28.04.1960
Sameinað þing: 44. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3652 í B-deild Alþingistíðinda. (1849)

Varamenn taka þingsæti, rannsókn kjörbréfa

Forseti (FS):

Frá forseta Nd. hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Alþingi, 27. apríl 1960. — Mér hefur í dag borist svo hljóðandi bréf frá Ágústi Þorvaldssyni, 2. þm. Sunnl.:

„Ég mun ekki geta sótt fundi Alþingis næstu tvær vikur vegna starfa heima fyrir. Leyfi ég mér þess vegna með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska eftir því, að varamaður minn, Helgi Bergs verkfræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Jóhann Hafstein, forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Helgi Bergs hefur áður setið á þingi í vetur sem varaþingmaður, og var kjörbréf hans þá úrskurðað gilt, og tekur hann nú sæti að nýju á þingi sem varamaður.