06.02.1960
Neðri deild: 24. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 593 í B-deild Alþingistíðinda. (1998)

48. mál, efnahagsmál

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Í þessum umræðum um frv. til l. um efnahagsmál, sem auðvitað ætti að heita réttu nafni frv. til l. um gengislækkun, tók hæstv. forsrh. til máls í annað sinn og ræddi þá m.a. um það, hve hann hefði fylgzt mjög vel með vinnubrögðum á dögum vinstri stjórnarinnar, og var að segja af því sögur hér í umræðunum áðan. Ég ætla þá í staðinn að segja hæstv. forsrh. og nærstöddum þm. frá því, að svo vill til, að ég hef líka haft nokkrar spurnir af afgreiðslu mála og störfum hjá núv. hæstv. ríkisstj., og ætla að víkja að því örfáum orðum í upphafi míns máls.

Ég hef að undanförnu frétt það, að upphaflega hafi stjórnarliðið verið afar staffírugt um það, að það skyldi bruna áfram með þá stóru gengislækkun, sem hagfræðingarnir höfðu reiknað út fyrir það og það taldi nauðsynlega, en þegar menn voru búnir að fá að sjá alla útreikninga sérfræðinganna og fóru að horfast í augu við hinar ýmsu þjóðhagslegu afleiðingar af framkvæmd þessa reikningsdæmis sérfræðinganna, þá hafi farið að koma hik á ýmsa í ráðherrastólunum jafnvel, auk hinna óbreyttu liðsmanna í þingflokkum Alþfl, og Sjálfstfl. Ég hef það fyrir satt t.d., að hæstv. forsrh. hafi kippzt ónotalega við, þegar sérfræðingarnir fóru að segja honum það, að til þess að framkvæma gengislækkunina yrði að gera margvíslegar ráðstafanir til þess að draga úr atvinnu í landinu og framkvæmdum, helzt stöðva meiri háttar stórframkvæmdir. Og ég hygg, að það sé ekki ósatt mál, að þá hafi hæstv. forsrh. kveinkað sér á þá lund að segja eitthvað í þá áttina, að hann hafi ekki myndað sína síðustu ríkisstj. á Íslandi, á elliárum, til þess að stöðva allar framkvæmdir í landinu. Ég gæti vel trúað því, að þetta sé satt, enda hef ég nokkuð sannorða sjálfstæðismenn fyrir mér í þessu. Þeir ættu ekki að vera lygnari en framsóknarmennirnir, sem hann var að vitna í áðan.

Ég þykist vita, að það sé alveg rétt, að hæstv. forsrh. sé nú hikandi, hálfur og deigur um það, hvort hann eigi að framkvæma þessi ósköp, sem eru nú búin að fá á sig mynd í þessu frv. Og ég lái honum það ekki. Ég varð þó fyrst alveg sannfærður um það, að þetta væri rétt í alla staði, þegar ég hlýddi á hæstv. forsrh. flytja hér sína framsöguræðu í gær. Það var enginn sigurfögnuður í rómi eða látbragði okkar forsrh. þá. Nei, hann las alveg hrifningarlaust, stautaði sig sums staðar fram úr speki hagfræðinganna, og ég sá ekki betur en grettur kæmu á andlitið stundum yfir því, hvað honum fyndist þetta heldur ólystugt lestrarefni. Hann er nefnilega svipbrigðanna maður og á erfitt með að leyna sínum svipbrigðum, hvort sem hann talar mælt mál eða les af bókum. Og það þóttist ég líka sjá á honum í þetta sinn. Það var líka sjálfstæðismaður, sem hafði orð á því í gær, að nú þætti sér Bleik sínum brugðið, Ólafur Thors hefði verið eins og múmía, hann hefði ekki haft neina leikaratilburði, ekki neinn hrifningarljómi, hvorki af látbragði né limaburði eða raddblæ, og það er sýnilegt, að honum er þetta allt saman ógeðfellt. Það virðist því svo sem allir menn sjái þetta á hæstv. forsrh., að hann gengur hálfur og deigur og nauðugur til verksins.

Þá höfðu líka sannorðir sjálfstæðismenn sagt mér það, að framan af hefði hæstv. dómsmrh., Bjarni Benediktsson, verið ákafur í því, að þetta yrði að framkvæmast, en nú væri svo komið, að hann væri í raun og veru á móti málinu, en það, sem gerði, að hann sneri ekki við, væri það, að hann fyndi engar útgöngudyr, enga möguleika til þess að snúa frá málínu á ný, og þannig væri hann innilokaður og yrði því að halda áfram fylgi við málið. Það er auðvitað skiljanlegt, það er ekkert auðveit fyrir hæstv. ráðh. að snúa við, þegar þeir eru komnir svo langt sem þeir eru nú komnir með allan undirbúning þessa máls. Svo tók hann, hæstv. dómsmrh., til máls hér í gær. Hann tók til máls hér í gær, lagði lítið í ræðuna frá eigin brjósti, las mest upp greinar eftir hæstv. fyrrv. fjmrh., Eystein Jónsson. En þrátt fyrir það, að hann væri bara að þylja annarra manna mál og skoðanir, þá missti hann algerlega stjórn á sjálfum sér og fylltist þeim tryllingi, að það var alveg sýnilegt, að það gat ekki verið nokkur skýring á því önnur en sú, að hann var þarna í þeim sporum að túlka mál, sem samvizka hans mælti gegn. Maður þarf ekki að vera mikill sálfræðingur til þess að sjá það, að þarna staðfestist sagan um það, að hæstv. dómsmrh. væri guggnaður á málinu, væri orðinn því andvígur og mælti gegn samvizku sinni, þegar hann væri að burðast við að mæla fyrir þessu máli.

Ég hafði ekki vitað neitt og ekki heyrt neitt um afstöðu hæstv. sjútvmrh., Emils Jónssonar, þangað til hann ræddi málið nú í kvöld. Og hann sagði það ekki einu sinni, heldur sagði hann það tvisvar sjálfur hér í þessum ræðustóli: Ég er ekki glaður yfir því að þurfa að vera meðflm. þessara tillagna. Þetta er ekkert fagnaðarerindi. — Það var í fyrra sinnið, sem hann kveinkaði sér, og undir lok ræðu sinnar sagði hann: Ég á erfitt með að vera með þessum till. — Hann er þriðji ráðherrann, sem vitað er um að er nú beint tregur í málinu og sér á því hin óskaplegu vandkvæði, sem eru við það að framkvæma þetta frv., vegna þeirra þjóðfélagsáhrifa, þeirra ömurlegu þjóðfélagsáhrifa, sem það kemur til með að hafa.

