15.02.1960
Neðri deild: 31. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 859 í B-deild Alþingistíðinda. (2032)
48. mál, efnahagsmál
Forsrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Málið, sem hér er til umræðu, frv. stjórnarinnar um efnahagsmál, er í aðalatriðum orðið kunnugt þeim Íslendingum, sem á því vilja vita skil. Kjarni þess er sá, að lagt er til, að viðurkennt sé sannvirði krónunnar, eins og sérfræðingar telja það vera í dag. Jafnframt því eru gerðar ýmsar ráðstafanir, sem áður hafa ekki verið gerðar á Alþingi, til að reyna að forðast, að krónan falli að nýju, og loks er gert ráð fyrir margvíslegum aðgerðum til að draga úr byrði almennings af vöruverðshækkun og alveg sérstaklega þeirra, sem verst eru settir, t.d. með stórfelldri hækkun fjölskyldubóta, lækkun tekjuskatts, verzlunarfrelsi o.fl. Mun nánar að því vikið af öðrum.
Mál þetta hefur nú verið ýtarlega rætt á Alþingi. Flestir þm., sem kvatt hafa sér hljóðs um það, hafa talað í 1–3 klst. og sumir oft. Ég get þessa, svo að menn skilji betur, að erfitt er að gera málinu tæmandi skil í stuttri ræðu. En nokkra höfuðdrætti er hægt að sýna.
Mörg undanfarin ár höfum við Íslendingar eytt miklu meira en við öfluðum, og eftir að eigin fé og gjöfum Bandaríkjanna á vegum Marshall-hjálparinnar lauk, hefur afleiðingin orðið skuldasöfnun erlendis. Þessi greiðsluhalli eða skuldasöfnun nam á árunum 1955–58 hvorki meira né minna en 776 millj. kr. Enn verri er þó afkoman á síðasta ári, en þá verður aukning skuldanna um 350 millj. kr. Skuldaaukningin síðustu 5 árin er því yfir 1100 millj. kr., og er þá miðað við aðeins 16 kr. verð á dollara. Það þýðir, að miðað við meðalgengi vinstri stjórnarinnar er skuldaaukningin um 2000 millj. kr., en yfir 2500 millj., sé miðað við arf vinstri stjórnarinnar, þ.e.a.s. gengið, sem nú á að viðurkenna. Þetta svarar um 500 millj. kr. skuldaaukningu árlega síðustu 5 árin.
Hversu geigvænlegur þessi greiðsluhalli er, skilst bezt á því, að vegna hans þurftu Íslendingar á síðasta ári að verja 9% af öllum gjaldeyristekjum þjóðarinnar í vexti og afborganir af þessum skuldum. Og á næsta ári vex þessi baggi upp í 11–12% af öllum gjaldeyristekjunum, en það jafngildir 16% af andvirði allrar útflutningsvöru okkar. M.ö.o.: Íslendingar verða á næsta ári að greiða 1 kr. af hverjum 8–9 af öllum gjaldeyristekjunum upp í þessar skuldir, en 1 af hverjum 6, sé miðað við andvirði útflutningsvörunnar.
Enn betur skilja menn þó, hvernig komið er fyrir okkur, þegar athugað er, að á árunum 1951–55 þurftum víð aðeins 1 kr. af hverjum 33 af gjaldeyristekjunum í þessu skyni. Alls nam sú upphæð þá 30 millj. kr. á. ári. Í ár verður hún 163 millj., að ári 183 millj. kr. miðað við 16 kr. verð á dollar, en nærri 430 millj. kr. miðað við það gengi, sem vinstri stjórnin arfleiddi okkur að og viðurkenna á með þessu frv.
Ég bið hv. hlustendur að festa sér í minni, að það eru 430 millj. kr., sem víð þurfum á næsta ári að greiða í vexti og afborganir af þessum eyðsluskuldum. Til samanhurðar er, að rekstrarútgjöld bæjarsjóðs Reykjavíkur eru á þessu ári áætluð aðeins um 200 millj. kr. Með þessu erum við dýpra sokknir í skuldafenið en nokkur önnur þjóð í heimi, ef til vill að einni undanskilinni.
