16.03.1960
Sameinað þing: 24. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3646 í B-deild Alþingistíðinda. (1826)
Varamenn taka þingsæti, rannsókn kjörbréfa
Forseti (FS):
Svo hljóðandi bréf hefur borizt frá forseta Nd.:
„Reykjavík, 16. marz 1960. — Mér hefur í dag borizt svo hljóðandi bréf frá Bjarna Benediktssyni, 1. þm. Reykv.:
„Þar sem ég er á förum til útlanda og mun næstu vikur sitja ráðstefnu í Genf um réttarreglur á hafinu, leyfi ég mér hér með með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að fara þess á leit, að 2. varamaður minn, Geir Hallgrímsson borgarstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni, þar sem 1. varamaður, Davíð Ólafsson fiskimálastjóri, mun einnig sitja ráðstefnuna.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu Alþingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Jóhann Hafstein, forseti neðri deildar.
Til forseta sameinaðs Alþingis.“
Með bréfi þessu fylgir kjörbréf til handa Geir Hallgrímssyni, varaþingmanni, gefið út af yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis.
Verður nú gert fundarhlé í nokkrar mínútur, meðan kjörbréfanefnd rannsakar kjörbréfið. —[Fundarhlé.]