12.02.1960
Neðri deild: 29. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 847 í B-deild Alþingistíðinda. (2026)
48. mál, efnahagsmál
Ágúst Þorvaldsson:
Herra forseti. Ég hef ekki tekið þátt í umr. um þetta mál, sem hér er á dagskrá, fyrr en nú, en kann nú ekki við annað samt en láta skoðun mína í ljós, en mun þó ekki lengja umræður neitt úr hófi fram.
Ég býst við, að það hafi fleiri tekið eftir því en ég, að við þær umr., sem hér hafa orðið, og þau blaðaskrif, sem orðið hafa um efnahagsmálafrv. það, sem hér er til 2. umr., hefur hæstv. ríkisstj. hrósað sér mjög af þeim kjarki, sem hún hafi þurft að taka í sig og hafi beitt til þess að bera þetta frv. fram. Mér finnst það nú kannske vera mannlegt af hæstv. stjórn að hrósa sér fyrir áræði sitt og fyrir úrræði sín, ef úrræði skyldi kalla, því að ég er viss um, að það gera ekki aðrir. Ég skal að vísu viðurkenna, að það er allsérkennilegur kjarkur, sem kemur fram í því að taka þá kollsteypu, sem hæstv. stjórn hefur tekið. Það þarf þó nokkurn kjark til þess að hafa endaskipti á sjálfum sér, en mér sýnist, að það hafi sú stjórn gert, sem sagði, eða þeir menn, sem skipa þessa hæstv. stjórn, sem sögðu í haust fyrir kosningarnar, að allt væri hér í lagi í efnahagsmálum þjóðarinnar, en nú nokkrum mánuðum síðar, þegar þeir hafa fengið völdin í hendur, leggja á þjóðina slíkar drápsklyfjar sem frv. þetta gerir ráð fyrir.
Þessi hæstv. stjórn, eða þeir menn, sem skipa þessa hæstv. stjórn, skömmuðu sumir hverjir, a.m.k. sjálfstæðismennirnir, á sínum tíma vinstri stjórnina fyrir að hafa tekið erlend lán til framkvæmda, og þeir kalla það nú eyðslulán. En þeir láta það verða svo sitt fyrsta verk að semja við erlenda fjármálastofnun um 800 millj. kr. lántöku og lofa því í staðinn að kaupa alls konar vörur, sjálfsagt bæði þarfar og óþarfar, af þeim þjóðum, sem lánið veita. Ég tel, að það þurfi líka kjark til þess að boða samdrátt og stöðvun í framkvæmdum og atvinnulífi þjóðarinnar, en það gerir hæstv. stjórn á þann hátt að boða afnám okurlaganna, svo að hún geti ákveðið vexti svo háa sem henni sýnist og takmörkun á útlánum bankanna, svo að þeir, sem vilja starfa að atvinnurekstri og framleiðslu, geti ekki fengið eða notað lánsfé. Ég kalla það að hafa endaskipti á sjálfum sér að nefna slíkan boðskap bjargráð, og ég undrast, að greindir og reyndir menn skuli gera slíkt.
Stjórn fjármála og efnahagsmála hefur alltaf verið vandaverk, og auðvitað eru einstaklingum og ríkisstjórnum mjög mislagðar hendur um slíkt viðfangsefni. Hjá okkur Íslendingum er að mínum dómi ekki nema um eina leið að ræða, til þess að við getum búíð við allgott efnahagslegt öryggi. Það er sú leið að halda áfram að efla atvinnulíf okkar til lands og sjávar, efla hina fornu atvinnuvegi, landbúnaðinn og sjávarútveginn, og styðja og koma í framkvæmd nýjum atvinnuvegum, eftir því sem hentar bezt landsháttum og viðskiptum við önnur lönd.
Við höfum fram á síðustu áratugi búið í vanyrktu landi, og það er varla hægt að segja, að þjóðin hafi átt þak yfir höfuð sér, hvað þá meira. Við höfum orðið að byggja framkvæmdir okkar upp með erlendu lánsfé, sem eðlilegt er. Við hljótum að verða að halda þessu áfram, því að við getum ekki af eigin rammleik beizlað auðlindir landsins og gert okkur þær undirgefnar nema fá til þess fé að láni frá þeim þjóðum, sem stærri eru og á undan okkur í uppbyggingu. Svo fámenn þjóð sem Íslendingar eru enn getur ekki safnað stórfé til framkvæmda. En við megum auðvitað ekki gera okkar framkvæmdir og haga okkar þjóðarbúskap skipulagslaust. Við þurfum að gera skynsamlegar áætlanir um þjóðarbúskap okkar og framkvæmdir og standa við þær. Þá skapast festa í atvinnulífi og flóttinn frá framleiðslunni hverfur. Þær ráðstafanir, sem nú er verið að gera, munu hins vegar valda upplausn í framleiðslunni og flótta, a.m.k. frá vissum þáttum hennar.
