29.01.1960
Efri deild: 11. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 371 í B-deild Alþingistíðinda. (178)

43. mál, tollafgreiðslustöðvun

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Næstu daga mun ríkisstj. leggja fyrir Alþingi frv. til l. um aðgerðir í efnahagsmálum. Það þykir rétt nú eins og áður, þegar svipað hefur staðið á, að stöðva tollafgreiðslu á aðfluttum vörum, þar til frv. þetta hefur hlotið fullnaðarafgreiðslu. Ég vil beina þeim tilmælum til hæstv. forseta og hv. þdm., að þeir fallist á að afgreiða þetta mál við þrjár umr. í hv. deild nú í dag.