16.02.1960
Efri deild: 23. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 917 í B-deild Alþingistíðinda. (2044)
48. mál, efnahagsmál
Jón Þorsteinsson:
Herra forseti. Við Íslendingar höfum um árabil átt við tvenns konar efnahagsvandamál að etja: annars vegar verðbólguna innanlands og hins vegar greiðsluhallann í viðskiptum við útlönd. Verðbólguvoðinn var mestur, þegar vinstri stjórnin lét af völdum í árslok 1958, Minni hl. ríkisstj. Alþfl., sem þá tók við, tókst að bægja voðanum frá, enda náði hún meiri árangri í baráttunni við þennan vágest en nokkurri annarri ríkisstjórn hafði áður tekizt. Þessari stjórn tókst að skapa jafnvægi innanlands og stöðva víxlhækkanir verðlags og launa. Með þessu var skapaður traustari grundvöllur en áður til þess að snúa sér að lausn hins vandamálsins, sem er gjaldeyrishallinn, enda þolir lausn hans nú enga bið af öðrum ástæðum.
Í frv. þessu um efnahagsmál felst afnám uppbóta- og styrkjakerfisins, sem víð höfum búið við í nokkuð breytilegum myndum í næstum því heilan áratug. Innan vinstri stjórnarinnar átti það sér mikinn hljómgrunn hjá Alþfl. og Framsfl. að afnema þetta kerfi, en kommúnistar stóðu gegn því. Er það eftirtektarvert, hversu kommúnistar, sem áður fyrr ásökuðu Alþfl. iðulega um kák, eru sjálfir ragir við að taka djarfar ákvarðanir í efnahagsmálum. Þeir leggja miklu meiri áherzlu á að fela vandamál efnahagslífsins heldur en að leysa þau. Af kommúnistum var því aldrei neins sérstaks að vænta um góðar undirtektir við skynsamlegar till. í efnahagsmálunum.
Til framsóknarmanna hefði maður hins vegar viljað gera eitthvað meiri kröfur. Að vísu eru undirtektir þeirra litlu betri en kommúnista. En maður hefur samt á tilfinningunni, að það sé fremur af öðrum ástæðum en skilningsskorti. Framsóknarmenn geta ekki með góðu móti sætt sig við þá tilhugsun, að núv. ríkisstjórn takist að leiða yfir þjóðina heilbrigðari efnahagskerfi en hún hefur búið við um langt skeið. Framsfl. hefur oft tekið þátt í gengisfellingu, þegar hann hefur átt aðild að ríkisstjórn, og hann vildi einnig fella gengið í tíð vinstri stjórnarinnar. Hann á því nokkuð erfitt um vik með að gagnrýna gengisbreytingu nú. Sumir forustumenn flokksins segjast líka alveg vera með gengisfellingunni sjálfri, en þeir séu bara á móti afleiðingunum. Þetta er raunar hliðstætt og að vera með því að veita aukið fé til skólabygginga, en vera á móti aukinni menntun.
Framsfl. er raunverulega eins og skip, sem siglir í þoku. Það getur enginn áttað sig á, hvert skipið er að fara, nema þeir, sem þar eru innanborðs. Þokuhjúpinn, sem þeir hafa sveipað um sig, kalla þeir uppbyggingarstefnu. Eysteinn Jónsson hefur brugðið upp þokuljósi og skýrt frá því, að einn þáttur uppbyggingarstefnunnar sé byggðastefnan. Það voru mjög greinargóðar upplýsingar. Annars má segja um afstöðu þeirra framsóknarmanna, að hún sé mjög fálmkennd og þeir viti raunverulega ekki sitt rjúkandi ráð. Sem dæmi má nefna, að formaður þingflokks framsóknarmanna, Eysteinn Jónsson, sagði í þingræðu fyrir jólin, að örðugleikarnir væru nú enn meiri en þegar vinstri stjórnin gafst upp, en í þingræðu eftir jólin sagði hann, að vandinn væri núna mun minni en oftast áður.
