03.03.1960
Neðri deild: 41. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3622 í B-deild Alþingistíðinda. (1784)

Veiðafæratjón vélbáta af völdum togara

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Mér var skýrt frá þessum atburðum í gær, og hafði ég þá, strax og ég náði til hæstv. utanrrh., samband við hann og óskaði þess, að þó að enn lægju ekki fyrir fullnaðarskýrslur um málið, þá hefði hann þegar í stað tal af sendiherra Bretlands hér og skýrði honum frá því, hversu alvarlegir atburðir hér hefðu gerzt að skoðun okkar Íslendinga.

Mér er kunnugt um það, að hæstv. utanrrh. náði þegar í sendiherrann í gær og gerði honum grein fyrir skoðun okkar á þessu furðulega tiltæki.

Að öðru leyti verða frekari ákvarðanir um hina formlegu meðferð málsins að bíða þess, að skýrslur komi í hendur dómsmálarn., sem síðar verði skoðaðar og að athugun lokinni teknar ákvarðanir um, hvað gera skuli til þess að reka réttar þeirra manna, sem þarna hafa orðið fyrir freklegri árás og lögbrotum.

Ég vil þó skýra frá því nú þegar, að ég tel sjálfsagt, að þeim mönnum, sem þarna hafa orðið fyrir tjóni, verði það tjón bætt. Fyrst og fremst ber að gera kröfur um bætur á hendur þeim aðilum, sem hér hafa brotið lög, og við verðum að telja, að brezka ríkisstj. beri ábyrgð á athæfi þeirra, og í blaði í morgun sá ég, að jafnvel brezki sjóliðsforinginn hefði látið orð falla í þá átt, að hið beina tjón mundi bætt. Hvort þar er um nákvæma frásögn að ræða eða bindandi skuldbindingu þessa yfirmanns í brezka flotanum, get ég ekki sagt um á þessu stigi, en það er eitt af þeim atriðum, sem skoða verður. En hvað sem líður kröfugerð á hendur Bretum af þessum sökum, tel ég eðlilegt, að ríkissjóður Íslands hlutist til um, að bætt verði hið beina tjón, sem þessum aðilum hefur verið valdið. Við vitum, að þessir menn eru þarna útverðir bæði íslenzkra hagsmuna og íslenzks réttar, og það væri algerlega rangt, ef við létum það vera komið undir vild ofbeldismannanna, hvort þeir fengju bætur. Ég hef því talið það eðlilegt og mun gera tillögu um það, að ríkissjóður greiði til bráðabirgða þessar bætur, auðvitað með endurkröfurétti gegn Bretum.

Landhelgisgæzlan gerði þegar í gær það, sem hún gat, til þess að koma í veg fyrir þetta ofbeldi, og ég vona, að hennar aðstoð hafi átt einhvern þátt í, að ekki hlauzt þó verra af en varð. Hitt vitum við allir, að okkar skip og flugvél mega sín lítils gegn því ofurefli, sem við er að etja, ef í beina valdbeitingu á að fara.

Það þarf ekki að fjölyrða um það, hversu alvarlegur þessi atburður er. Ég hygg þó, það er rétt, að það komi fram, — að hann sé að vissu leyti vitni þess, að Bretar finna til þess, að þeir eru nú komnir að því að bíða ósigur í þessari deilu. Það hefur hér verið skýrt frá því, og ég hygg, að það sé örugglega rétt, að Bretar ætli að hverfa héðan af miðunum, á meðan á Genfarráðstefnunni stendur. Framtíðin ein fær úr því skorið, hvort sú brottför Breta af miðunum verður endanleg eða ekki.

Ég á þó bágt með að trúa því, að Bretar láti þá skömm henda sig að fara héðan af miðunum einungis meðan ráðstefnan stendur í því skyni að koma hingað aftur. Þvílík framkoma virðist mér með öllu óboðleg og ótrúleg.

Ég skal þó ekkert um það segja. Eins og ég segi: Framtíðin ein fær úr því skorið. En um það verður ekki deilt, að brotthvarf Breta héðan, meðan á landhelgisráðstefnunni stendur, sannar, að Bretar skilja það sjálfir, að þeim er til skaða þessi víst þeirra hér. Ef þeir álitu, að það gagnaði sínum málstað og styrkti þeirra réttarkröfur að vera á Íslandsmiðum og innan íslenzkrar fiskveiðilandhelgi með þeim hætti, sem verið hefur, þá mundu þeir allra sízt hverfa héðan, meðan á ráðstefnunni stendur. Þá mundu þeir einmitt sýna, meðan á ráðstefnunni stendur, að þeir vildu styrkja sitt mál með því að dveljast hér.

Brotthvarf þeirra sannar þess vegna, að þeir vita sjálfir, að þeim er það til tjóns að vera hér á þann veg, sem þeir hafa verið.

Það er svo ljóst af því, sem nú hefur gerzt, að sumir af þeim mönnum, sem leiðzt hafa út í þetta herhlaup, gera það ekki með glöðu geði að sjá fyrir endann á því, að þeir telja sig illa leikna að hafa meira og minna verið kúgaðir til þess af brezkri flotamálastjórn að vera hér við fiskveiðar, sem þeir hafa bæði haft fjárhagslegt tjón af og skömm af, og eiga svo að hverfa héðan málstað Breta til styrktar, einmitt þegar Genfarráðstefnan nýja á að hefjast.

Ég hygg, að þetta fáheyrða ofbeldi, sem nú hefur átt sér stað, verði í raun og veru ekki skýrt nema sem eins konar geðvonzkukast þeirra manna, sem hafa séð sig sjálfa leidda út í ófæru, yfir því að verða nú að hverfa héðan við jafnlitla sæmd og raun ber vitni. Bretar hafa þess vegna kveðið sjálfir þyngstan áfellisdóm yfir þessu herhlaupi sínu, og skal ég ekki fjölyrða meira um það.

Ég vona, að Genfarráðstefnan fari þannig, að málið leysist, sjálft deilumálið, á friðsamlegan hátt og settar verði ótvíræðar reglur, sem allir telji sér skylt að hlíta. Hitt er nú þegar komið í ljós, að Íslendingar muni ekki láta undan ofbeldi í þessu máli, og sá, sem ofbeldinu ætlar að beita, hefur af því mestan skaða sjálfur.