02.06.1960
Neðri deild: 95. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3672 í B-deild Alþingistíðinda. (1966)

Starfslok deilda

forseti (JóhH):

Þá er ekki fleira á dagskrá, og má þá ætla, að störfum þessarar d. að þessu sinni sé lokið, að vísu með þeim fyrirvara, að enn komi ekki verkefni frá Ed. En það liggur fyrir, að því er mér sýnist, að svo muni ekki vera.

Ég vil þá leyfa mér, áður en við ljúkum þingstörfunum í þessari hv. d., að þakka öllum hv. þdm. fyrir góða samvinnu við mig á þessu þingi. Þegar ég tók við þessum forsetastörfum algerlega óvanur, var mér ljóst, að það reið mikið á því, að hv. þdm. sýndu mér umburðarlyndi, enda hefur það reynzt svo í mörgum málum. Við höfum haft mörg og stór mál til meðferðar. Ég hef ástæðu til þess að þakka öllum hv. þdm. fyrir góða samvinnu og umburðarlyndi í minn garð.

Ég óska þeim, sem eiga nú heim um langan veg að fara, góðrar heimkomu og vil svo að lokum óska þess, að við megum aftur hittast heilir, þegar skyldan kallar okkur á ný til sameiginlegra starfa.

Ég vil mega við þetta bæta þakklæti fyrir mína hönd — og þá vil ég mæla fyrir hönd deildarinnar — til skrifstofustjóra þingsins fyrir aðstoð og góða samvinnu við margháttuð störf og einnig færa þakkir og árnaðaróskir til starfsmanna þingsins.