Hinar fyrirhuguðu efnahagsráðstafanir munu hafa í för með sér nokkra hækkun á vöxtum, bæði innláns- og útlánsvöxtum. Ekki er þó meiningin, að vextir breytist á lánum með föstum vöxtum, sem tekin hafa verið fyrir gildistöku laganna. Vaxtabreyting hefur að sjálfsögðu víðtæk áhrif í þjóðfélaginu og snertir beinlínis að einhverju leyti hagsmuni fjöldamargra landsmanna. Þeir, sem fengið hafa lán á undanförnum árum, hafa vegna síminnkandi peningaverðgildis og að óbreyttum vöxtum ávallt grætt á kostnað hinna, sem lagt hafa peningana til, þ.e.a.s. sparifjáreigendanna í landinu. En hvaða fólk er þetta, sem leggur spariféð til? Það eru yfirleitt ekki atvinnurekendur og eignamenn. Þeir leggja ekki fé sitt í banka, heldur hafa það í rekstri, festa það í fyrirtækjum og taka svo lán til viðbótar til að halda rekstrinum gangandi. Það er því fyrst og fremst almenningur í landinu, sem leggur spariféð til, en hins vegar atvinnurekendur, sem taka það að láni, þó að undanteknum lánum til íbúðabygginga. Þeir, sem lagt hafa peninga sina í banka og sparisjóði, hafa alltaf verið að tapa, en hinir, sem hafa fengið féð lánað, hafa alltaf grætt. Það er vissulega réttlátt að hamla gegn þessari þróun og rétta hlut sparifjáreigenda með vaxtahækkun. Vaxtalækkunin mundi verða hvatning til aukins sparnaðar, jafnframt því sem hún drægi úr eftirspurn eftir lánsfé. Af því leiddi svo, að óarðbær fjárfesting minnkaði, en það er einmitt nauðsynlegt að draga úr henni og beina því fjármagni og vinnuafli, sem losnar við það, að arðbærri fjárfestingu og þá fyrst og fremst fjárfestingu, sem skapar gjaldeyristekjur eða sparar gjaldeyriseyðslu.
Ég vildi t.d. taka dæmi af manni sem langaði til þess að byggja sér bílskúr fyrir 50 þús. kr. Sjálfur á hann 30 þús. kr. í banka og ætlar sér svo að taka 20 þús. kr. víxillán til viðbótar. Þegar vextirnir hækka, fer hann áreiðanlega að hugsa sig um tvisvar. Hann sér fram á, að það er meiri hagur fyrir hann en áður að láta 30 þús. standa áfram í bankanum og dýrara fyrir hann en áður að taka 20 þús. kr. lánið. Hann hættir svo við að byggja, og bankinn heldur 50 þús. kr. meira en ella til þess að lána til framleiðsluatvinnuveganna. Bílskúrinn verður ekki byggður upp fyrst um sinn, og framsóknarmenn geta að vísu sagt með sanni, að þarna hafi uppbyggingarstefnan beðið ósigur.
Þegar á heildina er litið, er enginn vafi á því, að vaxtahækkunin bitnar á atvinnurekendum, en almenningur nýtur yfirleitt góðs af henni. Það skal skýrt tekið fram, að vaxtahækkunina verða atvinnurekendur að bera einir. Kaupmenn og iðnrekendur fá t.d. ekki að hækka verð á vöru sinni eða framleiðslu, til þess að vega upp á móti vaxtahækkuninni, sem þeir verða að þola, enda væri þá brotið gegn megintilgangi vaxtahækkunarinnar, ef svo væri gert. Af vaxtabreytingunni leiðir það, að sparifé vex og auðveldara verður að fá lán en áður, þó að það verði jafnframt dýrara. Hvað skyldu mikil verðmæti hafa farið forgörðum við það, að menn hafa þrátt fyrir brýnustu þörf alls ekki getað fengið nauðsynleg lán eða hafa þurft að bíða eftir lánum í mjög langan tíma? Er það ekki margfalt hagfelldara t.d. fyrir mann, sem er að reyna að ljúka við húsbyggingu, að geta strax fengið 30–40 þús. kr. lán, sem hann vanhagar um, þótt með hærri vöxtum sé en áður, heldur en þurfa að bíða mánuðum saman eftir láninu eða eiga þess jafnvel engan kost að fá það og þurfa svo jafnvel að leita á náðir okraranna. En okrararnir eru einmitt sú stétt manna, sem verður fyrir mestri kjaraskerðingu vegna vaxtahækkunarinnar. Skyldi maður ekki hafa trúað því að óreyndu, að andstæðingar stjórnarinnar teldu sig þurfa að standa vörð um hagsmuni þeirrar stéttar.
