23.05.1960
Neðri deild: 86. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3653 í B-deild Alþingistíðinda. (1856)

Varamenn taka þingsæti, rannsókn kjörbréfa

forseti (JóhH):

Mér hefur borizt eftirfarandi bréf:

„Þar sem mér er nauðsynlegt vegna aðkallandi starfa heima fyrir að fara af þingi næstu vikur, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að varamaður minn, Jón Kjartansson forstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Björn Pálsson.“

Kjörbréf Jóns Kjartanssonar hefur áður verið athugað, og tekur hann hér með sæti á þingi.