15.02.1960
Neðri deild: 31. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 902 í B-deild Alþingistíðinda. (2039)

48. mál, efnahagsmál

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Háttvirtu tilheyrendur. Þjóð vor sem heild hefur ekki lifað um efni fram. Þvert á mótí. Hún hefur aldrei skapað sér eins miklar eignir og á undanförnum tveimur áratugum, enda hefur íslenzk alþýða undanfarið unnið lengur en nokkur alþýða nágrannalandanna og sett þriðjung allra þjóðarteknanna í fjárfestingu. Það eru hins vegar til menn í landinu, sem lifað hafa um efni fram, en það eru einmitt þeir, sem eiga að græða á því frv., sem hér liggur fyrir.

Hæstv. viðskmrh., Gylfi Þ. Gíslason, reyndi að blekkja hér áðan um komandi aukningu dýrtíðarinnar. Hann ætti að láta það vera. Árið 1950 var sagt, að vöruverðshækkun af völdum gengislækkunarinnar yrði aðeins 11 stig. Hún varð 27 stig. Skyldi það ekki verða svipað nú og Eðvarð Sigurðsson réttilega reiknaði út hér áðan?

Hæstv. viðskmrh. talaði fögur orð um að varast nýjar lántökur. Hann leggur um leið til að taka 800 millj. kr. eyðslulán. Það er sitt hvað orð og gerðir hjá þeim fagurmála ráðh.

Gylfi Þ. Gíslason, hæstv. viðskmrh., sagði, eins og Ólafur Thors, hæstv. forsrh., að ekki yrði atvinnuleysi. Verkalýður Íslands veit betur. Hann man 2000 atvinnuleysingja í Reykjavík 1951, eftir gengislækkunina þá, minnkun íbúðabygginganna niður í 280 á árinu 1951 úr 634 árið 1946 og það, að enginn togari var keyptur til landsins í sjö ár. Það er einmitt tilgangur lánsfjárskortsins, sem skapa skal, að koma á atvinnuleysi, sem auðvaldinu finnst mátulegt.

Hæstv. viðskmrh., Gylfi Þ. Gíslason, sá það fyrir í ræðu sinni hér áðan, að stjórn hans mundi falla á þessu máli, en óttaðist stjórnleysi. Hann þarf ekkert stjórnleysi að óttast. Ef ríkisstj. aðeins þorir að rjúfa þing, þegar aðgerðir hennar hafa verið dauðadæmdar af almenningi, þá mun það sýna sig, að íslenzk alþýða mun skila inn á þing stjórnhæfum meiri hluta. Íslenzk alþýða er nú orðin reynslunni ríkari. Við Alþb.-menn vöruðum í kosningunum í fyrra við þessum árásum á lífskjörin, sem nú eru fram komnar. Íslenzk alþýða mun nú varast þá flokka, er gera vilja skortinn að skömmtunarstjóra á Íslandi og stöðva þá aleflingu framleiðslulífs vors, sem er grundvöllur allra bættra lífskjara.

Ólafur Thors, hæstv. forsrh., sagði, að enginn hefði viljað lána Íslandi nú og því yrði að ganga að þeim afarkostum alþjóðaauðvaldsins í París, sem í þessu frv. felast. 1956 sagði Ingólfur Jónsson, þáv. viðskmrh., líka, að enginn vildi lána Íslandi. Þegar vinstri stjórnin tók við völdum, sýndi það sig hins vegar, að alls staðar var hægt að fá lán til gagnlegra framkvæmda. Það lítur út fyrir, að enginn flokkur hafi eins slæmt lánstraust úti í heimi og Sjálfstfl. Um erlend lán er annars aðeins eitt að segja: Það er óhætt að taka þau, ef þau fara til aukinnar gjaldeyrisframleiðslu eða gjaldeyrissparnaðar, en það er hættulegt að taka þau til eyðslu, eins og núverandi óhappastjórn leggur til.

