18.02.1960
Efri deild: 24. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1064 í B-deild Alþingistíðinda. (2063)
48. mál, efnahagsmál
Bjartmar Guðmundsson:
Herra forseti. Mál það, sem hér er til umræðu, er mikið mál og skýtur rótum sínum víða. Það er því ekkert áhlaupaverk að gera sér skýra grein fyrir öllum atriðum þess á stuttum tíma. Sum atriði ættu að vísu að liggja sæmilega ljós fyrir. Um önnur má hins vegar spyrja og spá endalaust. En að sjálfsögðu eru þó hér aðalatriði máls og önnur, sem eru ekki aðalatriði. Umræður þær, sem hér hafa nú lengi fram farið af hálfu stjórnarandstæðinga, hníga minna að aðalatriðum málsins en hinum, og ætla ég að vísu ekki að álasa þeim fyrir það. Þau geta líka verið mikilsverð hin minni atriðin.
Það má auðvitað benda á, að það sé hart aðgöngu að þurfa að rýra tekjur manna eða lífskjör um þó nokkra hundraðshluta eða prósent, hvort sem það eru nú 3% eða 11. Það má auðvitað líka benda á, að óvíst sé, að dæmið sé rétt reiknað og kjaraskerðingin geti orðið meiri, svo að ég viðhafi það leiðinlega orð. Það er auðvelt að sýna fram á, að hækkað verð á byggingarefni hækki byggingarkostnað. Það er enginn vandi að sýna fram á, að vaxtahækkun valdi auknum útgjöldum fyrir þá, sem á lánum þurfa að halda. Það er auðvelt að sanna, að söluskattur sé útgjöld engu síður en tekjuskattur. Það er einnig auðvelt að halda því fram, að útreikningar hagfræðinga fái máske ekki staðizt, því að þeir séu bara menn rétt eins og við hinir. En þetta eru aðeins dæmi. En það er eitt, sem mér finnst ekki auðvelt, það að komast undan því að skilja og viðurkenna, að lagafrv. eins og þetta er ekki borið fram einum eða neinum til skemmtunar eða því um líkt, heldur blátt áfram af því, að fjármálaástand Íslendinga í dag heimtar, að það sé borið fram eða þá önnur úrræði í öðrum formum. Og hvernig er þá þetta fjármálaástand ?
Ég eyði nú ekki tíma í langt mál um það, því að það er búið að ræða það mikið hér á hv. Alþingi. Ríkissjóðsútgjöld á því herrans ári 1959 sýnast munu hafa orðið í kringum 2255 millj. kr., þar af um 1155 millj. gegnum útflutningssjóð, sem er annar handraðinn af ríkiskassanum. Hallarekstur á þjóðarbúinu gagnvart útlöndum um það bil heilan áratug nemur um 200–300 millj. kr. á ári og fer vaxandi. 10% af öllum þjóðartekjunum ganga nú til afborgana og vaxta af erlendum skuldum. Ábyrgðir, sem ríkissjóður stendur fyrir, bæði fyrir einstaklinga og félög, eru nokkuð á annan milljarð, og mikill hluti þessara ábyrgða virðist munu koma til með að falla á ríkið. Ég get ekki farið með tölur um það, hvað stórar upphæðir muni koma til með að falla þannig árlega, en það munu vera tugir milljóna. Gjaldeyrir þjóðarinnar, krónan, er reiknuð með ýmiss konar gengi eftir því, til hvers hún er notuð, sem er óskiljanleg krossgáta t.d. útlendingum, svo að þar er hún ekki einu sinni skráð viðast hvar. Lánstraust er farið veg allrar veraldar, sem vonlegt er. Og svona mætti lengur telja.
