03.03.1960
Neðri deild: 41. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3624 í B-deild Alþingistíðinda. (1785)
Veiðafæratjón vélbáta af völdum togara
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Ég vil taka undir þau mótmæli, sem hér hafa komið fram í tilefni af yfirgangi brezkra togara gagnvart bátum úti fyrir Snæfellsnesi. Ég tel alveg víst, að hæstv. ríkisstj. muni mótmæla þessum yfirgangi, sem þarna hefur átt sér stað, því að þarna er augljóslega um að ræða brot á okkar landhelgislöggjöf. En það, sem ég vildi sérstaklega vekja athygli á í sambandi við það, sem þarna hefur gerzt, það er, að hér er um miklu víðtækara brot að ræða frá hálfu Breta en hin almennu brot, sem átt hafa sér stað oft og tíðum að undanförnu.
Hér er um það að ræða eftir þeim lýsingum, sem liggja fyrir, að brezki togarinn brýtur alveg greinilega þær reglur, sem Bretar hafa sjálfir margsinnis lýst yfir að þeir muni virða, þar sem þeir eru beinir aðilar að slíkum samþykktum, en það er að virða veiðarfæri, sem eru merkt með eðlilegum hætti og liggja í sjó þar fyrir, sem veiðiskip kemur að. Þar á ekki að vera um neinn ágreining að ræða við Breta út af okkar landhelgisdeilu. Hér er um það að ræða að brjóta þessa samþykkt, sem Bretar standa að ásamt okkur og hafa marglýst yfir, að þeir vildu virða. Og það er ekki aðeins það, að hér sé þessi samþykkt brotin, heldur er hún brotin með nokkuð sérstökum hætti. Við vitum, að það hefur vitanlega hent æði oft, að skip hafi brotið þessa samþykkt og þá æði oft borið því við, að þau hafi ekki fyllilega getað greint, hvar veiðarfærin lágu í sjó. Hér verður því nú trauðla við komið að bera því við, þar sem þetta gerðist um hábjartan dag og þar sem bátarnir voru beinlínis að draga net sín, eins og þau eru nú merkt og við vitum. En þetta brot fer líka fram á þann sérstaka hátt, að frá hálfu brezku ríkisstj. eru hér brezk herskip til þess að vernda það, að þessi brot geti átt sér stað, og til þess að koma í veg fyrir það, að íslenzk sjólögregla, sem var þarna á staðnum, gæti fengið að halda uppi lögum og reglu varðandi þá reglugerð, sem Bretar annars viðurkenna að eigi að vera í gildi. Hér er því um margfalt brot að ræða, — brot, sem fyllilega jafnast á við það, þegar brezkir togarar höfðu ekki aðeins brotið okkar 12 mílna reglugerð, heldur fóru einnig þar langt inn fyrir jafnvel þriggja mílna mörkin gömlu og veiddu þar. Og þá var svo komið, að brezk stjórnarvöld töldu sér eiginlega óhjákvæmilegt að sleppa í hendur íslenzkum dómstólum slíkum aðilum, sem þær reglur brutu, því að þá var komið langt út fyrir þá fiskveiðideilu, sem hefur staðið nú að undanförnu.
Hér er raunverulega það sama að gerast. Það er ekki aðeins, að okkar fiskveiðilandhelgislöggjöf sé hér brotin, heldur einnig eldri samþykktir og reglugerðir, sem í gildi eru um það að virða veiðarfæri, sem greinilega eru merkt og veiðiskip á að geta forðazt. Ég tel því, að þau mótmæli, sem hæstv. ríkisstj. sendir út af þessum atburði, verði að vera miklu harðari en þau mótmæli, sem oft og tíðum hafa verið send í sambandi við árekstra á milli Íslendinga og Breta varðandi þessa fiskveiðideilu, og ég vænti þess, að hæstv. ríkisstj. veiti einmitt þessu atriði sérstaka athygli, varðandi upptöku málsins og allan málarekstur.