Von er, að þeir, sem valda, framsóknarmenn og kommúnistar, séu kokhraustir og láti sem allt sé í stakasta lagi og eiginlega helzt engra aðgerða þörf.
Afleiðingin er hins vegar sú, að síðustu árin hefur engin alþjóðastofnun, sem gegnir því hlutverki að lána þjóðum, sem mörg verkefni eiga óleyst eins og við, getað lánað Íslendingum og ekki heldur þær, sem við eigum sjálfir aðild að. Þetta er dómur hlutlausra um helstefnu vinstri stjórnarinnar. Lán vinstri stjórnarinnar voru fengin frá öðrum og af annarlegum ástæðum, sem bezt er að ræða sem minnst um.
Annan óhugnanlegan drátt í þessari eymdarásjónu sjá menn á gjaldeyrisstöðu þjóðarinnar. Í árslok 1954 áttu bankarnir hreina frjálsa gjaldeyriseign að upphæð 220 millj. kr. Í árslok 1959 er hún uppétin og í staðinn komin skuld, sem nemur 65 millj. kr., og er þá skuldin við EPU, sem nemur 110 millj. kr., ekki meðtalin. Í frjálsum gjaldeyri hefur staðan þannig á þessum 5 árum versnað um 285 millj. kr. Samtímis hefur staðan versnað um 15 millj. kr. í jafnkeypislöndunum, eða samtals um 300 millj. Ofan á þetta bætist svo, að í síðasta mánuði versnaði enn um 35 millj. eða alls um 335 millj, kr. á 5 árum. Var þá hver eyrir uppétinn og allar yfirdráttarheimildir bankanna notaðar til hins ýtrasta. Sýnir fátt betur, hversu botnlausu kviksyndi við erum í. Enn er hér reiknað með 16 kr. dollar. Séu þessar 335 millj. umreiknaðar í arf vinstri stjórnarinnar, gengið, sem nú á að viðurkenna, nemur upphæðin rúmum 780 millj. kr.
Alls námu yfirdrættir bankanna í janúarlok 150 millj. kr., eða rúmum 7 millj. dollara miðað við 16 kr. dollarann. Talið er, að Íslendingar verði að eiga minnst 20 millj. dollara gjaldeyrisvarasjóði, ef sæmilegt á að heita. Hér munar því yfir 1000 millj., miðað við nýju skráninguna.
Með þessu eru Íslendingar einnig á sviði gjaldeyrisstöðunnar orðnir verst stæðir allra þjóða, sem við þekkjum til.
Það er því engan veginn of mælt, þegar sagt er, að þjóðin riði á barmi greiðsluþrots og geti hvergi fengið lán að óbreyttri stefnu í efnahagsmálum.
Hvað sem menn segja, hlýtur öllum að skiljast, að á þessari braut getum við ekki gengið áfram. Við verðum að stöðva okkur, byrja að greiða eyðsluskuldirnar í stað þess að auka þær og létta með því af okkur ofurþunga vaxta og afborgana. Þetta vita allir og vilja líka flestir hafa að leiðarljósi. En þá rekum við okkur á þá óþægilegu staðreynd, að það er ekki hægt nema með því að gerbreyta öllu efnahagskerfinu, vegna þess að bótakerfið, sem við nú búum við, hefur einmitt byggzt á erlendum lántökum til kaupa á hátollavörum. Þetta er kjarni málsins.