Undirrót og aðdragandi þessa ástands er orðinn alllangur, og má að sjálfsögðu mörgu um kenna og mörgum. Það er víst, að um einn til tvo áratugi hefur þjóðin í heild lifað um efni fram, þó að fjöldamargir einstaklingar hennar hafi ekki gert það, eytt meira en hún hefur aflað, því að auk erlendra lána hefur runnið inn í landið mikið fé í ýmsum formum, sumum mjög svo annarlegum. Ég tek fram, að ég tel hina miklu fjárfestingu ekki til eyðslu, þ.e.a.s. óþarfaeyðslu. Nauðsynleg fjárfesting hefur mikil verið á þessu tímabili, það sem hefur gengið til atvinnutækja og nauðsynlegra bygginga, ræktunar, brúa, vega og hafnargerða o.s.frv. En að öðru leyti hefur þjóðin lifað um efni fram og ekki sízt ríkisvaldið sjálft. Það hefur hlaðizt á það á undanförnum árum alls konar kostnaður, sem að mínu áliti er margur hver óþarfur. En ég vil ekki eyða hér tíma í að tala um orðinn hlut. Það gagnar engum nokkurn tíma. Ég vil ekki heldur kenna hér einum eða neinum sérstökum um. Öll þjóðin á að einhverju leyti sök á efnahagsöngþveiti okkar í dag, að örfáum einstaklingum þó undanskildum. Allir stjórnmálamenn og allir flokkar eiga hér einhverja sök, því að allir flokkar hafa farið með stjórn að einhverju leyti á undanförnum árum.
Eins og menn vita, gerir frv. þetta ráð fyrir að nema vísitöluútreikninginn að mestu leyti í burtu, vísitöluskrúfuna svokölluðu, í öðru lagi að fella úr gildi útflutningsuppbótakerfið, sem gilt hefur með ýmsum viðaukum síðan 1951, að ég held, og náði sínu hæsta marki, sem enn er náð, 1958, enn fremur að taka nú upp einfalda skráningu á gengi og eðlilega, ef svo mætti að orði komast. Þetta eru aðalatriðin í frv., og verður því hver og einn að reyna að mynda sér sem greinilegasta afstöðu til þeirra.
Frá mínu sjónarmiði séð er rétt gengisskráning sjálfsögð. Vísitölureikningur á grunnlaun var talinn réttlæti, sem tryggði launtakanum fullan kaupmátt tekna gagnvart vöruverðssveiflum. Ýmsar þjóðir munu hafa notað þetta nokkuð, en fáar eða engar eins og við nú í hartnær tvo áratugi. En að því er ég bezt veit, hafa allar þjóðir horfið frá vísitölureikningi að minna eða meira leyti vegna stórra galla, sem á þessu fyrirkomulagi eru.
Um útflutningsuppbæturnar er þetta að segja: Þær komust á í nokkurs konar ógáti fyrir 9 árum, þá aðeins sem bráðabirgðaúrræði til að rétta hlut einnar greinar fiskiflotans. Síðan hefur bót verið bætt ofan á bót ár frá ári, öllum til bráðabirgða. Þær voru hugsaðar til bráðabirgða, en voru þó framlengdar, þar til lög um útflutningssjóð komu 1958, sem útheimtu 1155 millj. ríkisútgjöld árið 1959, og mun fara hækkandi enn, ef ekki er að gert. Útflutningsuppbótakerfið með sinni margföldu gengisskráningu er búið að dæma sig úr leik. Þetta viðurkenna meira að segja mjög margir hv. stjórnarandstæðinga. Undir uppbótakerfinu á útflutningsframleiðsluvöru hefur frá upphafi aldrei verið neinn viðunandi grundvöllur. Á síðustu árum hefur öll útgerð verið á ríkisábyrgð, þannig að það greiðir vissa upphæð á hvert kg aflans. Í framkvæmd er þetta ríkisrekstur, þar sem ríkið ber alla áhættu, en hefur enga möguleika til að hirða ábata, ef hann verður einhver. Það er í sjálfu sér ágætt fyrir einn atvinnuveg að búa við svona aðstöðu, en það er of dýrt fyrir heildina, þ.e.a.s. þjóðina, að maður ekki tali um alla þá skriffinnsku, sem í kringum þetta stendur. Þarna fyrir utan eru svo margir ágallar, m.a. þeir, að engin tök eru á að útdeila þessu fé þannig, að það komi sæmilega réttlátlega niður. Viðurkenna þetta allir, að þessi mál öll eru komin í hinar mestu ógöngur. Ríkisrekstur á sér að vísu marga formælendur, en til þess að nokkur geti stutt hann í alvöru, þarf hann að vera í öðru formi en þetta.