Í frv. þessu er lagt til að afnema vísitöluuppbætur á laun, þannig að verkalýðsfélögum og vinnuveitendum sé bannað að semja um, að kaupgjald fylgi vísitölu. Þetta er róttæk till, og mjög athyglisverð. Kæmist hún í framkvæmd, yrði fellt úr gildi launakerfi, sem við höfum búið við í um það bil tvo áratugi. Er óhætt að slá því föstu, að í því kerfi sé að sumu leyti engin eftirsjá. Þegar t.d. erlend vara hefur hækkað í verði, sem leitt hefur af sér hækkaða vísitölu og hækkuð laun, þá hefur sú kaupgjaldshækkun ekki grundvallazt á aukinni getu innlendra atvinnuvega til að greiða meiri laun en áður. Kaupaukningin hefur hins vegar byggzt á aukinni þörf launþegans til þess að mæta auknum útgjöldum mældum eftir mælistiku vísitölunnar. Þess konar launahækkun er ekki reist á nægilega traustum grunni, því að þegar til lengdar lætur, er það auðvitað greiðslugeta atvinnuveganna, sem ákvarðar kaupmátt launa að mestu. Atvinnuvegirnir hafa bætt sér upp auknar launagreiðslur af þessum sökum með auknum styrkjum frá þjóðinni allri og þar með ekki sízt launþegunum sjálfum. Það, sem launþegarnir hafa þannig móttekið með annarri hendinni, hafa þeir þurft að afhenda með hinni. Vísitöluuppbætur á kaupið hafa því stundum orðið launþegunum nokkurs konar hefndargjöf. Vísitölukerfið hefur mjög stuðlað að sífelldum víxlhækkunum verðlags og kaupgjalds og þar af leiðandi ýtt undir óheillavænlega þróun í efnahagsmálum. Vísitölukerfið var líka komið út í hreinar öfgar. Allt milli himins og jarðar var beint eða óbeint vísitölubundið. Allir áttu að fá allt uppborið samkv. vísitölu, sem auðvitað jafngilti því, að verðgildi slíkra bóta hvarf jafnharðan sem dögg fyrir sólu. Vísitöluuppbætur á kaup leiddu líka til þess, að ríkisvaldið neyddist hvað eftir annað til þess að fara út á þá hálu braut að falsa framfærsluvísitöluna. Einnig varð ríkisvaldið nokkrum sinnum að grípa til þess ráðs að skerða vísitöluuppbætur með lögum til þess að reyna að afstýra stórfelldri verðbólguþróun. Sá tryggingagrundvöllur, sem vísitölukerfinu var upphaflega ætlað að vera launþegunum, hefur því raskazt að allverulegu leyti.
