08.04.1960
Efri deild: 61. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3670 í B-deild Alþingistíðinda. (1954)

Þinghlé

forseti (SÓÓ):

Hlé verður nú á þingfundum um sinn, og að öllum líkindum er þetta síðasti fundur í þessari hv. deild, áður en þinghlé hefst. Ég vil nota þetta tækifæri til að leyfa mér að þakka hv. deildarmönnum fyrir ágæta samvinnu á undanförnum mánuðum. Nú þegar þið hverfið heim, sumir um langan veg, óska ég ykkur góðrar ferðar og ánægjulegrar heimkomu. Öllum ykkur og fjölskyldum ykkar óska ég gleðilegrar hátíðar. Sömu óskir færi ég öllu starfsfólki Alþingis. Megum við svo hittast öll heil að þinghléi loknu.