25.04.1960
Sameinað þing: 42. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3620 í B-deild Alþingistíðinda. (1782)
Landhelgismál
Forsrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Ef ég á að svara öllu því, sem út af fyrir sig gæti verið tilefni til út af ræðum hv. 3. þm. Reykv. og hv. 5. þm. Reykn., mundu verða hér stólpaumræður og hnakkrifrildi, öllum til leiðinda á þessu stigi málsins.
Ég vil þó alveg skýrt segja það, að brtt. okkar, þessi sem hefur hér verið rædd, er ekki borin fram í samráði við eða með samningum við Bandaríkin eða aðra. Í öðru lagi segi ég það alveg frómt, að ég veit ekki, hvernig Rússar greiða atkvæði um þessa till., — og ekki heldur Bandaríkin, — hvernig Bandaríkin greiddu atkvæði. Við höfum talað við Rússa alveg jafnt og Bandaríkin, og ég veit ekki, hvernig þeir greiða atkvæði.
Ég skýrði frá því, að ég væri hræddur um, að þessi till. okkar félli, og ekki aðeins það, heldur gæti vel svo farið, að hún fengi nauðafá atkvæði. Við höfðum ekki neina aðstöðu til að semja um þetta og urðum bara að láta slag standa og taka þetta sem möguleika. Okkar eina von er, að mínu viti, ef málið stæði þannig, að það riði á okkar atkvæði um hina tillöguna. Það var mat okkar manna í dag, þegar ég talaði við þá, að það væru sáralitlar líkur fyrir, að okkar till. næði samþykki, og orða ég það nú mjög veikt núna, því að ég segi: sáralitlar líkur. Ætli það sé ekki réttara að segja, að það séu afar litlar vonir eða minna en það, eins og það er líka ómögulegt að segja um, hvernig fer um Bandaríkjatillöguna? Ég veit um eina þjóð, sem lýsti yfir í gær, að hún ætlaði að sitja hjá, en lýsir yfir í dag eða á morgun, að hún ætli að greiða atkvæði á móti Bandaríkjatillögunni. Og ég veit um aðra þjóð, sem ef til vill gerir það sama.
Hv. 3. þm. Reykv. sagði, að við gætum skapað okkur andúð vissra þjóða með þessari framkomu. Ég vona, að það verði nú ekki, og mitt mat er það, að Rússar séu svo miklir vinir okkar, að þeir fari aldrei að gera okkur bölvun. Ég held, að óhætt sé að treysta því — eða hvað heldur hv. þm. um það? Ég spyr bara.
En ég vil svo að lokum bara segja það, að sterkustu rökin fyrir því að bera fram þessa till., eru þess eðlis, að mér finnst réttara að ræða þau eða skýra frá þeim á lokuðum fundi í utanrmn. heldur en að vera að ræða það okkar á milli hérna, því þó að auðvitað alþingismenn eigi kröfu á að vita hlutina og að þeim sé fullur trúnaður sýndur, þá er þetta opinn fundur, og ég kann ekki við að vera að leggja nein rök upp í hendur andstæðinga okkar í þessu máli.
Ég segi þess vegna, að ég álít, að margt af því, sem hv. 3. þm. Reykv. og hv. 5. þm. Reykn. hafa hér sagt, sé byggt á misskilningi. En ef ég á að fara að hrekja þann misskilning, þá endurtek ég: Við mundum lenda í leiðinlegum deilum, sem skaða málið. Nú á atkvgr. að fara fram um þetta á morgun, og ég kæri mig ekki um, að héðan hljómi neinar sundurþykkar raddir um málið, og legg þess vegna ekki áherzlu á að hrekja það, sem mér þykir rangt í þessu, heldur að koma engu illu af stað með þeirri skýrslu, sem ég gaf.