02.05.1960
Sameinað þing: 45. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3652 í B-deild Alþingistíðinda. (1850)

Varamenn taka þingsæti, rannsókn kjörbréfa

Forseti (FS):

Svo hljóðandi bréf hefur mér borizt frá forseta Ed.:

„Reykjavík, 30. apríl 1960. — Mér hefur í dag borist svo hljóðandi bréf frá Auði Auðuns, 2. þm. Reykv.:

„Þar sem ég er á förum til útlanda og verð fjarverandi um tveggja vikna skeið, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. kosningalaga að fara þess á leit, að varamaður minn taki á meðan sæti á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fara fram í sameinuðu Alþingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Ó. Ólafsson, forseti efri deildar.“ Með bréfi þessu fylgir kjörbréf, gefið út af yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis til handa Jóhanni Sigurðssyni, Ásgarði 19, sem er þriðji varamaður Sjálfstfl. Enn fremur er hér bréf frá Davíð Ólafssyni, sem er fyrsti varamaður þess flokks, en hann tilkynnir í þessu bréfi, að hann sé á förum til útlanda og muni dveljast þar næstu 5–6 vikur og geti því ekki tekið varamannssætið, sem honum hefði annars borið.

Það verður gert hlé á fundinum í nokkrar mínútur, meðan kjörbréfanefnd rannsakar kjörbréfið, en að hléinu loknu verður hringt til framhaldsfundar. — [Fundarhlé.]