Sigurður Ingimundarson, hv. 1. landsk., mun tala hér á eftir mér. Hann er formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Opinberir starfsmenn eru enn það illa settir, að þeir hafa ekki verkfallsrétt. Engum ríður því meir á að viðhalda vísitölu á kaupgreiðslu en þeim. En hvað gerir þessi formaður þeirra? Hann greiðir atkvæði með afnámi vísitölu á kaupgreiðslur og skilur opinbera starfsmenn eftir varnarlausa. Hann lýsti því yfir í Alþýðubl. 6. okt., fyrir kosningar, að ef flóðgáttir verðhækkunarinnar yrðu opnaðar, þá mundi engin stétt standa hjá. Nú opnar hann sjálfur flóðgáttir dýrtíðarinnar, er veltur inn yfir almenning með samþykkt þessa frv. Vill ekki þessi formaður varnarlausustu launþegasamtakanna verja það nú, hví hann opnar flóðgáttirnar og situr ekki einu sinni hjá, heldur ræðst á kjör allra opinberra starfsmanna?

Góðir Íslendingar. Peningavald vesturveldanna hefur sagt íslenzkri alþýðu, allri þjóð vorri, stríð á hendur. Þetta frv. er stríðsyfirlýsing þess. Auðmannastétt Reykjavíkur dragnast til að flytja það, hikandi og tvíráð, í þeirri hugmynd að eiga ekki annarra kosta völ. Aðeins andlegar afturgöngur og örfáir braskarar fylgja því af áhuga. Þetta frv. er hjá þeim flokkum, er fremja það nú, heljarstökk aftur á bak, aftur í tíma atvinnuleysis, okurs og fátæktar. Engum þessara heljarstökksmanna dettur í hug, að þeir komi standandi niður. En þeir stökkva samt. Voldugir aðilar alþjóðaauðvaldsins í París og Washington heimta, að íslenzkri þjóð sé kippt burt af þeirri braut, sem hún hefur verið að ryðja sér síðustu 18 árin, og ríkisstj. ætlar að reyna að hlýða.

Vér Íslendingar höfum verið að vinna kraftaverk á síðustu 18 árum. Með eindæma atorku alþjóðar höfum við verið að hefja okkur upp úr atvinnuleysi og fátækt, vinna upp á einni kynslóð það, sem aldaáþján nýlendukúgunarinnar svipti okkur. Það hefði þurft sósíallstíska búskaparhætti til að vinna það verk, ef vel átti að vera. Með heildarstjórn á þjóðarbúskapnum, samkv. stórhuga áætlunum um nýtingu auðlindanna, með þjóðnýtingu utanríkisverzlunarinnar og stærstu fiskiðjuveranna hefði oss tekizt undir víðsýnni forustu verkalýðshreyfingarinnar að gera Ísland að fyrirmyndarlandi um lífskjör og félagsleg réttindi. Við höfum reynt þetta án þessara forsendna, og því hefur það oft gengið skrykkjótt. En þrátt fyrir allt hefur mikið unnizt á sakir atorku okkar þjóðar og ekki sízt vegna viðskiptasambandanna við kreppulaus lönd sósíalismans. Við höfum jafnvel um hríð útrýmt atvinnuleysinu, þessum óhugnanlega fylgifiski auðvaldsskipulagsins, sem þjáir öll auðvaldslöndin í kringum okkur. Við höfum knúið það fram, að atvinnutækin væru fyrst og fremst rekin til þess að tryggja framleiðslu þjóðarinnar og vinnu verkalýðsins, en ekki bara fyrir gróða atvinnurekendanna.