Að rétt sé með farið, skilst bezt á því, að ef flutt er út fyrir 100 kr., verður útflutningssjóður að greiða útflytjendum í meðalbætur tæpar 87 kr. Þegar svo flutt er inn fyrir þessar 100 kr., fær útflutningssjóður ekki sínar 87 kr. endurgreiddar, heldur aðeins rúmar 68 kr. meðaltekjur. Tapið getur útflutningssjóður aðeins unnið upp með tvennum hætti:
1) Að tekin séu erlend lán, en einkum þó étnir upp sjóðir og notaðir yfirdrættir. Af erlendum lánum þarf sjóðurinn aðeins að greiða 55 kr. af hverjum 100 kr., af hinu ekkert, í stað 87 kr. af útflutningsvörum landsmanna, en fær þó sömu tekjurnar af innflutningnum, eða 68 kr. af hverjum 100 kr.
2) Að flutt sé inn mikið af hátollavörum lúxus, því að þá fær sjóðurinn miklu meira en ofannefndar 68 kr. meðaltekjur af hverjum 100 kr.
Allt var þetta vinstri stjórninni vel ljóst, þegar hún felldi krónuna undir fölsku heiti í maí 1958 um 35–46%. En hún þorði ekki að meðganga það, vegna þess að ef svo yrði gert, töldu kommúnistar sig tilneydda að fara úr stjórninni. Vinstri stjórnin vissi, að uppbótakerfið gekk með banvænan sjúkdóm. Hún gerði sér fulla grein fyrir, að með öllu var óhugsandi að afla fjár til bótanna nema með miklum innflutningi á hátollavöru, sem greiða varð með erlendum lánum. Að svo sé, sést bezt á því, að á árinu 1958 ákvað vinstri stjórnin að flytja þessar hátollavörur inn fyrir 226 millj. og afla þess fjár með lántöku. Reyndin varð svo sú, að þrátt fyrir lántökurnar gat hún ekki séð af meiri gjaldeyri í lúxusinn en 190 millj. Svipað fór fyrir Alþfl.-stjórninni. Hún varð að ætla 212 millj. í þessu skyni, en gat þó aldrei flutt inn fyrir meira en 190 millj. vegna gjaldeyrisskorts. En allt sannar þetta, að allir vissu fyrir löngu, að erlend lán og hátolla-lúxus-innflutningur voru skilyrði þess, að bótakerfið gæti haldið áfram.
Nú er þessari sögu lokið. Kerfi, sem lifir á lánum og lúxus-innflutningi, er dautt, þegar lán fæst ekki lengur að óbreyttu kerfi. Og það er einmitt þannig ástatt fyrir okkur Íslendingum í dag. Okkur lánar enginn, nema við hættum að riða á glötunarbarminum og reynum a.m.k. að snúa inn á brautina, sem liggur til bættra lífskjara. Þetta sker úr.
Sér til gamans geta menn svo hugsað sér, að við hefðum enn reynt að feta okkur áfram á glæfrabraut uppbótanna. Við hefðum þá orðið að leggja nýja árlega skatta á þjóðina að upphæð 250–300 millj, kr. án þess að afnema aðra skatta, eins og nú er gert. Ella gátu ríkissjóður og útflutningssjóður ekki staðið í skilum og það jafnvel þótt einhver erlend lán hefðu fengizt. Af þessu leiddi hreina kjaraskerðingu, sem nam 5–6%, annars hefði þurft nýja svipaða skatta í lok þessa árs. Allir sjá, hvert það stefnir. En auk alls þessa hefðum við svo enn setið uppi með þetta dauðadæmda bótakerfi, sem leikur þjóðina því verr, sem það stendur lengur, vegna þess að það ýtir undir þá framleiðslu, sem verst ber sig, og færir með því allt heilbrigt efnahagslíf úr skorðum, sökkvir þjóðinni æ dýpra í fen skulda og skatta og endar á því að leiða yfir hana hrun, atvinnuleysi og hörmungar.
Þessa 5–6 stiga kjararýrnun hefðu menn orðið að þola alveg bótalaust, jafnt fjölskyldumenn sem öryrkjar og aldrað fólk, sem nú eiga að fá fullar bætur, jafnframt því sem sú hækkun vísitölunnar um 13 stig, sem leiðir af þessu frv., verður greidd niður í 3 stig.
