnunni og þeirri afstöðu, sem íslenzka nefndin hefur tekið þar varðandi einstök atriði. Það er augljóst, að á þessari ráðstefnu hefur orðið geysilegt tafl fram og aftur um þetta mál, eins og við mátti búast, um brtt. og annað, sem gæti haft áhrif á lokaniðurstöðuna. Sannleikurinn er sá — og bezt að vera alveg hreinskilinn í því, að það er nær óhugsandi fyrir þá, sem sitja í fjarlægð, að dæma um, hvað gera skuli á svona ráðstefnu frá degi til dags. Nú vitum við, að það hefur risið ágreiningur í nefnd Íslands um aðferðir, mér sýnist um aðferðir á ráðstefnunni af Íslands hendi. Út af þessu hefur verið rokið upp hér af ýmsum og felldir þungir áfellisdómar með stórum orðum á víxl um þær afstöður, sem teknar hafa verið. Ég verð að telja þessar umr. óheppilegar og ekki til sóma og allar þær fullyrðingar, sem fram hafa komið í því sambandi. Ég tel, að það verði að álíta, að þeir, sem að þeim standa, hafi ekki skilyrði til þess að fella dóma um afstöðurnar, þar sem það liggi alls ekki fyrir fullnægjandi upplýsingar um þau rök og þær ástæður, sem nefndarmenn hafa haft fyrir þessum afstöðum sínum. Ég tel, að það væri réttast að láta frekari kappræður um þessi efni og dóma um þann ágreining um aðferðir, sem þarna hefur komið upp, bíða, þangað til full vitneskja liggur fyrir um allar ástæður og þeir, sem hér að standa, hafa haft aðstöðu til þess að gera grein fyrir þeim.
Framsfl. hefur ætíð viljað hafa það höfuðsjónarmið að tryggja 12 mílna fiskveiðilandhelgi og vill hafa það sjónarmið eitt. Framsfl. hefur ætíð viljað draga sem allra mest úr deilum um landhelgismálið og hefur miðað afskipti sín við það sjónarmið og það eins fyrir því, þótt ágreiningur hafi verið um aðferðir á vissum stigum málsins. Og þannig munum við reyna að koma fram í þessu máli enn þá, þangað til það er til fullnægjandi lykta leitt. Þess vegna munum við leiða hjá okkur umr. nú um þann ágreining um aðferðir, sem komið hefur fram á ráðstefnunni, og ekki taka þátt í þeim kappræðum, sem hafnar hafa verið í landinu varðandi þau efni, fyrr en nánari vitneskja liggur fyrir.