23.03.1960
Sameinað þing: 28. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3648 í B-deild Alþingistíðinda. (1834)
Varamenn taka þingsæti, rannsókn kjörbréfa
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Það hefur verið lagt hér fram kjörbréf, sem landskjörstjórn hefur gefið út handa Pétri Péturssyni fyrrum alþm., og samkvæmt því er hann 2. varamaður landskjörinna þm. Alþfl. Þessi maður var, ef ég man rétt, í 2. sæti á framboðslista Alþfl. í Vesturlandskjördæmi í síðustu kosningum, og mér þykir því trúlegt, að yfirkjörstjórn í Vesturlandskjördæmi hafi gefið út handa honum kjörbréf sem varaþm. fyrir Alþfl. í því kjördæmi. Samkvæmt þessu lítur út fyrir, að varamenn geti haft í höndum tvö kjörbréf eftir kosningar, bæði sem varamenn landskjörinna þm. og einnig sem varamenn kjördæmakjörinna þm. Ég er ekkert að segja um það, að þetta sé í ósamræmi við kosningalögin, — ég hef ekkert athugað það sérstaklega, — og er ekki að halda því fram, að t.d. landskjörstjórn hafi misskilið lögin, þegar hún gaf út þetta kjörbréf handa manni, sem vafalaust hefur verið búinn að fá annað, eins og ég gat um, áður en landskjörstjórn úthlutaði sætum. En ég vildi aðeins spyrja hv. kjörbréfanefnd, hvort hún hefði athugað þetta atriði sérstaklega og komizt að raun um, að þetta væri allt í fullu samræmi við lög.