En, segja menn, allar aðkeyptar vörur stórhækka í verði. Satt er það. En er það nokkuð nýtt? 1950 var krónan lækkuð um 42.6%. Gengisfelling vinstri stjórnarinnar nemur í dag 35–46%. Sú krónulækkun, sem nú er verið að viðurkenna, nemur þó ekki meira en frá 20–34%. Lækkun krónunnar nú er m.ö.o. aðeins nokkur hluti af lækkuninni 1950 og af lækkun vinstri stjórnarinnar. Sú hækkun vöruverðs, sem nú skeður, er því miklu minni en þá varð, þótt benda megi á örfáar vörutegundir, sem af sérstökum ástæðum hækka meira.
Það er eðlilegt, að menn kvarti undan verðhækkunum nú sem fyrr. En það er óeðlilegt og óskiljanlegt, að kvartað sé meira nú er 1958, því að þá var gengisfallið miklu meira en nú. Og það stappar nærri óskammfeilni, þegar þeir æðrast nú og reyna að æra almenning út af krónulækkuninni, sem bæði lækkuðu krónuna miklu meira 1958 og auk þess bera höfuðábyrgð á, að enn er krónan fallin. Gildir þetta jafnt um Alþb. sem Framsókn.
En hvað sem þessu líður, — menn kvíða verðhækkunum, og það er von. Og nú er spurt: Þarf að skerða kjörin?
Ég hef þegar sýnt fram á, að bótaleiðin, þótt fær hefði verið áfram í eitt ár eða svo, sem ekki var, hefði skert kjörin miklu meira, beint og óbeint. En rétta mynd af úrræðum okkar fá menn þó ekki án samanburðar við, hvað orðið hefði, ef stjórnina hefði skort þekkingu og þrek til að reyna að skera fyrir rætur meinsins, eins og ætlað er með þessum aðgerðum. Þessi samanburður fæst, ef þjóðin lætur blekkjast til andstöðu við þessi úrræði. Þau munu þá fara út um þúfur, og þá mun þjóðin fá réttan skilning á þeim mönnum, sem nú eru að villa henni sýn. En sú reynsla verður dýrkeypt, svo dýrkeypt og örlagaþrungin, að öllum, sem sjá voðann fram undan, er skylt að verja þjóðina gegn honum, hvað sem það kostar. Til leiðbeiningar er mönnum hollt að gera sér ljósa grein fyrir, að undanfarin 5 ár hefur þjóðin árlega eytt 500 millj. kr. meira en hún hefur aflað. Það þýðir, að vinir okkar og þá fyrst og fremst Bandaríkjamenn hafa árlega lánað hverju mannsbarni á Íslandi um 3000 kr. til kaupa á hátollavöru — lúxus. Á 5 manna fjölskyldu nemur þetta 15 þús. kr. árlega, ef miðað er við arf vinstri stjórnarinnar, 38 kr. verð á dollara. Nú, þegar enginn vill lengur lána okkur til að lifa um efni fram, fær þjóðarbúið árlega til ráðstöfunar upphæð, sem er sem svarar 15 þús. kr. minni á hverja 5 manna fjölskyldu. Þann niðurskurð á tekjunum verða því menn að horfast í augu við, hvort sem fall krónunnar verður viðurkennt eða ekki. Sagan er þó lengri. Nú snýst hjólið nefnilega við. Nú fá menn ekki eyðslulán lengur. Nú verður hið opinbera hins vegar að taka af hverjum gjaldþegn nokkurn hluta teknanna til greiðslu upp í skuldir þjóðarinnar. Þar bætist við þessar 15 þús., sem ég nefndi.
Þetta er hollt, að menn hafi hugfast, þegar þeir kveða upp dóm yfir þeim bráðabirgðabyrðum, sem nú eru á þá lagðar.