Hins vegar hafði ég haft spurnir af því, að hæstv. viðskmrh. og menntmrh., Gylfi Þ. Gíslason, væri sá, sem ræki þetta mál áfram og virtist vera sannfærður um, að þetta væri einasta leiðin, sem opin væri og fær fyrir núv. hæstv. ríkisstjórn. Mér kom það ekki á óvart, því að það var mér ekki nein mikil opinberun, sem hann kunngerði hér í ræðu sinni í gær, og hann var með ákveðnar gengislækkunartillögur í vinstri stjórninni og vildi þá umfram allt knýja þær fram. Frá því sagði hann í gær, sagðist ekki telja ástæðu til þess að þegja yfir þeim lengur, þ.e.a.s. hann var búinn að þegja sig svo í spreng, að hann gat ekki haldið þessu lengur með sjálfum sér. Það var mér áður kunnugt, að þegar einhver hafði haldið því fram, að hann hefði verið málsvari gengislækkunar í ríkisstjórninni, þá þrætti hann og varð hinn reiðasti og taldi þarna borið á sig ljóta lygi. En nú, nálega þremur árum seinna, gat hann ekki staðizt það lengur að segja ekki frá því, að hann hefði verið strax í vinstri stjórninni ákveðinn gengislækkunarmaður og hefði viljað knýja gengislækkun þá fram, en það hefði strandað á ólukkans Alþýðubandalagsráðherrunum.

Það var því, að því er virðist, mjög lánlegt, að hæstv. viðskmrh., Gylfi Þ. Gíslason, komst til samfélags við flokk, sem gat orðið honum samferða um gengislækkunarplönin hans og er nú í þann veginn að koma þeim á stað inn í löggjöf landsins.

Það var einhvern tíma í umræðum hér skömmu eftir 1950, að hæstv, viðskmrh., Gylfi Þ. Gíslason, var að ræða um Eystein Jónsson, sem þá var í samstarfi við Sjálfstfl., og sagðist varla þekkja Eystein Jónsson, varla sjá í hann, hann væri svo kominn á kaf í íhaldsrykið, að Eysteinn þekktist ekki gegnum það. En ég fyrir mitt leyti verð að segja: Svo mikill íhaldsrykmökkur umlykur nú minn fyrri samstarfsmann, Gylfa Þ. Gíslason, að ég þekki hann ekki fyrir þann Gylfa Þ. Gíslason, sem ég umgekkst og starfaði með í kringum 1950. Þá var hann á móti gengislækkun, þá var hann á móti söluskatti. Nú er hann með hvoru tveggja ásamt íhaldinu og ekkert, sem skilur a.m.k. hann og að því er ég bezt veit núv. hæstv. fjmrh., Gunnar Thoroddsen, — hann mun vera hinn pjakkurinn, sem ætlar að þrengja þessu í gegn og virðist trúa því, að þetta sé höfuðnauðsyn fyrir velferð þjóðarinnar.

Ég held, að þessum tveimur mönnum, Gylfa Þ. Gíslasyni og Gunnari Thoroddsen, missjáist báðum og hitt sé miklu sannara, hin tilfinningin, sem hæstv. forsrh, og hæstv. dómsmrh. og hæstv. sjútvmrh., Emil Jónsson, hafa gagnvart þessum ráðstöfunum. Þeir víta, að þetta er til ófarnaðar. Þeim stendur stuggur af því. Þeir bara finna ekki dyrnar til að snúa við út á ný. Og það eru a.m.k. engar getgátur, því er ekki hægt að hnekkja, að Emil Jónsson hefur tvivegis kveinkað sér undan því að verða að fylgja þessum tillögum.

Hæstv. forsrh. sagði undir lok sinnar ræðu í gær: Gengislækkun er örlagaríkt skref, sem ríkisstj. stígur ekki með léttum huga. — Þarna heyrir maður, hvernig honum er innanbrjósts. Honum er ekkert rótt. Hví eru þessir menn þá að útmála þetta allt saman sem eintóma dýrð, öllum sé gert þetta auðveit og létt og sumir græði á því, það sé gert svo sérstaklega vel við öryrkja, gamalmenni og stórar fjölskyldur, það sé bókstaflega þeim til hagsbóta, og yfirleitt leitast við að gylla þetta svo á allan hátt, að þetta sé einhver dýrð og blessun?

Þá sagði hæstv. forsrh., að menn töluðu um gengisfall eins og það hefði aldrei átt sér stað áður. Þetta finnst mér tilefnislaust af hæstv. forsrh. Menn hafa hér einmitt talað um gengislækkun sem alkunnan hlut, alkunna ráðstöfun í sínum verkunum, og menn hafa vitnað margsinnís til gengislækkunarinnar 1950, framkvæmdarinnar á henni og afleiðingarnar af henni. Menn hafa ekki verið að fara með neina lygi, þegar þeir hafa bent á, að af henni leiddi gífurlegar verðhækkanir, af henni leiddi atvinnuleysi, og þannig hafa þessir menn verið minntir á einmitt, að gengislækkun hafi verið gerð fyrr og hvaða alvarlegar afleiðingar hún hafi leitt af sér. Það er því rangt hjá hæstv. forsrh., að hér hafi verið talað um gengislækkun eins og eitthvað, sem hafi ekki átt sér stað áður.

