05.02.1960
Sameinað þing: 13. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3643 í B-deild Alþingistíðinda. (1815)
Varamenn taka þingsæti, rannsókn kjörbréfa
Frsm. (Jón Pálmason):
Herra forseti. Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis hefur gefið út hinn 26. okt. s.l. kjörbréf til handa frú Katrínar Smára sem fyrsta varaþingmanns Alþýðuflokksins. Kjörbréfanefnd hefur athugað þetta kjörbréf og hefur ekkert við það að athuga og leggur til einróma, að það verði samþykkt.