12.02.1960
Neðri deild: 29. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 825 í B-deild Alþingistíðinda. (2021)

48. mál, efnahagsmál

Forseti (JóhH):

Umræður hafa nú staðið lengi, og það er nokkuð liðið á nótt. Það er hins vegar áform forseta að freista þess að ljúka þessari 2. umr. nú í nótt. Hún hefur staðið um það bil í 17 klukkutíma og stjórnarandstaðan haft til umráða nærri 12 tíma af því, og mér finnst þess vegna ekki fjarri lagi að mælast nú til þess við hv. þm., sem eiga eftir að tala hér og kveðja sér hljóðs í kvöld, að þeir reyndu eftir föngum að stytta mál sitt, án þess að nokkur till. sé gerð um það að takmarka umræður.