Í einu gömlu kvæði og merkilegu er þessar hendingar að finna:
„Varðar mest til allra orða,
að undirstaðan sé réttleg fundin.“
Það, sem hæstv. ríkisstj. er að leitast við að gera með flutningi þessa frv., er að finna betri undirstöðu fyrir fjármálakerfi þjóðfélagsins en verið hefur hin síðustu ár. Hér á hv. Alþingi hefur það komið fram hvað eftir annað, að um þrjár leiðir sé að ræða: Fyrst uppbótarleiðina, þá sem gilt hefur nú að undanförnu með ýmiss konar umbótum og viðaukum. Það er tjöldun til einnar nætur, ef svo mætti að orði komast. Öllum kemur saman um, að sú leið sé í sjálfu sér ófær nema aðeins sem úrræði til að geta flotíð stuttan spöl í einu, þar til nýjar aðgerðir komi til. Í öðru lagi áætlunarbúskap og þá um leið ríkisrekstur að fyrimynd þeirra ríkja, sem hafa tekið sósíalisma sem aðalundirstöðu atvinnu sinnar. Sú leið er að sjálfsögðu fær, og ég held, að sú leið væri betri gagnvart útgerðinni heldur en sú leið, sem nú hefur veríð farin með uppbótakerfinu. Og í þriðja lagi þá leið í aðalatriðum, sem hér er lagt til að farin verði og allar okkar nágrannaþjóðir fara í aðalatriðum. Engan hef ég heyrt hér á hv. Alþingi halda fram, að sú leið sé í sjálfu sér ófær. Hv. 2. þm.. Vestf. sagði hér í fyrradag við 1. umr., að sú leið væri að sjálfsögðu fær, en hann efaðist um, að fólkið vildi fara hana, almenningur, þjóðin. Ég met hið fyrra atriði mikils af vörum hins þaulreynda stjórnmálamanns, en úr hinu verður reynslan að sjálfsögðu að skera.
Hér eru að sjálfsögðu ýmsar ráðstafanir á ferð, sem taldar eru nauðsynlegar, eins og á stendur, en koma óþægilega við. En alls staðar hefur verið reynt að finna ráð til að draga úr þeim óþægindum, einkanlega að því er snertir fjölskyldufólk og gamalmenni eða öryrkja. Auðvitað er, að allra æskilegast hefði verið, að hvergi hefði þurft að skerða lífskjör, eins og það er nú tíðast orðað. En nú held ég, að nauðsyn brjóti lög, eins og í svo mörgum öðrum greinum.