En hinir voldugu herrar í Washington og París hafa lítið þessa viðleitni vora hornauga. Þeim hefur fundizt það hættulegt alþjóðaauðvaldinu, að Íslendingar fari sínar eigin götur, ekki sízt ef þær lágu í austurveg. Þeim háu herrum finnst, sem Vilhjálmi kardínála forðum daga, ósæmilegt, að Ísland þjóni ekki undir gróðakonunga alþjóðaauðvaldsins sem öll önnur auðvaldsríki í veröldinni, og þeir sendu sína legáta hingað til landsins að boða tröllatrúna á gróðavonina sem einu hvötina til atvinnulífs, — og kenna oss að rækta ekki kartöflur. Og þeir stefndu utan ráðherrum vorum til Parísar og hétu að lána þeim 800 millj, kr. í vörulán til landsins, ef við létum að óskum þeirra og aðhylltumst þeirra stefnu. Og í þessu frv. birtist dagskipun drottnanna í París. Járnkló peningavaldsins skal aftur læsa sig um Ísland. Land vort skal aftur innlimast í kreppukerfi kapítalismans, þar sem afurðir okkar eru að falla í verði, eru að verða óseljanlegar, ef ekki beinlínis er sett á þær bann eins og af bandamönnum vorum, Bretum. 800 millj. kr. vörulánið, sem má ekki nota til framkvæmda, heldur aðeins til eyðslu, á að verða skuldafjöturinn, sem hlekkjar oss við hringavaldið eins og kotbóndann við einokunarkaupmanninn forðum. Það á að verða sú hengingaról, sem herðist að hálsi vorum, ef vér hyggjumst að ganga braut efnahagslegs sjálfstæðis og atvinnulegrar uppbyggingar eftir eigin leiðum. Peningurinn og rentan af honum skal aftur leitt til öndvegis á Íslandi, en manngildið og vinnugildið rýrt að sama skapi. Okrið skal gert að stjórnarstefnu, en atvinnuleysið að framtíðarhorfum.

Vinnulaun íslenzkra verkamanna og sjómanna skulu með þessu lækkuð niður fyrir allt, sem sæmilegt er. Amerískur háseti á flutningaskipum, er hingað siglir, hefur 400 dollara á mánuði eða 15200 kr., en íslenzkur farmaður á að una við 3600 kr. Kaup hafnarverkamanna á Íslandi og í New York var 1947 hið sama, 1 dollar og 40 cent. Eftir þessa gengislækkun hefði amerískur verkamaður 3 dollara um tímann eða 114 ísl. kr., en íslenzkur Dagsbrúnarmaður, sem var jafningi hans 1947, hefði þá 20 kr. eða rúman hálfan dollar. En lágmarkslaun í Bandaríkjunum eru 1 dollar á klukkustund eða 38 ísl. kr. eftir Alþfl.-genginu, og þau laun eru lögboðin til verndar samtakalausum svertingjum gegn óhóflegu arðráni ósvífinna atvinnurekenda. Vinnulaun íslenzks verkamanns væru með þessu frv. lækkuð niður í það að vera helmingurinn af lögboðnu lágmarkskaupi fátækustu svertingja Suðurríkjanna. Það kemur í þessu sambandi ekki málinu við, sem hæstv. viðskmrh. sagði hér áðan, að íslenzk króna fær hlutfallslega meiri kaupmátt en dollarinn, af því að hann er skráður of hátt með þessu þrælagengi. Hitt er aðalatriðið, að fyrir amerískan auðhring, sem fjármagn vill festa á Íslandi, yrði eftir þessa gengislækkun íslenzkur verkamaður helmingi arðvænlegri til arðráns en verst launaði verkamaður Bandaríkjanna. Og til þess er hinn ljóti leikur gerður. Það á að gera Ísland aftur arðvænlegt sem nýlendu, sem heimsauðvaldið ágirnist til fjárfestingar, og þetta heimsauðvald hugsar sér að slíta um leið viðskiptasambönd Íslands austur á við, sem veríð hafa hornsteinn atvinnuöryggisins. Þá er Ísland einangrað og ofurselt auðhringavaldinu á ný. Og til þess að ná því þokkalega takmarki og ofurselja erlendu auðvaldi orkulindir Íslands og tryggja því, að íslenzkt vinnuafl væri eitt hið ódýrasta í heimi að amerísku mati, á nú að svipta íslenzkan verkalýð og alla launþega þeirri sæmílegu lífsafkomu, sem alþýðan með mikilli vinnu og ötulli baráttu hefur áunnið sér.

