16.02.1960
Efri deild: 23. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 939 í B-deild Alþingistíðinda. (2047)
48. mál, efnahagsmál
Hermann Jónasson [frh.]:
Herra forseti. Ég var þar kominn í máli mínu, að ég taldi mig hafa sýnt fram á, að þessar ráðstafanir, sem hér er fyrirhugað að gera, eru mjög óskynsamlegar og kjaraskerðingin, sem þær valda, miklu meiri en gert er ráð fyrir í grg.
Ég hafði rakið það, hvernig hæstv. ríkisstj. notar fjármálaráðstafanir, sem þarf að gera, til að koma á íhalds- og samdráttarstefnu. Það leynir sér ekki, þegar þessar ráðstafanir eru raktar, að við það er allt miðað. Þetta andlit hefur íhaldið í þessu landi ekki þorað að sýna grímulaust í marga áratugi, þangað til kjördæmabreytingin var komin á og það náði samstarfi við Alþfl.
Það er unnið þannig að þessu máli, bæði formlega, hvernig það er sett fram án samstarfs við launastéttirnar, og efnislega, eins og ég hef sýnt fram á, að það er beinlinís til þess lagað að verða litið á það sem ögrun við þjóðina. Það er sagt jafnframt við þjóðina: Ef þú hreyfir þig, ef þú möglar, eins og hæstv. forsrh. hefur sérstaklega oft tekið fram í sínum ræðum, þá munuð þið fá að kenna á því. Það verður voðalegt ástand. — Þetta virðist vera dálítið skylt því, þegar vissir menn ráðast að öðrum og segja: Upp með hendurnar. Ef þú hreyfir þig, hefur þú verra af. — Hér er stöðugt verið með hótanir á loftí, hverju þjóðin eigi von á, ef hún mögli. Það er líka eins og verið sé að gera gys að almenningi með sumum röksemdafærslunum, og hef ég drepið á það fjarstæðukennda í þeim mörgum.
En um eina röksemdina hef ég ekki rætt enn og ætla að ræða í þeim lokaorðum, sem ég læt hér falla. Það er um lánin. Það er sagt, að þessar ráðstafanir séu gerðar vegna þess, að ekki megi taka meiri lán, þjóðin sé ekki fær um að standa undir þessum lánum. En samt sem áður hefur stjórnin látið það verða sitt fyrsta verk að útvega sér heimild til þess að taka allt að 800 millj. að láni, eða nánar tiltekið 760 millj., að ég hygg, en segir svo jafnframt við almenning: Við tökum ekkert lán, — ekkert lán.
Þetta er álíka röksemdafærsla og ef tveir bændur, Pétur og Páll, höguðu sér á eftirfarandi hátt. Við skulum segja, að Páll tæki lán, 80 þús. kr. lán, til að byggja yfir bústofn sinn og búa betur í haginn fyrir sjálfan sig og sinn rekstur, — hann tæki lán úr einhverjum sjóði til þess að geta komið þessu verki í kring. Hann hefur tekið lán. Það er hliðstætt því, sem gert hefur verið af þeim stjórnum ýmsum, sem setið hafa hér undanfarin ár. En svo skulum við segja, að annar bóndi fer í kaupstaðinn og segir við kaupmanninn eða kaupfélagið: Ég er svo illa stæður, að ég þarf að fá að taka nauðsynjar mínar út í skuld, allt að 80 þús. kr., næsta ár. — Og hann gerir það. Hann hefur ekki tekið lán, heldur hefur sá, sem tók lán til framkvæmdanna, tekið lán, en þessi maður, sem hefur fengið skrifað í reikning hjá sér
daglega úttekt fyrir búið, hefur ekki tekið lán.
Annars álít ég, að þetta lán, sem talað er um sem gjaldeyrisvarasjóð og er það á vissan hátt, beri vott um, að það sé eins og stjórnina gruni, að hún muni þurfa á því að halda, ekki kannske fyrst og fremst til vörukaupa, ef allt gengi að óskum, heldur er eins og stjórnina óri fyrir því, að það muni verða einhver óróleiki út af þessu máli, og það sé vissara að hafa aðstöðu til þess að geta keypt nauðsynjar og geta greitt nauðsynlegar greiðslur, ef eitthvað kynni að koma fyrir. Við höfum heyrt talað um þessa tegund af lánum áður annars staðar, þar sem svipaðar ráðstafanir hafa verið gerðar, og þau hafa stundum verið kölluð eins konar herkostnaður, sem þarf að hafa til að grípa til, ef illa fer, ef þannig er unnið, að líklegt er, að þannig fari.
Annars skal ég engu spá um það, enda er ég alls ekki til þess fær, hvernig þessum málum lyktar. Og ég mun hvorki hvetja launastéttirnar eða þjóðina né letja til þess að gera sinar ráðstafanir. Þjóðin mun fá að reyna þessar ráðstafanir, og hún mun gera sínar ráðstafanir. Stéttirnar munu gera sínar ráðstafanir án tillits til þess, hverju er spáð. En ég óttast það og leyni ekki þeim ótta, að ég álit að þessar ráðstafanir séu gerðar svo klaufalega og svo harkalega farið að og með alls konar blekkingum unnið, að það sé hætt við, að þetta endi því miður í átökum. Og mér kæmi það alls ekkert á óvart, þó að svo færi, að um það bil, að stríðslánið er upp étið og safnað þeim skuldum, sem þar er fengin heimild til, verði stjórnin öll og það gæti orðið endirinn. (Forsrh.: Eru þetta ekki hroðaleg tíðindi?) Það hefur a.m.k. forsrh. sagt þjóðinni nú undanfarið, að það séu hroðaleg tíðindi, því að mér skilst, að það sé enginn lifandi maður til, sem geti tekið við, ef þessi stjórn fer. (Gripið fram í.) Það vita nú náttúrlega fleiri um eitt og annað. En ég skal ekkert endurtaka af þessu, og það væri óskandi, að svona færi ekki. En eins og að þessu hefur verið unnið, er ekkert óeðlilegt, þó að svona fari.
Hins vegar hygg ég, að það sé mála sannast um það, sem þjóðinni hefur verið sagt, að engir séu færir um að taka við, hvorki flokkar né menn, ef þessi stjórn fari, — að það sé mála sannast, að flestir séu líklegir til að gera skynsamlegri ráðstafanir en þær, sem hér eru gerðar, — það sé ekki einn, heldur flestir aðrir. Og ég kvíði því ekki neitt, hvernig sem þetta fer, að þjóðin hafi ekki þrek til þess, — þessi þjóð hefur sýnt það áður, — hún hafi þrek til þess, eftír að hún er búin að kasta af sér þeirri íhaldsstefnu og samdráttarstefnu, sem hér er til stefnt, að reisa sig við að nýju.
Ég ætla svo ekki að hafa þessi orð mín fleiri. Og þetta eru hvorki óskir né spádómar, sem ég ber hér fram, en mér þykir þannig til þessa máls stofnað, að það sé illmögulegt, að öðruvísi fari en ég hef nú sagt.