Rétt er að vekja athygli á, að það er í meginefnum rangt, þegar reynt er að telja fólki trú um, að þessi voðalega skuldasöfnun stafi fyrst og fremst af skipakaupum og annarri slíkri fjárfestingu. Þetta sést m.a. á því, að Íslendingar hafa ekki ráðizt í neitt annað eða meira í tíð vinstri stjórnarinnar en árið áður, og var skuldasöfnunin þá ekki nema 130 millj. kr. Allar þjóðir verða líka að freista þess að láta árlegar tekjur standa undir viðhaldi og eðlilegri aukningu framleiðslutækjanna, auk vissra stærri framkvæmda, a.m.k. að nokkrum hluta. Þetta hefur okkur láðst. Það er ásetningssynd. Vinstri stjórnin vildi ekki, að Íslendingar sniðu sér stakk eftir vexti. Hún vildi taka lán, — eyðslulán, — beinlínis vegna þess að án mikils innflutnings á hátollavörum, sem greiddar voru með erlendum lánum, gat bótakerfið ekki staðizt, en a.m.k. kommúnistar héldu og halda í það dauðahaldi. Ber hvort tveggja til, að þeir óttast, að án þess dragi úr hófi úr viðskiptum Íslands við löndin austan járntjalds, sem þó er alveg ástæðulaust, en auk þess þóra þeir ekki að meðganga krónulækkun, nema undir fölsku heiti.
Með þessum fáu orðum vona ég, að mér hafi tekizt að sýna, hversu hörmulega, við Íslendingar erum komnir og hverjir valda. Ég vona líka, að þrátt fyrir það moldviðri, sem upp er þyrlað, skiljist öllum hugsandi mönnum, að við eigum ekkert val. Það, sem gera þarf, er þetta:
1) Að viðurkenna sannvirði krónunnar, eins og vinstri stjórnin skildi við hana, skammbitna, smáa og skörðótta.
2) Að tryggja, að þessi neyðarráðstöfun komi sem léttast niður á almenningi, einkum þeim, sem minnst burðarþol hafa.
3) Að hlaða varnargarð um krónuna.
Allt þetta er gert með því frv., sem hér er til umræðu.
Sérfræðingar okkar hafa eftir ýtarlegar athuganir talið, að lækkunin yrði að vera minnst 20–34%, og verða þá 38 kr. í handarískum dollar. Með þessu er ætlað að afnema bótakerfið og reka atvinnuvegi landsmanna styrkja og hallalaust.
Með niðurgreiðslum á kaffi, sykri og kornvöru, en einkum þó svo stórfelldri breytingu á tryggingalöggjöfinni, að sumir kalla, að skapað sé nýtt þjóðfélag, eru léttar byrðar almennings, og verða hjón með þrjú börn á framfæri, öryrkjar og aldrað fólk með öllu skaðlaust af þessum ráðstöfunum. Hefur aldrei fyrr neitt svipað verið aðhafzt hér, þegar Alþingi hefur viðurkennt gengislækkun. Eru þá ótaldar breytingar á tollum og sköttum, sem hæstv. fjmrh. gerði grein fyrir við 1. umr. fjárlaga og mörgum eru til mikilla hagsbóta, svo sem niðurfelling tekjuskatts af almennum launatekjum.
Í þessum umr. hefur auðvitað verið skipzt á spjótalögum. Einna verstu skeinuna fékk hv. 1. þm. Austf. hjá hæstv. menntmrh., enda bítast kunnugir bezt. Ljóstraði ráðh. mörgu áður ókunnu upp um vinstri stjórnina og sannaði, að flestar staðhæfingar Eysteins Jónssonar nú stangast algerlega á við skoðanir hans og fullyrðingar þá, og sýndi, að þessi fyrrv. fjmrh. hefur látið hafa sig í það að fara með furðulegt fleipur í veigamestu þáttum þessa mikla máls.