Gegn þessu mun íslenzk alþýða rísa. Hún hefur alla þessa öld, við hlið beztu menntamanna Íslands, rutt þjóðinni brautina með hörðum höndum sínum út úr örbirgð fyrri alda til bjargálna batnandi hags. Íslenzk verkalýðsog launþegasamtök munu ekki una því að láta hrinda sér niður í atvinnuleysi og armæðu fyrri áratuga. Það þarf enginn þjóðmálaleiðtogi, er þekkir Íslendingseðlið, að ganga að því gruflandi, að harðstjórn peningavaldsins verður mætt með öllu því harðfylgi, sem alþýðusamtökin hafa yfir að ráða.

Við skulum muna það, verkamenn og bændur, að íslenzkir búkarlar hafa áður gert sig svo digra gagnvart útlendu valdi að vilja einir ráða, er loðnir leppar erlendrar áþjánar vildu þröngva kosti vorum, og það er auðveldara nú að hrinda slíkum árásum en nokkru sinni fyrr í sögu vorrí. Ef íslenzk atvinnurekendastétt ætlar nú að aðhyllast okurstefnu erlends valds, lánsfjárskort og kaupkúgun, sem sína stefnu, þá getur hún sjálf borið fjanda sinn. Þeir, sem það vilja, geta þá neitað sjálfum sér um lán og okrað hver á öðrum og knífað við sjálfa sig kaupið. Íslenzkir verkamenn munu ekki gefast upp, heldur berjast.

Þeir flokkar, er þvinga nú þetta frv, fram í umboði erlends valds, valda með því þjóðarógæfu og fella yfir sjálfum sér þungan áfellisdóm. Kaupkúgunarstefna þessa frv. verður heljarstökk Alþýðuflokksforingjanna út úr íslenzkri verkalýðshreyfingu. Okurstefna þessa frv. er rýtingsstunga Sjálfstfl. í bak íslenzks atvinnulífs. Það er á ábyrgð þessara flokka, að fylkingar síga nú saman til ægilegustu stéttaátaka íslenzkrar sögu. Það gat enginn búizt við, að íslenzk alþýða mundi krjúpa á kné og afhenda að erlendu valdboði rétt sinn til sómasamlegs lífs. Þvert á móti, íslenzk alþýða mun svara að fornra höfðingja hætti: „Heyra má ek erkibiskups boðskap, en ráðinn em ek í at hafa hann at engu.“

Alþýða Íslands ætlar, að hún viti sjálf bezt, hvernig þessu landi skuli stjórnað í alþjóðar þágu, og miklu betur en erlendir drottnar og allir mammonsprestar þeirra. Ég vara hæstv. ríkisstj. við að fremja þann óvinafagnað til að geðjast Atlantshafsbandalaginu og auðvaldi þess að knýja þetta frv. fram með naumum þingmeirihluta og gegn vilja meiri hluta þjóðarinnar. Þjóð vor þarf frið, en ekki það innbyrðis stríð, sem nú er stofnað til. Þjóð vor þarf samhjálp og sameiginlegt átak vor allra, eldmóð og stórhug til að lyfta því grettistaki, sem bíður vor, en ekki þá ísköldu harðstjórn peninganna, sem mun kyrkja íslenzkar framfarir og innlima Ísland í kreppukerfi hins hnignandi kapítalisma. Því ber Alþingi Íslendinga að fella þetta frv. En verði það samþykkt, þá verið við því búin, alþýðumenn og konur um land allt, að taka á móti. Látum auðvaldið eitt bera þá bagga, er það nú bindur öðrum.

Verkamenn og launþegar um land allt, hvar sem þið hafið hingað til verið í flokki, sameinizt, mótmælið sem einn maður þeirri aðför, sem nú er gerð að lífskjörum ykkar, frelsi og atvinnuöryggi. Og ef mótmælin duga ekki og engu viti verður komið fyrir auðvaldið og þjóna þess, þá takið höndum saman allir sem einn og hnekkið þeirri harðstjórn peningavaldsins, sem nú á að innleiða á Íslandi. Sýnum alþjóðaauðvaldinu, að hér á Íslandi búa menn, sem hvorki lúta boði þess né banni, en fara sínar eigin leiðir, sjálfum sér og þjóð sinni til farsældar. — Góða nótt.