03.06.1960
Sameinað þing: 59. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3674 í B-deild Alþingistíðinda. (1969)

Þinglausnir

forseti (SÁ):

Háttvirtir alþingismenn. Í fjarveru hæstv. aðalforseta sameinaðs Alþingis vil ég fyrir hans hönd og okkar varaforsetanna þakka hv. alþingismönnum gott og ánægjulegt samstarf á því þingi, sem við nú erum að kveðja. Sérstaklega hef ég ástæðu til þess að færa hv. alþingismönnum þakkir mínar fyrir lipurð og umburðarlyndi í minn garð, þar sem ég er óvanur störfum þeim, sem mér er falið að inna af hendi í fjarvistum hæstv. aðalforseta. Lipurð og skilningur hv. alþingismanna hefur valdið því, að afgreiðsla hefur farið fram með eðlilegum hætti, og vil ég nú, er líður að þinglausnum, votta hv. alþingismönnum þakklæti mitt fyrir samstarfið allt.

Skrifstofustjóra Alþingis og starfsfólki vil ég færa þakklæti mitt og hv. þingmanna allra fyrir störf þess yfir þingtímann og óska því gleðilegrar í hönd farandi hátíðar.

Umræður á þessu þingi hafa verið óvenjumiklar og ýmis merk mál hlotið afgreiðslu og lög samþykkt, sem við vonum og biðjum að megi leiða til farsældar fyrir þjóðina alla. Oft á þessu þingi hefur verið stormasamt í þingsölunum, en þrátt fyrir það er ég þess fullviss, að nú, er leiðir skilja um stundarsakir, mun það efst í huga okkar þingmanna, að þegar fundir hefjast að nýju á næsta hausti, megi starf okkar leiða til áframhaldandi uppbyggingar, menningar og efnahagssjálfstæðis þjóðarinnar.

Ég endurtek þakklæti mitt til hv. alþingismanna og óska þeim gleðilegrar hátíðar og farsældar um alla framtíð. Hv. utanbæjarþingmönnum óska ég góðrar heimferðar og heimkomu og bið, að við megum öll hittast heil, er næsta þing hefst. Við þökkum forsjóninni fyrir óvenjugott árferði til lands og sjávar, það sem af er þessu ári, og biðjum fyrir velgengni atvinnuveganna og þjóðarinnar í heild.