Af öðrum meiri háttar mönnum fékk hv. 3. þm. Reykv., Einar Olgeirsson, einna verstan áverka. Hann hefur með alkunnri mælsku sinni skýrt fyrir okkur, að við stefnum, norður og niður. Innan skamms takist okkur að leggja allt í rúst, sem við á síðustu tveim áratugum með glæsilegum stórhug og atorku höfum byggt upp sjálfum okkur til lofs og dýrðar, en öllum erlendum til mikillar undrunar.
Hv. 1. þm. Vestf., Gísli Jónsson, brá brandi sínum og geigaði ekki. Hann gerði sér litið fyrir og las upp nál. þessa sama þm., þegar krónan var felld 1950. Þá spáði Einar Olgeirsson hruni og flagi, alveg eins og nú. Hvernig rættust þeir spádómar? spurði Gísli Jónsson. Þannig, sagði Gísli, að samkv. eigin orðum Einars Olgeirssonar hafa framfarirnar aldrei frá landnámstíð verið jafnmiklar og þennan áratug og þann næsta á undan. Ætli spádómar Einars reynist ekki eitthvað svipað raunhæfir nú? spurði Gísli Jónsson ósköp góðlátlega. Ég heyrði Einar Olgeirsson aldrei svara þessu. Honum verður annars sjaldan orðfall. Hvorki vinnst mér tími til né hef ég áhuga á að endurtaka hér höfuðatriðin úr þeim 30–40 klukkustunda umræðum, sem fram hafa farið um þetta mikilvæga mál hér í hv. d. En hitt nefni ég, af því að það skiptir höfuðmáli, að andstæðingar okkar eru ósammála um allt, sem á veltur í efnahagsmálum þjóðarinnar.
Eysteinn Jónsson verðskuldar, að unnendur krónulækkunar taki hann í dýrlingatölu. Hann felldi krónuna beint og óbeint 1939, 1950, 1951, 1955, 1956 og 1958, svo að dæmi séu nefnd. Ég segi þetta ekki til ámælis. Ég skýri aðeins frá staðreyndum.
Einar Olgeirsson hefur hins vegar alltaf staðið gegn því, að viðurkennt yrði það fall krónunnar, sem að verulegu leyti stafar af óraunhæfum kauphækkunum, sem hann og hans flokkur bera mesta ábyrgð á.
Eysteinn Jónsson hefur verið að burðast við að skrifa ævisögureyfara í tveim bindum, sem heita Byggðastefnan og Uppbyggingarstefnan. Fjalla þeir um vilja Sjálfstfl. og Framsfl. til að beina fjárstraumnum út í strjálbýlið. Þykist Eysteinn nú óttast, að við ætlum að bregðast þeirri hugsjón okkar, og læzt byggja andstöðuna gegn þessu máli á því.
Þessa stefnu Eysteins Jónssonar kallar Einar Olgeirsson hins vegar „snarvitlausa fjárfestingarstefnu“ og aðalbölvaldinn í efnahagslífi þjóðarinnar.
Ekki er nú samkomulagið gott. Hvernig lízt fólki á að fela þessum sundurþykku samherjum að stýra málefnum þjóðarinnar? Það er seigt í líftaug þjóðarinnar, þoli hún þau átök, sem þar verða, ég segi bara það.