Á hinn bóginn verður það að viðurkennast, að það er æði stórt stökk að ætla sér að afnema vísitöluuppbætur á laun algerlega á fáeinum dögum. Að vísu mætti segja, að það væri ekki ranglátt, eins og málum háttar nú, þar sem svo að segja öll verkalýðsfélög landsins eru með lausa samninga og verkalýðsfélögin vita, er þau ganga til nýrra samninga, um vísitölubannið og geta tekið tillit til þess við samningsgerðina. Hætt er þó við, að verkalýðsfélögin reyni að mæta afnámi vísitöluuppbótanna á þann hátt að gera samninga til enn skemmri tíma en áður og hafa uppsagnarmöguleika sem oftast fyrir hendi. Slík þróun yrði áreiðanlega mjög óheillavænleg og stefndi alveg í öfuga átt. Því tel ég, að þegar málið er krufið til mergjar, komi í ljós, að þarná þurfi að finna skynsamlegan meðalhófsveg. Það ætti að heimila verkalýðsfélögunum að semja um takmarkaðar vísitöluuppbætur, enda sé það skilyrði sett fyrir þessari heimild, að gildistími samningsins fari ekki niður úr ákveðnu lágmarki.
Það er engum vafa undirorpið, að þessar efnahagsráðstafanir hafa í för með sér kjaraskerðingu fyrir þjóðina. En það er einmitt styrkleikamerki, að ríkisstj. og stuðningsflokkar hennar skuli hreinskilnislega játa þessa staðreynd frammi fyrir þjóðinni.
Veikleiki ýmissa efnahagsráðstafana fyrri ára hefur m.a. verið sá, að viðkomandi ríkisstjórnir hafa ekki þorað að segja sannleikann og hafa reynt að dylja afleiðingarnar fyrir þjóðinni og reynt að blekkja hana.
Samkv. útreikningum munu þessar ráðstafanir leiða til 13 stiga hækkunar á framfærsluvísitölunni, sem nú er 100 stig, ef engar gagnráðstafanir væru gerðar. Miðað við vísitöluneyzlu yrði þá kjaraskerðingin 13%. Ber þess þó að geta, að ekki er reiknað með neinni hækkun húsaleigu, en telja má líklegt, að hún hækki eitthvað, þegar lengra frá líður og hækkunaráhrif efnahagsaðgerðanna eru að fullu komin í ljós. Hinar fyrirhuguðu mótaðgerðir draga hins vegar svo verulega úr kjaraskerðingunni, að meðalkjaraskerðing allrar þjóðarinnar verður aðeins um 3% miðað við vísitölugrundvöllinn.
Þessar mótaðgerðir eru:
1) Niðurgreiðsla á kaffi, sykri og kornvörum, sem lækkar vísitöluna um 1.6 stig. Þessarar niðurgreiðslu verður öll þjóðin aðnjótandi.
2) Stórauknar fjölskyldubætur, þannig að 2600 kr. verða greiddar yfir árið með hverju einasta barni undir 16 ára, hvar sem er á landinu. Þessara stórfelldu fjölskyldubóta verða 30 þús. fjölskyldur með 58 þús. börn á framfæri aðnjótandi. Þessar greiðslur leiða til lækkunar vísitölunnar um 8.5 stig.
3) Hækkun elli- og örorkulífeyris frá því, sem nú er, um 44%, auk þess sem ellilífeyrisþegum fjölgar vegna rýmkunar skerðingarákvæðanna. Bótaaukninga þessara njóta um 12 þús. manns. Þessar auknu bætur koma ekki fram í vísitölu.
4) Afnám og lækkun tekjuskatts. Tekjuskattur verður alveg felldur niður af almennum launatekjum og lækkaður verulega á öðrum. Niðurfellingarinnar verða 48 þús. gjaldendur aðnjótandi, en lækkunarinnar njóta 15 þús. gjaldendur. Ef eiginkonur og börn gjaldendanna eru meðtalin, verður sá hópur, sem fríðindanna nýtur, talsvert á annað hundrað þúsund manns.
5) Lækkun útsvara. Fyrirhugað er að veita 50 millj. kr. af söluskattinum til bæjar- og sveitarfélaga. Mun þetta framlag að sjálfsögðu gera flestum bæjarfélögum kleift að lækka útsvör sin eitthvað. Væri ekki fjarri lagi að áætla, að útsvarslækkun hjá einstaklingum gæti af þessum sökum numið 15–20%. Þessi lækkun kemur að sjálfsögðu ekki fram í vísítölu.