Á undanförnum árum hefur margt og mikið verið gert til umbóta í sveitum þessa lands. Bændurnir hafa ræktað og byggt upp á jörðum sínum, og það hafa verið reist; dýr sláturhús, frystihús og mjólkurbú og byggt upp dýrt flutninga- og dreifingarkerfi fyrir mjólkina. Þrátt fyrir þessar miklu framkvæmdir, sem búið er að koma upp, er þó enn meira eftir að gera. Sérstaklega er enn eftir að byggja mikið í sveitunum og vélvæða landbúnaðinn enn betur en enn er orðið. Það er fyrirsjáanlegt, að efnahagsmálafyrirætlanir hæstv. ríkisstj. munu stöðva að fullu og öllu framkvæmdir hjá bændunum, og ég hygg, að flótti muni hefjast úr sveitum landsins vegna þessara ráðstafana. Verðhækkunin, sem núna verður á vélum og byggingarefni, mun stöðva vélakaup bændanna og byggingarframkvæmdir, og hækkun sú, sem verða mun á rekstrarvörum landbúnaðarins, hlýtur óhjákvæmilega að leiða til samdráttar í framleiðslunni, enda þótt gert sé ráð fyrir hækkun á afurðaverði til samræmis, sérstaklega þegar þess er gætt, að rekstrarlán verða ófáanleg og ótakandi, þótt þau fengjust, vegna hinna háu vaxta, sem nú er gert ráð fyrir.
Ég verð að segja það, að ég öfunda ekki hæstv. landbrh. af hans hlutverki í þessari hæstv. ríkisstjórn. Hann taldi bændum trú um það, þegar vinstri stjórnin var við völd, að hún vildi troða niður af þeim skóinn. Og hann bað bændur í haust, fyrir kosningarnar, um traust og fylgi og kvað þeim þá mundi betur vegna, ef hann og hans flokkur kæmist til valda. Ég minnist þess sérstaklega, hversu hann á framboðsfundum lýsti því í Suðurlandskjördæmi, að Mjólkurbú Flóamanna væri illa statt, og taldi vera um óstjórn þar að ræða. En þar er nú nýlokið miklum byggingarframkvæmdum, sem kostað hafa stórfé á okkar íslenzka mælíkvarða. Fé til þeirra framkvæmda hefur Landsbankinn lánað, og erum víð bændur austanfjalls þakklátir fyrir þá vinsamlegu afstöðu, sem ráðamenn þeirrar stofnunar hafa sýnt fyrirtæki okkar, mjólkurbúinu, að hafa látið því í té lánsfé. En vitaskuld hefði sú stofnun, mjólkurbúið, þurft á ódýrara lánsfé að halda og þarf nauðsynlega á ódýrara lánsfé að halda en hún hefur haft.
Hæstv. landbrh. hét bændum því, þegar hann var að biðla til þeirra um fylgi í kosningunum á s.l. hausti, að hann mundi beita sér fyrir útvegun ódýrari lána. Ég vil halda því fram, að hæstv. landbrh. hafi fullan vilja í þessu efni. En sýnilegt er, að hann hefur þó látið hafa sig til þess að taka þátt í og bera ábyrgð á ráðstöfunum, sem ganga í þveröfuga átt við kosningaloforð hans í haust og verða munu Mjólkurbúi Flóamanna svo hættulegar og þeim hundruðum bænda, sem þar eiga hlut að máli, að ekki verður séð fyrir endann á því, hvernig þeim voða, sem þar blasir nú við augum, verður afstýrt.
Þá vil ég minnast nokkuð á þá fyrirætlun, sem hæstv. stjórn vill fá lögfesta, en það er ákvæði 33. gr. frv. um, að Seðlabankinn geti innkallað verulegan hluta af því sparifé, sem innlánsdeildir kaupfélaga geyma og ávaxta fyrir fólk í dreifbýli landsins. Þetta fé er yfirleitt starfandi í framkvæmdum úti um land sem rekstrarlán bænda og smáútvegsmanna, sem húsbyggingarlán í þorpum og kaupstöðum og sem rekstrarfé kaupfélaganna. Fátt eða ekkert í efnahagsmálafrv. er jafnofbeldiskennt og þetta ákvæði. Fjármagn, sem myndazt hefur vegna framleiðslu og vinnu fólks úti um land og þar hefur veríð notað til umbóta á lífskjörum fólks og um leið þjóðarinnar allrar, skal nú tekið úr höndum þeirra, sem varðveita það, þeirra stofnana, sem fólkið hefur falið að geyma þetta fé og ávaxta það. Þetta kalla ég ofbeldi við byggðir landsins og fólkið þar. Ég tel, að engin ríkisstjórn megi gera sig seka um slíkar ofbeldistilhneigingar við fólkið úti á landsbyggðinni. Landið þarf allt að vera í byggð. En þetta ásamt öðru af svipuðu tagi mun leggja landið í auðn, ef ekki verður horfið frá þessari fyrirætlun.