Þetta er rétt að menn athugi nú, þegar þessar fylkingar eru að síga saman í því skyni að brjóta niður varnargarða þjóðarinnar. Þjóðin verður að gera sér grein fyrir, að takist þeim þetta, er ekkert fram undan nema alger glundroði, m.a. vegna þess, að Framsókn og kommúnistar eru ósammála um allt annað en að vilja hrifsa til sin völdin. Þegar þessi mynd blasir við augum, skilst bezt alger uppgjöf Framsóknar í málinu, þegar flokkurinn í nál. sínu hefur þá einu till. fram að bera, að þingflokkarnir nefni tvo menn hver í nefnd, sem innan þriggja vikna segi okkur, hvað við eigum helzt að gera. Í 30–40 klukkustundir er stjórnarandstaðan búin að vera að húðskamma okkur fyrir, að ekki sé heil brú í till. okkar, sem við höfum þó ásamt með sérfræðingum okkar unnið að svo að segja dag og nótt undanfarna mánuði. Í þeim á engin heil brú að vera, ekkert nema svík við þjóðina og illmennskan ein. Er ekki ósköp líklegt, að við látum sannfærast á þremur vikum, aðeins ef flokkarnir skipa nefnd? Og um hvað eigum við svo að sannfærast? Það, sem kommúnistar segja? Eða það, sem Framsókn krefst? Ekki er hægt að þjóna báðum, úr því að þeir eru algerlega á öndverðum meið í aðalefnunum. Eða ætla kannske báðir að kyngja öllum stóryrðunum og gleypa okkar till. í ofaníbót til bragðbætis, aðeins ef þeir fá að komast í n. með okkur? Eða er það kannske ríkisstj., sem þeir meina og langar í? Þeir ættu sjálfir að skipa n. til að athuga, hvort slík framkoma á örlagastundu í lifi þjóðarinnar sýnir þjóðhollustu, — hvort þetta athæfi sé yfirleitt samboðið nokkrum hugsandi og ábyrgum manni.
Till. Framsfl. sannar þrennt:
1) Hann er í aðalefnum sammála úrræðum okkar og getur því ekki borið fram neinar sjálfstæðar tillögur.
2) Honum er ljóst, að þjóðin krefst aðgerða, heimtar, að henni sé vísað til vegar — frá glötunarbarminum og til öryggis og bættra lífskjara.
3) Að flokkurinn vill og þarf að komast í ríkisstjórn.
Og nú langar mig að spyrja: Hvernig í ósköpunum stendur á því, að menn tala eins og verið sé að leiða þjóðina í ógæfu, þegar nú er af þekkingu og þreki gerð öflug tilraun til björgunar og viðreisnar?
Sjálf viðurkenningin á lækkun krónunnar og þar af leiðandi hækkun vöruverðs getur ekki verið ástæðan. Þetta hefur þjóðin margreynt og það í miklu stærri stíl en nú. Framsókn hefur líka staðið að öllum krónulækkunum, og jafnvel kommúnistar léðu fúsir sitt lið bæði 1956 og 1958, af því að þeir voru í stjórn.
En hvað er það þá eiginlega, sem nú er um að vera? Það, sem veldur, er:
1) Að báðir andstöðuflokkar okkar setja það ofar hagsmunum þjóðarinnar að freista þess að afla sér aukins fylgis.
2) Að Framsfl. sýnist hafa fengið eins konar óðavaldabólgu — liggja lífið á að komast í stjórn og það tafarlaust. Hvernig á því stendur, veit ég ekki með vissu og fullyrði því ekkert um það.
En það bið ég þjóðina að athuga, að þessir gömlu gengisfellingarfrömuðir þora ekki að ráðast á gengisfellinguna. Það er of gegnsætt. Árásunum er þess vegna beint að því, sem nú á að gera til þess að reyna að tryggja framtíð krónunnar. Vaxtahækkun, verzlunarfrelsi, gjaldeyrisvarasjóðir, jafnvel skattalækkanir og yfirleitt allt, sem á að verja gegn svokölluðu árlegu krónufalli, er ófrægt og nítt á alla vegu. Á þetta alveg sérstaklega við um hækkun vaxta. Það er eins og lífið liggi við, að ekki takist að reisa varnargarð um verðgildi krónunnar. Þó ættu þessir menn að vita, að löngu er áníðslan á sparifjáreigendur orðin með öllu óþolandi og beinlínis þjóðhættuleg. Þetta fólk, sem með ráðdeild hefur lagt krónu við krónu og með því lagt allan grundvöll efnahagslífsins, á líka sinn rétt. Auðvitað er engum gleðiefni, að skuldugir menn, enda þótt margir séu vel stæðir og sumir ríkir, að ekki séu nefndir þeir efnalitlu, séu hart leiknir. En verður ekki harmagrátur kommúnistanna yfir hækkun útlánsvaxta dálítið hlægilegur, þegar höfð eru í huga þeirra eigin orð um, að þeir ríku hafi allt fé almennings að láni? Finnst mönnum umhyggja kommúnista fyrir þeim ríku ekki helzt til mikil? Og hvað segja svo sparifjáreigendur, allir hinir mörgu, sem þurft hafa að þola sílækkandi verðgildi spariskildinga sinna? Finnst þeim ekki anda óhugnanlega kalt til sín, að kommúnistar og raunar ekkert siður Framsókn skuli alveg ganga af göflunum út af því, að þeir skuli nú eiga að fá verulega vaxtahækkun?