Þá sagði hæstv. forsrh.: Ég vil bókstaflega ekki lifa í þessu þjóðfélagi, þar sem helmingurinn af þjóðinni verður að bugta sig og beygja til að biðja um eitt og annað. — Hv. þm. Einar Olgeirsson vék að þessu hér áðan og sagði: Væri það nokkuð betra, að bugtið og beygingarnar færðust úr innflutningsskrifstofunni niður í bankana? Ég undirstrika það. Ég held, að það væri skollans lítill munur á því, og hygg, að hvort tveggja mundi koma við hið viðkvæma hjarta hæstv. forsrh. á svipaðan hátt. En ég vil leiða huga hæstv. forsrh. að öðru, og það er, að það er ekkert langt síðan, það er í hans minni og mínu minni, þeir dagar, þegar verkalýðurinn, þegar helmingur þjóðarinnar varð að bugta sig og beygja fyrir atvinnurekendunum til að biðja um vinnu. Og það er einmitt sá þjóðfélagssvipur, sem þeir eru að framkalla nú með þessu frv., það er einmitt það að láta verkalýðinn í landinu þurfa að bugta sig og beygja fyrir atvinnurekendum til að biðja um vinnu, því að þeir eru með þessu að skapa atvinnuleysi á Íslandi. Það er verra þjóðfélag en það þjóðfélag, sem Ólafur Thors segist ekki vilja búa í, það þjóðfélag, sem að miklu leyti hefur mótazt í mynd Ólafs Thors, því að hann hefur öðrum mönnum lengur verið ráðandi maður í ráðherrastólum á Íslandi, þetta þjóðfélag bugtsins og beyginganna, sem verður þá hraklega miklu verra, ef það yrði snertandi það, að vinnustéttirnar þyrftu að bugta sig og beygja fyrir atvinnurekendum um að fá að vinna.

Ég sé það, að ef ég ætti að fara að ræða um öll atriði í ræðum ráðherranna og annarra stjórnarsinna, sem tekið hafa þátt í þessum umræðum, þá mundi ræða mín taka marga klukkutíma, en ég vil ekki, eins og á stendur nú, gera það. Ég vil því víkja aðeins að meginatriðum frv. sjálfs og vona, að mér takist að gera því skil á ekki allt of löngum tíma. Mér er ekkert í mun að koma á neinn hátt í veg fyrir það, að þetta mál komist til n. og fái sína meðferð þar og umhugsun núna um helgina.

Það er þá út af ræðu hæstv. sjútvmrh. áðan, sem ég vil bæta við nokkrum orðum, áður en ég vík að meginatriðum frv. Og það var þetta: Hæstv. sjútvmrh. gerði grein fyrir afkomu útflutningssjóðs nú, eins og hann telur hana vera. Og hann taldi það ýkjulaust vera niðurstöðuna, að tekjur útflutningssjóðs á árinu 1959 hefðu jafnvel meira en staðið undir útgjaldakröfum á sjóðinn á sama tíma, á árinu 1959, því að hann hefði borgað mikið af kröfum, sem hefðu tilheyrt árinu 1958. M.ö.o.: hann gaf sig ekki enn þá með að halda því fram, að útflutningssjóður og afkoma hans nú væri ekkert vandræðamál fyrir stjórnarvöldin, það þyrfti enga stórbyltingu að gera vegna þess, — það virtist mér vera niðurstaða hæstv. ráðherra. Útflutningssjóðurinn stæði vel fyrir sínu, hefði borgað meira tilheyrandi árinu á undan en hann ætti eftír að borga tilheyrandi árinu 1960. Og ástæðan til þess, að það þyrfti að ætla þarna fyrir aukatekjum til þess að gera upp hala frá útflutningssjóði, væri eingöngu kerfisbreytingin, það, að hann fengi ekki tekjur af þeim birgðum, þeim ofsalegu birgðum, sem nú væru í landinu og hann hefði átt við áframhaldandi starf að fá tekjur af. Og ég hygg, að þetta sé nokkuð nálægt því rétta. En þar með er líka burt fallin ástæðan fyrir því, að hæstv. núv. ríkisstj. hafi orðið að fara út í neinar stórkostlegar neyðarráðstafanir vegna afkomu útflutningssjóðs og þar með vegna nokkurra vandkvæða sjávarútvegsins, höfuðatvinnuvegar þjóðarinnar. Í leiðinni gat svo hæstv. sjútvmrh. þess, að sér væri kunnugt um það, að hagur ríkissjóðs væri nú með þeim hætti, að þar væru heldur engin vandræði á ferðinni, hann væri greiðsluhallalaus á árinu 1959. M.ö.o.: til engra örþrifaráða á að þurfa að grípa samkv. orðum þessa hæstv. ráðh. út af afkomu útflutningssjóðs eða ríkissjóðs, — og ég tek þetta sem sannleiksvitni, sem ég megi treysta. Ekki þarf þá núv. hæstv. ríkisstj. að fara út í þessar örvilnunarlegu ráðstafanir í efnahagsmálum vegna afkomu ríkissjóðs eða útflutningssjóðs, — ég slæ því föstu. Þá er það: Er það gjaldeyrisafkoman, gjaldeyrishallinn út á við, sem rekur þá út í þetta? Ég held ekki. Ég held, að þar sé ekki um breiðara bil að ræða en svo á árunum 1958 og 1959, að það væri auðvelt verk að óbreyttu kerfi að auka svo framleiðslumagn þjóðarinnar og þar með gjaldeyristekjur, annaðhvort með betri nýtingu atvinnutækja eða aukinni vinnslu okkar eigin afurða, að með því að setja skynsamlegar reglur um að fresta minnst nauðsynlegum fjárfestingaraðgerðum ætti að vera hægt að ná saman endum gjaldeyrislega og byrja það starf að mynda nokkurn gjaldeyrisvarasjóð. Það er rétt, það er hæpinn búskapur að standa ár eftir ár algerlega gjaldeyrisvarasjóðslaus og hafa ekkert upp á að hlaupa, ef eitthvað kynni út af að bera. En hvaða leið er eðlilegri til þess að ná þarna endum saman en aukin framleiðsla og að draga úr notkun gjaldeyris, þar sem minnst nauðsyn knýr á að nota hann? En það verður að gerast með skipulagi. — Ég hygg, að þetta sýni augljóslega, að það er ekki heldur hægt að fóta sig á þeim fyrirslætti, að núv. hæstv, ríkisstj. hafi neyðzt út í þessar aðgerðir til þess að brúa bilið í gjaldeyrismálunum út á við.