Af framangreindri upptalningu er ljóst, að öll þjóðin verður meira og minna aðnjótandi þeirra hlunninda, sem veitt eru til að vega upp á móti kjaraskerðingu vegna hækkaðs vöruverðs. Þessar gagnráðstafanir koma að vísu nokkuð misjafnlega niður á mönnum. Gamalt fólk, öryrkjar og barnmargar fjölskyldur fá kjaraskerðinguna að fullu bætta, enda getur enginn neitað því, að þar sé garðurinn lægstur. En ef við tökum t.d. einstakling með
60 þús. kr. hreinar tekjur, sem fær ekki neinar bætur úr tryggingunum og ekki heldur fær tekjuskattinn að fullu felldan niður, þá lækkar samt sem áður tekjuskattur hans væntanlega úr 2040 kr. í 500 kr., og vegur sú lækkun ein upp á móti 2.5% kjaraskerðingu. Þegar tekið er tillit til niðurgreiðslu á kaffi, sykri og kornvörum svo og væntanlegrar útsvarslækkunar, mundi kjaraskerðing þessa einstaklings og annarra, sem svipað er ástatt um, aldrei verða meiri en 5–8%.
Þeir, sem mesta kjaraskerðingu verða að þola, eru hátekjumennirnir eða hinir ríku, eins og líka réttmætt er. Þetta er augljóst mál, þegar þess er gætt, að gengisbreytingin hefur miklu meiri hækkunaráhrif á erlendar vörur en innlendar. Innlendu vörurnar eru yfirleitt nauðsynjavara, sem allir verða að kaupa, ríkir sem fátækir. Það, sem hátekjumaðurinn kaupir og neytir umfram lágtekjumanninn, er hins vegar miklu fremur erlendur varningur, og því verður kjaraskerðing hins fyrrnefnda mun meiri, miðað við svipaðar neyzluvenjur áður. Kostnaðurinn af því að eignast og reka einkabifreið hækkar t.d. miklu meira en almennur framfærslukostnaður. Fullyrðingar andstæðinganna um, að hinum ríku sé hlíft, eru því algerlega út í bláinn.
Ein helzta röksemd stjórnarandstæðinga gegn efnahagsráðstöfununum er sú, að þær muni leiða til atvinnuleysis. Ekki er þetta látið nægja, heldur er það borið blákalt fram, að það sé einmitt tilgangurinn með þessum ráðstöfunum að framkalla hæfilegt atvinnuleysi til þess að halda verkalýðnum í skefjum.
Svona ásakanir eru í sjálfu sér svo fráleitar, að þær eru ekki svaraverðar. Samt skal ég fara um þetta nokkrum orðum.
Hætta á atvinnuleysi getur ekki verið fyrir hendi, þegar þess er gætt, að okkur vantar nú um það bil 1000 manns til þess að manna togarana og bátana til fulls og auk þess eru í smíðum skip og bátar, sem veitt geta hundruðum manna atvinnu.
Rétt gengisskráning hefur líka þau áhrif, að ýmis verk, sem áður borgaði sig að láta framkvæma erlendis, verða nú unnin hér heima. Má þar til dæmis nefna skipaviðgerðir. Nú fyrir skömmu hófst t.d. stórfelld flokkunarviðgerð á strandferðaskipinu Esju hér í Reykjavík. Þessi viðgerð mun veita járniðnaðarmönnum atvinnu, sem nemur hundruðum þúsunda eða jafnvel milljónum króna, einmitt á þeim árstíma, sem atvinnutekjur þeirra eru rýrastar. Ef gengisbreytingin hefði ekki verið í vændum, hefði öll þessi viðgerð á skipinu farið fram utanlands. Við gengisbreytinguna mun samkeppnisaðstaða innlendra skipasmíðastöðva gagnvart erlendum stöðvum af slíku tagi stórbatna, og atvinna í þessari grein mun aukast stórlega, enda er það ekki vansalaust, að fiskveiðaþjóð eins og við Íslendingar skuli ekki að mestu smíða fiskibáta sína sjálf.