Kaupfélögin og samvinnufélögin úti um landið eru þær stofnanir, sem eru fólkinu eins konar lífakkeri, og ef þessar stofnanir verða rúnar því rekstrarfé, sem þær hafa haft til umráða, spariskildingum fólksins, sem þarna býr, þá er grundvöllurinn undir atvinnulífinu á þessum svæðum þorrinn.
Ég verð að segja það, að mig furðar á því, að hæstv. landbrh., sem er hér á Alþingi fulltrúi fyrir dreifbýlishérað og eini ráðherrann í ríkisstj., sem á heima utan þéttbýlisins hér við Faxaflóa, skuli geta verið í þeirri stjórn, sem þannig vegur að hagsmunum dreifbýlisins og þeirra, sem búa í sveitum landsins. Lítilli þjóð er auðvitað meiri vandi á höndum um fjármál sín en stærri þjóðum er. Íslenzku þjóðinni er því lífsnauðsynlegt að vera samhent og samtaka, þegar gera þarf meiri háttar úrræði í efnahagsmálum. Vinstri stjórnin gerði sér þetta ljóst og leitaði samstarfs við hinar vinnandi stéttir í landinu, framleiðendur og launþega. Stjórnarandstaða Sjálfstfl. nagaði rætur þess meiðs, sem farinn var að vaxa af samstarfi stéttanna í efnahagsmálum þjóðarinnar undir forustu vinstri stjórnarinnar. Og nú ætla þeir sömu menn, sem grófu undan þeim ráðstöfunum. sem þá voru gerðar, að byggja upp nýjar ráðstafanir, sem kosta flesta framleiðendur og launþega þungar fórnir. Þetta gera þessir herrar án samráðs við þá aðila, sem verða að taka á sig þungann af þessum ráðstöfunum. Þetta finnst mér vera glæfraspil, því að svo mikið er í húfi. Ég álít því, að hæstv. ríkisstj. hefði átt að beita sér fyrir viðtæku samstarfi stétta og flokka um úrræði, sem tryggðu bætt lífskjör og blómlegt atvinnulíf.
Það frv., sem hér liggur fyrir, mun ekki ná því marki að tryggja slík bætt lífskjör, heldur mun það skapa ný stórkostleg vandamál á næstu mánuðum og árum, sem ég óttast að þrengi kost þjóðarinnar svo tilfinnanlega, að erfitt verði úr að bæta. Hvað viðvíkur þeirri stétt, sem ég tilheyri, bændastéttinni, þá óttast ég, að nú hefjist sá flótti úr sveitunum, að bráðlega verði að áhrínsorðum ummæli Guðjóns Sigurðssonar, sem hann mælti 1. maí á s.l. vori, að það þyrfti að fækka bændum landsins um helming.
Ég minnist þess, að hæstv. landbrh. talaði mikið um það á framboðsfundum í haust, sem hann kallaði Framsóknarskatta. Þá átti hann við 55% yfirfærslugjaldið, sem sett var 1958. Hann gaf í skyn, að þessir skattar yrðu afnumdir og gróða- og gullöld mundi hefjast hjá bændastéttinni, þegar hann og hans flokkur tækju við völdum, enda „leiðin til bættra lífskjara“ að kjósa Sjálfstfl. Nú sjá bændur, hvernig þeir voru blekktir með loforðum hæstv. landbrh. og fleiri stjórnarliða. Nú er hæstv. landbrh. og hans félagar að spinna þann fjötur, sem verða mun bændastétt þessa lands eða atvinnuvegi þeirra bændanna, landbúnaðinum í heild, helfjötur, og fer þá hvort tveggja saman, afnám hinna fornu goðorða, sem Sjálfstfl. og fylgifiskar hans á s.l. sumri komu í kring, og eyðing þeirrar stéttar, sem í þúsund ár þraukaði í landinu og varðveitti þar hina goðkynjuðu tungu okkar og geymdi gegnum eymd og áþján rétt núlifandi kynslóðar til erfða og óðalsréttar í þessu góða og fagra landi.