Þá eru það skuldirnar, skuldirnar við útlönd svo ofsalegar, greiðslubyrðin svo mikil, að það eru ekki þess dæmi á byggðu bóli nokkurs staðar í veröldinni, að annað eins hafi gerzt. Ég verð að segja það, að við getum tekið tugi og hundruð af dæmum á Íslandi í okkar þjóðarbúskap, sem eru einsdæmi. Það eru hvergi í veröldinni 170 þúsundir manns, sem reka háskóla. Aðrir skilja ekkert í, að við getum það. Það eru hvergi á byggðu bóli svo fáar manneskjur, sem hafa staðið undir öðru eins vegakerfi og við höfum byggt upp á nokkrum áratugum. Þeir skilja ekkert í því heldur. Þær skilja ekkert í því yfirleitt, milljónaþjóðirnar, tugmilljónaþjóðirnar, hvernig Íslendingar geti það, sem við þó gerum. Þær skilja yfirleitt ekkert í okkar málum. Hvenær skildu Danir það, að við gætum byggt vegi og brýr í okkar landi og haldið uppi skólarekstri, kostað utanríkisþjónustu og annað slíkt? Þeir fullyrtu, að þetta væri óhugsanlegt, Íslendingar hlytu að fara á rassinn með þetta allt saman og koma þá krjúpandi til Dana á ný. Það er ekki rétta aðferðin að leita til útlendinga til að spyrja, hvað við eigum að gera, sízt af öllu þegar í þá er tugginn sá svartnættisbarlómur, sem sífellt er sunginn hér innanlands af þessum hagfræðingaskara okkar. Og þegar þeir eiga svo að byggja sín reikningsdæmi á þessu, á þessum svartnættissöng, þá getur ekki komið út úr því annað en eymd, og það gerir það heldur ekki. Eins og í hagfræðingana erlendu er tuggið af þeim mönnum, sem þeir treysta að hafi vit á íslenzkum málum, eftir því fer útkoman úr dæminu þeirra. Og við vitum alveg, að þeim er sagt þetta, að hér sé allt á hvínandi hausnum, allt í hroðalegu feni.

Skuldirnar eru miklar, af því að við höfum verið mikið að starfa, af því að við höfum verið að byggja fyrir framtíðina og gera Ísland betur stætt til þess að standa sig gjaldeyrislega og fjárhagslega yfirleitt. Við erum betur staddir gjaldeyrislega, eftir að við erum búnir að koma upp sementsverksmiðjunni, við spörum okkur tugi milljóna í gjaldeyri á ári með því. Við erum betur staddir gjaldeyrislega eftir að hafa byggt upp raforkukerfið, komið upp Sogsvirkjuninni m.a. að miklu leyti fyrir lánsfé. Við þurfum ekkert að kveinka okkur undan því að skulda þessi lán. Þessi fyrirtæki gera íslenzku þjóðfélagi það auðvelt að endurgreiða þessi lán. En svo kemur núv. ríkisstj. og segir, þegar hún er rétt búin að syngja barlómssönginn um hinar miklu erlendu skuldir, og tilkynnir: Við bætum bara ofan á þetta 20 millj. dollara láni. — Það þýðir ekkert að vera að rífast hér um það, hvort það eigi að étast út, hvort það sé eyðslulán eða hvort það sé ekki til framkvæmda. Því er bætt ofan á þetta. Þessir syngjandi menn bæta ofan á þetta 20 millj. dollara lántöku, og auðvitað kostar það vexti, auðvitað þyngir það greiðslubyrðina, en léttir hana ekki. Svona menn eru ekki teknir alvarlega að því er þetta atriði snertir, og þannig mun vera um fleiri.

Ég fæ því ekki komizt að þeirri niðurstöðu, að þeir hafi verið reknir út í þessar aðgerðir, gengislækkunina, vegna fjárhagsafkomu ríkissjóðs, vegna neins greiðsluþrots hjá útflutningssjóði, vegna gjaldeyrisstöðunnar eða vegna skulda erlendis. Þá fer mönnum að verða þetta lítt skiljanlegt. En það er enginn vafi á því, að þarna reka eftir erlend fjármálaöfl og innlendir auðmenn.

Hvað felst í þessu frv., og hvað er líklegt að verði þjóðfélagslegar afleiðingar af samþykkt þess? Í fyrsta lagi er meginbreytingin þetta, að amerískur dollar kemur til með að kosta 38 litlar íslenzkar krónur eða enskt pund 106 íslenzkar krónur. Auðvitað þýðir þetta, að allar aðkeyptar vörur hljóta að hækka gífurlega í verði, og enginn af stjórnarherrunum hefur leyft sér að neita því. Það vita allir. Gífurleg verðhækkun er fram undan. Ný verðhækkunaralda hlýtur að rísa gegn þeim mönnum, sem hafa verið að telja þjóðinni trú um, að þeir væru verðstöðvunarmenn, og stóðu ábyrgir gagnvart þjóðinni í síðustu kosningum sem slíkir. Ýmsar vörur eiga þó að hækka í verði miklu meira en gengisfellingin leiðir af sér. Það er t.d. vitað um hina almennu notkunarvöru margra einstaklinga og atvinnuveganna á Íslandi, benzín, það á að hækka miklu meira en leiðir af gengislækkuninni. Á það er lagður í leiðinni sérstakur skattur ofan á þá skatta, sem á þeirri vöru voru, — hún er víst ekki nógu dýr og á að verða einn af skattstofnum ríkissjóðs í þessu augnamiði. Ég hef það fyrir mér í fjárlagafrv., að á sömu stundu sem þeir þar opinbera, í útgáfu nr. 2 að engin laun nokkurs opinbers starfsmanns eigi að hækka um einn einasta eyri á öllu árinu 1960, þar eru tölurnar í seinna frv. alveg nákvæmlega þær sömu og í því fyrra, þá eiga allir matvæla- og fæðiskostnaðarliðir íslenzkra ríkisstofnana að hækka í kringum 20%, þegar tekið er tillit til þess, að engin slík breyting kemur á fyrstu tvo mánuði ársins. Upphæðirnar hækka þar. Þeir búast við, að á síðari hluta ársins hækki matvörur og allt slíkt fyrir þessar stóru ríkisstofnanir, sem nemur eitthvað um 20%, því að liðirnir í seinni útgáfu fjárlagafrv. eru þeim mun hærri. Þetta kemur af því, að þeir vita það ósköp vel, að hver biti og hver sopi verður tollaður meira en nokkru sinni áður og fær á sig hækkun af völdum gengislækkunarinnar, og hver einasti maður á Íslandi fær því þessa dýrtíðaraukningu yfir sig, hvort sem hann þarf að kaupa sér til fæðis eða klæða eða til sinnar fjölskyldu. En launin, þau eiga að vera hin sömu hjá öllum opinberum starfsmönnum út allt árið. Svona er farið með þetta fólk, svona er ætlunin að fara með það, ef það tekst.