Mig langar að heyra þetta atriði varið hér í kvöld.
Eystein Jónsson skilja allir betur. Hann stýrir nefnilega alltaf eftir sama áttavitanum.
Án efa ræður það nokkru um ofsa andstæðinganna út af bráðabirgðavaxtahækkuninni, að þeir vita, að í bili er hún óvinsæl hjá mörgum. Þá er að ganga á lagið. Hvað sem öðru líður, ættu það þó a.m.k. að vera öllum skuldugum sárabætur, að verið er að bæta eilítið úr löngu misrétti gegn sparifjáreigendum. En auk þess eiga allir, þegar rétt er á litið, þá sameiginlegu hagsmuni, að traustið á krónunni vaxi og það traust bregðist ekki. Það er ekki eingöngu mesta hagsmunamál sparifjáreigenda, heldur líka athafnamanna, sem með vaxandi sparifjáreign þjóðarinnar fá rýmri aðgang að rekstrarfé. Enginn á þó meira í húfi en æska landsins. Megi hún treysta krónunni, lærir hún að spara. Þá leggur unga fólkið krónu við krónu til kaupa á íbúð og innbúi. Og þá frelsum við næstu kynslóð frá að bera kinnroða vegna athæfis okkar.
En það skulu menn vita, að bresti Íslendinga þrek til átaks, væflumst við áfram á gjábarminum, endar sá harmleikur með því, að aðrir sjá aumur á okkur og forða okkur frá hörmungum og hruni með því að taka okkur til skuldaskila og afgreiða okkur með eftirgjöfum og ölmusum. Er það þetta, sem Íslendingar vilja? Er þetta í samræmi við íslenzkan þjóðarmetnað og þjóðarsál? Nei, og aftur nei. Þjóð, sem um aldaraðir hefur barizt fyrir frelsi og fullveldi, segir sig ekki til sveitar á öðrum áratug lýðveldisins. Svo hundflatir leggjast Íslendingar aldrei fyrir fætur Mammons, enda þótt hann sýnist ætla að verða okkur skeinuhættari en fátæktin.
Ég skora á landsmenn alla að ljá okkur fast fylgi og fullan atbeina. Við gerum það eitt, sem er heillavænlegast, og við vitum, að alls engin önnur úrræði til úrbóta en þau, sem hér eru fram borin, eru til.
Við vitum, að það er hægt að villa mönnum sýn, espa til andstöðu, úlfúðar og jafnvel verkfalla. Okkur er vel ljóst, að auðveldara var að stinga höfðinu í sandinn. En hafa ekki Íslendingar líka oft metíð áræðið? Jú, vissulega. Og enn skal því treyst, að menn sýni þessum till. samúð og a.m.k. biðlund. Þjóðin á allt undir því.
Stjórnir koma og stjórnir fara. Það skiptir minnstu. En þjóðir, sem of lengi ganga á hinum breiða vegi andvaraleysis, þær leika sér að fjöregginu — fjárhagslegu og pólitísku sjálfstæði sínu.
Íslendingar! Teflum ekki því, sem við lengst höfum barizt fyrir og mest mettun — sjálfstæðinu — í tvísýnu. Ef illa fer, mundum við allir vilja allt til vinna til þess að höndla hnossið að nýju. En þá er það langsennilegast um seinan. — Góða nótt.