Undan því hefur verið kvartað, að ekki hafi verið höfð nein samráð við verkalýðssamtökin og þá fyrst og fremst Alþýðusamband Íslands við undirbúning þessara ráðstafana. Slíkt samráð er erfiðara í framkvæmd og minna virði en margur hyggur. Í fyrsta lagi er þess að gæta, að vegna skipulagsannmarka getur hvaða verkalýðsfélag í landinu sem er leikið lausum hala, hvað sem miðstjórn Alþýðusambandsins segir eða ráðleggur, og höfum við af því beiska reynslu. Í öðru lagi er það staðreynd, því miður, að íslenzkir verkalýðsleiðtogar láta flokkssjónarmið oftast ráða meiru um gerðir sínar en fagsjónarmið. Forseti Alþýðusambandsins er t.d. formaður stjórnmálaflokks, og varaforseti þess er þingmaður annars stjórnmálaflokks. Slíkir menn lesa efnahagsmálafrv. að sjálfsögðu með flokksgleraugu á nefinu. Rödd verkalýðshreyfingarinnar verður því aðeins sterk, að forustumenn hennar verði alls ekki vændir um að taka mismunandi afstöðu eftir því, hvaða flokkar fara með völd í landinu hverju sinni.
Samráð við verkalýðssamtökin þyrftu líka helzt að geta verið á hagfræðilegum grundvelli. Hins vegar vita allir, að íslenzk verkalýðssamtök hafa enga hagfræðinga í sinni þjónustu.
Ég hefði t.d. álitið það mjög heppilegt, ef Alþýðusamband Íslands hefði fengið hingað lánaða í eina til tvær vikur tvo af færustu hagfræðingum verkalýðssamtakanna á Norðurlöndum til þess að láta þá yfirfara og gagnrýna efnahagsmálafrv. ríkisstjórnarinnar með hagsmuni verkalýðsins fyrir augum. Þessa menn hefðu verkalýðssamtökin getað spurt ýmissa mjög mikilvægra spurninga, svo sem: Er gengisbreyting skynsamleg? Er nauðsynlegt að skerða kjörin? Er réttmætt að afnema vísitöluuppbætur á kaup? Hvaða áhrif hefur vaxtahækkunin o.s.frv.? Og síðast, en ekki sízt: Stefna þessar efnahagsráðstafanir í rétta átt frá hagsmunasjónarmiði verkamannsins? Á svör þessara manna og leiðbeiningar hefði áreiðanlega verið hlustað með miklu meiri athygli en á verkfallshótanir kommúnista. Ég hika ekki við að fullyrða, að ef slíkir sérfræðingar hefðu fundið efnahagsmálafrv. ríkisstj. eitthvað til foráttu, hefði verið tekið fyllsta tillit til þess.
Þeir menn, sem tefla skák, skilja vel, að það er reginmunur á því að leika af sér peði eða fórna peði. Fórnin byggist á hagsmunamati, framsýni og djörfum áætlunum. Þeir hagsmunir, sem látnir eru af hendi, eiga margfaldlega að vinnast upp, þegar fram líða stundir. Það er því hroðaleg skammsýni, þegar sum verkalýðsfélög eru nú að lýsa því yfir í tilefni af væntanlegri kjaraskerðingu, að þau geti engu fórnað. Í nærri því heilan áratug höfum við búið við uppbóta- og styrkjakerfi í ýmsum myndum. Á þessu tímabili hafa orðið miklar framfarir og mikil framleiðsluaukning. Á þessum tíma hafa verið teknar í notkun áburðarverksmiðja, sementsverksmiðja og tvö stór raforkuver, og skipastóllinn hefur aukizt mikið. Þrátt fyrir þetta eru menn sammála um, að á þessu tímabili hafi kjör launafólks yfirleitt ekki batnað og kaupmáttur launa ekki aukizt. Verkafólk og launþegar hafa verið í varnaraðstöðu allt tímabil uppbóta- og styrkjakerfisins. Ein meginástæðan fyrir þessu er sú, að þetta kerfi veitir atvinnurekendunum tækifæri til að varðveita gróðann, en skella töpunum yfir á þjóðina, og dregur þannig úr viljanum til að halda uppi hagsýnum og heilbrigðum rekstri. Það er því ekkert álitamál fyrir verkalýðinn, að uppbóta- og styrkjakerfinu verður að varpa fyrir borð og taka upp nýtt kerfi, sem gerir það óhjákvæmilegt, að atvinnurekendur borgi sjálfir sín eigin töp og greiði úr eigin vasa þær kjarabætur, sem ávinnast.