Ég skal ekki vera fjölorðari um verðhækkunina, sem vitað er um að er bein afleiðing af samþykkt þessa frv., þegar þar að kemur. Hún er ofsaleg. Verðhækkunaraldan, sem skellur yfir þjóðfélagið, er ofsaleg. Þeir hafa sjálfir verið að reikna út: Af þessu leiðir hækkanir svona 13–14%. — 14% er sama sem 28 vísitölustig miðað víð gömlu vísitöluna, 29 raunar. Það hefði einhvern tíma þótt vera nokkur kjaraskerðing að eiga að taka á sig byrði af 29 vísitölustigum, ofan á það þá, að á siðasta ári voru tekin af launafólki í landinu 17 vísitölustig með niðurgreiðslu og 10 felld í burtu með löggjöf algerlega bótalaust. 27 vísitölustig fóru þar. Nú telja þeir sjálfir, að þetta muni nema 29 vísitölustigum, og vitum við þó, að allir útreikningar allra sérfræðinga hafa í sambandi við framkvæmd allra þeirra gengislækkana, sem framkvæmdar hafa verið á Íslandi, orðið sér til skammar, alltaf verið miklu miklu lægri en verðhækkanirnar, sem hafa komið. Við vitum það ósköp vel, að þessi verðhækkun verður miklu meiri.

Annað, sem kemur með samþykkt frv., er hækkun allra vaxta, og henni er skellt á í sama tilgangi, til að rýra og skerða kjör einmitt hinna fátækustu á tilfinnanlegastan hátt. Og á sama hátt og verðhækkanirnar munu draga úr framkvæmdum, framkvæmdagetu bæði einstaklinga og hins opinbera, eins munu vaxtahækkanirnar verka á þann veg að draga úr framkvæmdagetu einstaklinga og opinberra fyrirtækja, draga úr vinnumagni í landinu, og til þess eru refirnir skornir.

Á lántökuna stóru, 20 millj. dollarana, 800 millj. íslenzkra króna, hef ég áður minnzt, og skal ég ekki víkja að því aftur.

Svo er það þriðja tilræðið við launamenn. Það er afnám vísitölunnar á launum. Ef nú hefði verið fram undan kyrrstöðutímabil um verðlagsmál, þá hefði þetta kannske verið forsvaranlegt. En þegar fram undan eru stórkostlegar verðhækkanir eftir nokkrar vikur eða mánuði, kannske upp á 20–30%, þá er tilfinnanlegt fyrir verkamenn að fá ekki verðlagsuppbætur á sín laun.

Menn hafa verið að tala um það, að vísitölukerfið hafi verið rót alls ills í þeirri hringrás verðhækkana og kauphækkana, sem við höfum búið við. Það er vafalaust, að vísitölukerfið hefur haft sína galla, einkum af því, að það var ekki látið verka á neitt annað en launin. Ég er sannfærður um það, að það var réttmætt, að vísitalan verkaði á allt lánsfé og enginn maður í þessu þjóðfélagi fengi lánsfé nema með vísitölukjörum, meðan vísitölukerfið var á annað borð í gildi. Það voru þeir karlar, sem græddu á vísitölukerfinu, sem gátu fengið lánsfé án vísitölukjara og eignuðust síðan fasteignir, sem uxu sífellt í verði meira en nokkuð annað í þjóðfélaginu. Þannig söfnuðu þeir í sína varasjóðl. Ef þeim hefði orðið lánsféð dýrara, þá hefðu þeir ekki ausið svo af þessum brunni sem þeir hafa gert. En hvað er vísitalan á kaupgjald? Er hún undirrót? Nei, hún var framkvæmd þannig, að þegar skýrslur sýndu á einhverju tímabili, að verðlag í landinu hafði hækkað svona og svona mikið á liðnum ársfjórðungi, þá var viðurkennd staðreynd um orðinn hlut og ákveðið með lögum, að kaupið ætti að breytast í hlutfalli við þessa hækkun verðlagsins. Þetta er staðreynd, sem enginn getur neitað. Þannig var vísitalan mælir á þær verðlagsbreytingar, sem komnar voru, og tók þó ekki gildi sem hækkað kaup fyrr en næsta ársfjórðung á eftir, þegar þrír mánuðir voru liðnir. En ég bendi á annað í sambandi við vísitöluna. Ég hygg, að hún hafi þó hlotið alltaf að verka nokkuð til aðvörunar, til varnaðar, af því að atvinnurekendaaflið í landinu vissi, að ef verðlagið hækkaði, kom kaupið á eftir vegna vísitölukerfisins. Fólk fékk bætur á kaup sitt, þegar verðlagið hafði hækkað. Það má því ætla, að ýmis öfl þjóðfélagsins hafi viljað fara varlega í verðlagsmálunum, gæta þar meira hófs, einmitt af því, að þau vissu, að allar launagreiðslur komu á eftir. En þegar þetta fellur burt og kaupið á að sitja eftir, þangað til verkalýðshreyfingin hefur gert nýtt áhlaup og jafnað metin, það þora þeir að treysta á að gerist með lengri millibilum. Hygg ég, að menn hafi misst afl, sem hélt aftur af í verðlagsmálunum hjá okkur, því að það ætti vísitalan einmitt að hafa gert út frá þessum rökum.

Allt þetta mun gera það að verkum, að hagur launþegans í landinu mun verða stórkostlega skertur við þessa lagasetningu, ekki aðeins við það, að verkafólkið verði að taka á sig verðhækkanirnar, missa vísitölubætur af sínu kaupi á sama tíma, taka á sig afleiðingar — flestir verða áreiðanlega að gera það meira eða minna — af vaxtahækkuninni, heldur umfram allt, og í því liggur höfuðkjaraskerðingin, að aðstaða manna og fyrirtækja til athafna, framkvæmda dregst saman, atvinnan minnkar, eftirvinnutekjurnar, sem menn hafa haft í þjóðfélaginu, falla niður meira eða minna, og getur farið svo meira að segja, að atvinnuleysi út yfir það verði afleiðing af þessum samdrætti. Þetta er það, sem fyllir nú kvíða verkalýð landsins og launþega yfirleitt langt út yfir raðir verkalýðssamtaka, ekki hvað sízt í þjónustu opinberra stofnana og ríkisins og í verzlunarstéttinni, hið láglaunaða starfsfólk þar, það kvíðir allt þessum búsifjum, sem nú virðast blasa við því sem afleiðingar af þessari hugsuðu lagasetningu ríkisstjórnarinnar, sem enginn getur eiginlega skýrt, hvers vegna sé skellt á. Menn fá ekki séð það, að þeir hafi verið neyddir til þess.

