23.03.1960
Sameinað þing: 28. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3648 í B-deild Alþingistíðinda. (1835)

Varamenn taka þingsæti, rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Ég get aðeins tekið það fram í sambandi við þessa athugasemd hv. 1. þm. Norðurl. v., að um þetta atriði út af fyrir sig, er hann spurðist fyrir um, fjallaði n. ekki. Hún fjallaði aðeins um það atriði, hvort ekki væri löglega út gefið kjörbréf til handa Pétri Péturssyni sem 2. varaþm. landsk. þm. Alþfl., og mælti, eins og ég sagði áðan, einróma með því, að það yrði tekið gilt. Hins vegar rekur mig minni til þess, að á s.l. sumri, þegar kosningalögin og kjördæmabreytingin voru hér til umr. á hæstv. Alþ., þá var út frá því gengið, að skilja bæri lögin svo, en það þótti sýnt, að það gæti komið fyrir í mörgum kjördæmum, að sami maðurinn væri í senn varaþm. í sínu kjördæmi og jafnframt varamaður landskjörinna þingmanna síns flokks. Þetta er a.m.k. mitt persónulega álit, án þess að um það hafi sérstaklega verið fjallað í n. Ég veit um sönnur á því, að Pétur Pétursson hefur fengið varamannsbréf frá kjörstjórn Vesturlandskjördæmis sem 1. varamaður Alþfl. í því kjördæmi, og fyrir liggur, að landskjörstjórn hefur hér gefið út kjörbréf til handa honum sem öðrum varaþm. landskjörinna þm. Alþfl. Þetta fer að mínu viti, án þess að n. hafi sem heild tekið afstöðu til þessa atriðis, ekki í bága við gildandi lög, og mér er kunnugt um, að þannig er ástatt í fleiri flokkum, sem landskjörna þm. eiga hér á Alþingi.