Menn kunna nú að spyrja, hvort það sé ekki að fara úr öskunni í eldinn að taka upp nýtt efnahagskerfi, sem hefjist með kjaraskerðingu. Þessu er til að svara, að skerðing lífskjaranna er fórn, sem mun bera margfaldan ávöxt í framtíðinni. Þessi fórn er færð til þess að rétta af gjaldeyrishallann og til þess að koma á traustu jafnvægi og festa hina nýju skipan betur í sessi. Þegar fram líða stundir, mun svo ávinningurinn koma í ljós, og þá mun þjóðin sjá, að sú fórn, sem færð hefur verið, hefur leitt af sér ríkulegt endurgjald.
Það er skoðun mín, að það þurfi alls ekki að líða mjög langur tími, þar til verkalýðurinn getur fengið kjör sín bætt á raunhæfum grundvelli í formi kauphækkana. Það, sem mest á ríður í kjarabaráttunni, er að forðast mistök fortíðarinnar.
Í verkföllunum miklu árið 1955 átti verkalýðurinn vissulega rétt á bættum kjörum, en kröfurnar, sem voru gerðar, voru svo öfgakenndar og hóflausar, að maður gat naumast trúað því, að þær væru settar fram af ábyrgum mönnum, en þá var krafizt 30–40% kjarabóta. Afleiðingin varð líka eitt lengsta og harðasta verkfall á siðari áratugum. Í kjölfar verkfallsins fylgdu svo verðhækkanir sem átu kjarabæturnar að mestu upp á skömmum tíma.
Árið 1958 var líka háð kjarabarátta. Kom þá að vísu lítið til verkfalla. Atvinnurekendur gengu mjög fljótlega inn á kaupkröfur verkalýðsfélaganna, sem voru nú hóflegri en áður, en þó gerðu atvinnurekendur þetta með því ófrávíkjanlega skilyrði, að þeir fengju strax að hækka verð á vörum sínum og þjónustu sem kauphækkununum næmi. Var þetta skilyrði samþykkt af stjórnarvöldunum illu heilli. Það fór því að lokum svo, að það var fólkið sjálft, sem varð að borga sínar eigin kauphækkanir.
Ekki eingöngu verkalýðurinn, heldur þjóðin öll mun hafa lært af reynslunni. Hún mun ekki telja neina eftirsjá í uppbóta- og styrkjakerfinu, með því misrétti og þeirri spillingu, sem því hefur fylgt. Þjóðin mun ekki heldur harma afnám innflutningshafta. Þjóðin skilur, að kjaraskerðingin, sem fylgir þessum efnahagsráðstöfunum, er aðeins stundarfyrirbrigði. Hún skilur líka, að ómetanlegar réttarbætur, eins og afnám tekjuskattsins og stórfelld aukning almannatrygginganna, munu á hinn bóginn hafa varanlegt gildi.
Með hinu nýja efnahagskerfi er verið að uppræta spillingaröflin og leysa úr læðingi allt það heilbrigðasta og þroskavænlegasta, sem í þjóðinni býr. Þess vegna göngum við fram í trúnni á bjartari framtíð.