Þá segja stjórnarherrarnir núna: Við erum að hreinsa svo mikið til, við erum að afnema uppbótakerfið. — Það eina sanna í þessu er það, að þeir losna við útflutningsuppbæturnar á sjávarafurðir, taka svo tekjurnar, sem útflutningssjóður hafði, leggja þær inn í ríkissjóðshítina. En uppbótakerfið var fólgið í tvennu. Það var fólgið í útflutningsuppbótum og niðurgreiðslum á vörum innanlands, og eftir standa niðurgreiðslurnar, og það er meira að segja tilkynnt, að þær verði auknar, þær verði hækkaðar. Það er því ekki rétt, að þessir menn felli niður uppbótakerfið með þessu frv. Annar helmingurinn stendur eftir og verður aukinn.

Ég held, að þeir, sem verst eru leiknir í sambandi við þessa lagasetningu, séu sjómennirnir. Það er gefinn hlutur, að þegar útflutningsuppbæturnar falla niður, ákveðst fiskverðið í samræmi við hina nýju gengisskráningu. Útgerðarmennirnir eða eigendur fisks fá því sjálfkrafa sínar stórkostlegu hækkanir á fiskverði. En fá ekki sjómennirnir þetta líka? Er það ekki alveg sjálfsagður hlutur? Sjómenn á Íslandi höfðu vænzt þess, að þegar uppbótakerfið félli niður, mundu þeir, eins og gömul hefð er fyrir, sem er grundvöllur allra hlutaskipta, fá sama verð á hvert kg af fiski og útgerðarmaður, það væri sjálfsagður hlutur, því að þeir eiga aflann saman. Nei, þetta verður ekki. Það er einmitt skotíð inn í þetta vandræðafrv. ákvæði um það, að fyrst um sinn verði sjómennirnir að búa við það ákveðna verð, sem þeim var skammtað síðast, kr. 1.66 pr. kg, og fái því ekki hrundið eða breytt, fyrr en þeim aðila hefur með stéttarfélagsátökum tekizt að knýja fram nýja samninga við atvinnurekendur, útgerðarmenn. Þannig eru þeir í raun og veru einir allra stétta teknir út úr. Á þó að heita, að launamennirnir í landi hafi sitt grunnkaup frjálst, en þarna eru þeir a.m.k. bundnir við 1.66 á kg, þangað til þeir hafa hrundið því verði með nýjum samningum við útgerðarmenn, og það veit enginn, hvort það verður auðsótt eða torsótt. Togarasjómennirnir taka að nokkru leyti laun sín í aflaverðlaunum. Þeir eru líka bundnir með sérákvæði í frv., að þau verða metin á þessu ákveðna fiskverði, sem togarasjómenn hafa búið við, þó að togaraeigendurnir fái undireins hækkað verð á afla sinn sjálfkrafa með löggjöfinni.

Ég er hræddur um, að þessi ósanngirni í garð sjómanna, bæði bátasjómanna og togarasjómanna, að því er snertir aflaverðlaun þeirra, eigi eftir að hefna sín, það sé gáleysi hjá hæstv. ríkisstjórn að leika sjómannastéttina svona með þessari lagasetningu. Þeir hefðu átt að gæta þess betur, einkanlega þegar svo var ástatt, að kjör sjómanna á togurum hafa dregizt svo aftur úr nú, að menn hafa gengið unnvörpum af skipunum, og það var eitt stærsta hagsmunamál togaraeigenda að eiga frumkvæði að því sjálfir að bæta kjör togarasjómannanna, til þess að skipin þyrftu ekki að liggja við land mannlaus, ef sjómennirnir knýja það ekki fram sjálfir, og nú með þessu verða kjör þeirra enn um sinn enn verri en áður. Þar var lækurinn bakkafullur og meira en það, en nú flóir þarna út úr, og ég gæti því hugsað mér, að það yrðu fyrstu öldurnar, sem risu í formi verkfalla, ef þarna verður ekki úr bætt mjög skjótt og skyndilega, þegar þetta frv. hefur orðið að lögum. Og þegar sjómennirnir væru farnir af stað, þá er hætt við, að aðrir kynnu að fara að hreyfa sig líka.

Ég álít, að þessi ákvæði varðandi sjómennina og kjör þeirra séu mikið glapræði, og vara eindregið við því, að þau haldist í frv., teldi meira en sjálfsagt, að Alþingi breytti þessum ákvæðum og felldi þau niður, svo að það gerðist sjálfkrafa hvort tveggja, að sjómenn og útgerðarmenn fengju sína réttu hlutdeild í verðmæti aflans, eftir að skráning gengisins ákveður fiskverðið.

Þá kemur hin aukna skattlagning, sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrv., vissulega við buddu hvers og eins á Íslandi. Þarna er um að ræða 400–500 millj. kr. nýja skatta. Að frádreginni niðurfellingunni á tekjuskattinum er þetta allt um 400 millj. kr. Ef ekki er tekið tillit til tekjuskattslækkunarinnar, þá er það brúttó 500 millj. kr. Og tilfærslan öll, eins og hefur verið sýnt fram á, er ekki undir einum milljarð, ef ekki eitthvað á annan milljarðinn. Ekki er þetta kjarabót ofan á hitt, sem áður hefur verið nefnt.

Þó getur farið svo, að mestum samdrætti í framkvæmdum og þar með atvinnu valdi ákvæðið um bann við útlánaaukningu bankanna. Í grg. frv. er sagt, að óhófleg útlán við bankana séu önnur höfuðorsök þess, hvernig komið sé í ófarnaðarátt, höfuðorsökina eigi uppbótakerfið, en önnur höfuðorsökin sé útlánastarfsemi bankanna. Hverjir hafa stjórnað henni? Menn, sem langflestir eru algerlega undir áhrifavaldi þessara stjórnarherra, sem nú fara með völd í landinu. En hámarkið við útlánaaukningu er sett um 200 millj. kr. Yfir það mark má ekki fara, ekki einu sinni um endurkaup afurðavíxla, þar á að setja markið ósveigjanlega. Þetta getur fyrst og fremst orðið rothögg á athafnalífið í landinu og dregið atvinnulífið saman öllu öðru fremur. Það getur vel verið, að þetta ákvæði, þó að það láti ekki mikið yfir sér, verði vinnulýð landsins skeinuhættara sem kjaraskerðing heldur en jafnvel gengislækkunin sjálf og verðhækkanirnar, — samdrátturinn, sem af þessu gæti leitt í atvinnulífinu, er ískyggilegur.

En það sé fjarri mér að nefna eingöngu það, sem er til tjóns fyrir launþega landsins og fyrir fjöldamargar stéttir þjóðfélagsins utan verkalýðssamtakanna. Ég skal sannarlega víkja að sárabótunum, sem hæstv. ríkisstj. hampar svo mjög og telur að eigi að bæta þetta að fullu. Sárabæturnar eru fólgnar í niðurfellingu tekjuskatts á lágtekjum, hækkun elli- og örorkulífeyris og hækkun fjölskyldubóta.

Við skulum víkja fyrst að tekjuskattinum.

Maður með venjulegar verkamannatekjur, 50–60 þús. kr., ef hann er fjölskyldumaður, hefur hann ekki fengið háan tekjuskatt. Það er engin óskaplega há upphæð, sem af honum er létt, þótt það séu þessir aumustu, þessir fátækustu, þessir getuminnstu, sem ríkisstjórnin segist bera fyrir brjósti með þessu. Ég skal alls ekki neita því, að þetta er svolítill léttir, en þetta er ekki stórfellt. Og svo segja þeir: Þetta á líka að verka á útsvörin, því að við ætlum að taka af söluskattinum nýja, — það er nú einn bagginn, sem fólkinu er bundinn, það er hinn nýi söluskattur upp á 280 millj. kr., — en sveitarfélögin eiga að fá hluta af honum. Það gerir þeim mögulegt að lækka útsvörin. — Já, ætli það ekki.

Núverandi hæstv. ríkisstjórn tókst ekki að koma með fjárlagafrv., sem væri með lækkandi tölur. Nei, hún þurfti miklar auknar tekjur. Þar er hækkunin um 400 millj. kr. Ætli það reynist ekki svo, að bæjarfélögin verði að fá hækkun á sínum rekstrarútgjöldum líka, eins og ríkið, og þurfi því að fá hækkaðar útsvarsupphæðir í heild og að hlutinn af söluskattinum geri ekki mikið meira en fara í þessa hækkunarþörf? Ég er hræddur um það. Ég er ekki farinn að trúa því, að við fáum lækkuð útsvör í sveitarfélögunum af þessum ástæðum. Ég held því, að þarna sé eingöngu um að tala þá smávægilegu lækkun í útgjöldum, sem það er hjá verkamanni, sem er fjölskyldumaður með venjulegar verkamannatekjur, að hann losnar við tekjuskatt af 50–60 þús. kr. tekjum, og sú upphæð er ekki há.

En fjölskyldubæturnar, segja menn, þær eru þó mikils virði, verða 2600 kr. á barn, og sé barnahópurinn stór, þá er þarna komin stór upphæð. — Það er rétt. En lítum á það, hvaða áhrif aðgerðirnar hafa á útgjöld barnafjölskyldunnar og þá sérstaklega hinnar stóru barnafjölskyldu að öðru leyti. Með hækkuðum tollum og auknum sköttum, söluskattinum nýja m.a., aukast mikið útgjöld mannsins með 10 börn. Hver biti og hver sopi til fjölskyldunnar þarfa hefur verið hækkaður í verði með aðgerðunum, sem afleiðing af gengislækkuninni sjálfri og með álagningu nýrra skatta. Og hver flík utan um þessa stóru fjölskyldu hækkar líka í verði. Það er því enginn vafi á því, að það saxast fljótlega í hækkaða verðlaginu á hækkun fjölskyldubótanna hjá hinni stóru fjölskyldu, og það má mikið vera, ef það stendur þá nokkuð út af, sem hefur verið gert betur en að bæta það tjón, sem hún verður fyrir.

Þá er elli- og örorkulífeyrir. Mér hefur verið sagt, og því er haldið fram, að elli- og örorkulífeyrir eigi nú að hækka um 40%. Það er mikil hækkun. En gætum að því, að ellilífeyrir og örorkubætur hafa á seinni árum dregizt svo aftur úr að kaupmætti, að þessar bætur eru miklu smáskitlegri og að minna gagni en ellilífeyrir og örorkubætur voru, þegar almannatryggingarnar hófu göngu sína. Það var komið svo, að það var ekki á nokkurn hátt hægt að draga fram lífið á þessu fyrir öryrkjana og gamla fólkið, og það hefði verið algerlega óhjákvæmilegt að öllu óbreyttu að hækka þetta a.m.k. um 20–25%. Ef það hefði ekki verið gert að öllu óbreyttu, þá hefði það verið gersamlega ósæmilegt af löggjafanum. En segjum, að 20% af þessari hækkun fari í það, þá gæti svo farið, að gamalmennið og öryrkjarnir fengju um 20% sem bætur fyrir vaxandi útgjöld við að draga fram lífið við dýrtíðaraukninguna, og þá hygg ég, að ekkert standi út af hjá þessu fólki heldur. Þetta mun þó vera það fólk, sem helzt væri hægt að halda fram að stæði nokkurn veginn eins að vigi eftir þessar aðgerðir og áður.

Ég held, að það hefði verið gersamlega óframkvæmanlegt að fara út í svona aðgerðir án þess a.m.k. að bæta verulega hag þessa fólks. Ég held, að það hefði verið óframkvæmanlegt og sé þannig lítið að þakka. Þetta fólk hefði annaðhvort orðið að fara á opinbert framfæri eða deyja drottni sínum, ef ekki hefði verið þarna úr bætt. En ég dreg enga fjöður yfir, að þetta er það, sem helzt er hægt að telja aðgerðunum til ágætis, og það hefur líka á því verið staglazt sýknt og heilagt, að þetta eigi að fá fólk til þess að sætta sig við allar búsifjarnar.

Það mun þó koma í ljós, að gamla fólkið og öryrkjar verða ekki ofsælir af því að eiga að bjargast, jafnvel eftir 40% hækkun á sínum ellilífeyri og örorkubótum, eftir að afleiðingar verðhækkananna eru komnar allar fram.

Hæstv. forsrh. sagði, þegar hann kynnti verkalýðssamtökunum þessar aðgerðir einum 2 dögum áður en hann lagði þær fram: Því verður ekki neitað, að við erum góðir við ellina og örorkuna og stóru fjölskyldurnar. — En það hefur margur maðurinn bent á það í þessum umræðum, að ekki eru þeir jafngóðir við unga fólkið. Það er alvarlegt fyrir það, það er alvarlegt fyrir alla einhleypa menn í þessu landi. Það eru engin gæði, sem blasa við því fólki, og það er margt. (Gripið fram í.) Það er allalvarlegt efnahagsástand fram undan fyrir opinbera starfsmenn á lágum launum, sem eiga að vera með sitt lögbundna kaup út allt árið. Iðnverkafólkið með sín lágu laun, jafnfjölmennt og það er, það verður ekkert sældarbrauð hjá því. Sjómennirnir eru verst leiknir, tel ég, af öllum, unga fólkið jafnvel ekki undanskilið. Og verkafólkið, það verður vissulega fyrir þungum búsifjum vegna hinnar vaxandi dýrtíðar, en þó mest vegna atvinnusamdráttarins, sem alveg óyggjandi leiðir af þessu frumvarpi.

Hverjir græða? Það verða áreiðanlega fáir, en ríkir einstaklingar, sem græða á þessu, en allur fjöldinn tapar. Meðal þeirra, sem græða, eru Bandaríkjamenn. Þeir geta borgað 2 vinnustundir Íslendinga nálega með 1 dollar eftir breytinguna, en dollarinn dugði ekki nema rúmlega fyrir 1 klst. áður.

Nú spyrja fjöldamargir: Hvað gera verkalýðsfélögin? Opinberir starfsmenn spyrja alveg unnvörpum: Koma ekki verkalýðsfélögin núna með aðgerðir og knýja fram launahækkun, þannig að opinberir starfsmenn njóti þess og geti knúið fram launahækkanir á eftir?

Þessu getur enginn svarað. Menn verða að hafa það í huga, að hvert einasta verkalýðsfélag er lýðræðisleg heild út af fyrir sig. Hvert verkalýðsfélag hefur fullan sjálfsákvörðunarrétt um öll sín innri mál. Það getur því enginn sagt verkalýðsfélagi, hvenær það eigi að fara í verkfall. Það, sem gerist, er þetta: Nú þegar þetta frv. er komið fram og eftir að það er kannske orðið að lögum, þá munu verkalýðsfélögin hvert um sig ræða þetta mál, þessar aðgerðir, og taka sínar ákvarðanir. Ef þeim finnst, að lofgerðarrollan um þessar aðgerðir — þarna sé öllum bætt allt — sé sannleikanum samkvæm, þá þarf hæstv. ríkisstjórn ekkert að óttast, þá þarf hún ekki einu sinni að biðja um frest, ekki gálgafrest einu sinni, þá má hún vera róleg. En ef hún veit sig hafa verið að ljúga og velt, að þessar aðgerðir bitna harkalega á svo að segja hverjum vinnandi manni á landi og sjó, á skrifstofum eða hvar sem þeir vinna, þá má búast við því, að hin lýðræðislega niðurstaða í verkalýðsfélögunum verði sú, að félögin grípi til sinna mótaðgerða. Og þá duga engar bænir, eins og sagt var. Það var bóndi, sem var að spyrja prestinn að því: Hvað á ég að gera, túnið sprettur ekki hjá mér? — Og prestur kom og leit á þetta, sagði svo, — þótt það þætti kannske ekkert prestlegt, — hann sagði bara: Hér duga engar bænir, hér þarf bara skít. — Og það mun hafa verið sannleikur hjá honum. Það duga engar bænir við verkalýðsfélögin. Ef þessar aðgerðir, sem hér er um að ræða, bitna eins harkalega á verkalýðnum í rýrnandi vinnu og ég hér hef verið að leiða líkur að, þá duga ríkisstjórninni engar bænir. Ég skal ekki segja, hvort það verður kastað í hana skít. Nei, en það verður kannske eitthvað harðara en það.

Þannig standa nú sakir, að verkalýðsfélögin hafa flest sagt upp sínum samningum. Þau geta því, undireins og þau hafa áttað sig á þessum málum, borið fram sinar kröfur og gera það vafalaust, og þau félög, sem hafa ekki sagt upp samningum, munu flest hafa það ákvæði í þeim, að samningarnir séu sjálfkrafa úr gildi fallnir við breytta gengisskráningu ísl. krónu. Ég hygg því, að segja megi, að svo að segja allir launasamningar á vegum stéttarfélaganna í landinu séu nú lausir og að samningsaðilar geti komið til með að eigast við um ákvörðun nýrra samninga hvenær sem er.

Hæstv. forsrh, sagði hér í dag: Lofið fólkinu að dæma þessar aðgerðir. — Það er einmitt það, sem verður gert. Það er enginn dómari til annar en fólkið sjálft, t.d. í verkalýðshreyfingunni, og það er sjálfsákvörðunarréttur þess, sem mun leiða til þeirra aðgerða, sem verkalýðsfélögin á sínum tíma ákveða. Hvenær það verður ákveðið, það fer eftir vilja hvers verkalýðsfélags um sig. Ef þau sameina sig um það, þá er það skipulagsatriði hjá þeim. En þau munu ekki dæma eftir öðru en afleiðingunum, sem koma í ljós, eftir að þetta frv. hefur orðið að lögum. Það þarf enginn að halda, að það verði komið fram neinum mótaðgerðum gegn þessari löggjöf, ef hún kemur ekki harkalega við fólkið. En það er staðreynd, þessi löggjöf hefur verið undirbúin án samráðs við fólkið í launþegasamtökum hins opinbera, án samráðs við forustumenn bændastéttarinnar, að ég hygg, án nokkurs samráðs við forustumenn verkalýðssamtakanna. Þetta er kontórverk fræðimanna og valdhafa í ráðherrastólum. En ég er ekkert viss um, að þessi verk þeirra standist. Ef þau reynast vera árás, tilefnislítil eða tilefnislaus árás á lífskjör meginstétta þjóðfélagsins, þá munu þessi voldugu verk falla.