Að undanförnu hefur svo til hverjum manni verið ljóst, hvert stefndi. Fjárfestingarkapphlaup manna hefur sýnt það betur en flest annað, að þeir vildu verða á undan með sínar framkvæmdir, á undan þeirri stund, er upp rynni, þegar ekki yrði hægt lengur að fá peninga til framkvæmda. Allar ríkisstjórnir næstliðinn áratug eða lengur hafa séð, hvert stefndi. Fyrr en nú hafa verið fengnir sérfræðingar í efnahagsmálum til að leggja á ráð og gera till., en ríkisstjórnirnar hafa verið of veikar og sundurþykkar til að taka þær till. til greina. Þær hafa einungis stiklað kringum hið heita soð, sundurlyndi, átakaleti og kjósendahræðsla meira en skortur á langsýni hafa valdið því, að alltaf hin seinustu ár hefur verið tjaldað aðeins til einnar nætur í senn. S.l. haust náðist samstaða tveggja stjórnmálaflokka um þá þoranraun að reyna að breyta til. Hvað sem öllu öðru líður, má bera nokkra virðingu fyrir þeirri djörfung. Stjórnin kvaddi sér til aðstoðar menn um till., byggðar á rannsókn og sérþekkingu á efnahagsmálum, hagfræðinga, sem allir, er til þekkja, munu bera mikið traust til. Og hagfræðingarnir lögðust undir feld, eins og Þorgeir goði árið 1000, þegar honum var falið einum manna að skera úr í því erfiða átakamáli milli kristins siðar og heiðins, sem þá var ríkjandi. Í myrkri sínu undir feldinum eygði Þorgeir frá Ljósavatni það, sem koma átti og koma varð, og felldi sinn úrskurð daginn eftir í fullu samræmi við eigin sannfæringu, er þó gekk á móti afstöðu hans til málsins áður og flokksbræðra hans. Þar ávann hann sér nafn, sem aldrei gleymist. Okkar ágætu hagfræðingar hafa og fellt sinn úrskurð og gert sínar tillögur. Ég dæmi ekki um, hvort þær séu jafnöruggar og úrskurðurinn við Öxará fyrir 960 árum. Reynslan verður að skera úr um það, enda er ekki saman að jafna ástandi þá og nú. En ég ætla, að ég megi fullyrða, að till. hagfræðinga, sem ríkisstj. nú flytur með sínum breytingum og viðaukum, miði í rétta átt í höfuðatriðum. Að sjálfsögðu má þó gera ráð fyrir, að sitthvað komi fram, sem endurskoðunar þurfi við. Málið er svo margslungið, að það er raunar ómögulegt annað, enda verða engin mál leyst í einu vetfangi, og verður það þá að sjálfsögðu tekið fyrir jafnóðum og fram kemur. Stundaróþægindi, sem fylgja sumum hliðarráðstöfunum, verða að sjálfsögðu talsverð og erfið, en ættu ekki að þurfa að verða nema él eitt, ef vel tekst með hitt. En það er satt, sem hv. stjórnarandstæðingar hafa sagt hér hver af öðrum, að það er á valdi þjóðarinnar, hvort hún lætur þessar ráðstafanir takast. Vonandi leiðir hún ekki yfir sig viðbótarglundroða í efnahagsmálum með ótímabærum verkföllum eða útgerðin verði látin gera kröfur, sem er ekki hægt að verða við, sem nú virðist því miður bóla ofur lítið á hér og þar. Ég held, að það mundi hafa verri afleiðingar en nokkurn grunar. En hvernig sem um það fer, þá er víst, að efnahagskerfið þarf mikilla umbóta við, og þess vegna er frv. þetta fram borið. Það er mikið í húfi, að vel takist um framgang þess og framkvæmd, ef að lögum verður. Þar við held ég, að mikil tímanleg velferð manna í þessu landi liggi, og ef illa tekst til, þá verður það þjóðinni ekki til sóma.
Ég get raunar lokið máli mínu hér, en kemst þó varla hjá að drepa hér á eitt lítið atriði vegna ummæla í framsöguræðu hv. 1. þm.. Norðurl. e. viðvíkjandi innlánsdeildum í kaupfélögum. Hv. 2. þm.. Vestf, kom einnig inn á þetta mál hér í fyrradag við 1. umr. málsins.
Það hefur verið vítt mjög og talið árás á kaupfélögin og samvinnustefnuna í landinu, að í frv. þessu, sem hér liggur fyrir, er gert ráð fyrir því, að seðlabankinn fái hluta af innstæðum innlánsdeilda í kaupfélögunum. Með leyfi hæstv. forseta, vil ég lesa þá grein í frv., sem um þetta fjallar:
„Ákvæði 2. mgr. l. nr. 63 1957 skulu einnig ná til inniánsdeilda kaupfélaga og söfnunarsjóðs.“
Lög þessi, sem hér er vitnað í, voru samin 1957 og gera ráð fyrir því, að seðlabankinn hafi heimild til þess að taka í sína vörzlu nokkuð af því fé, sem er í sparisjóðum og bönkum, til þess að auka veltu sína eða getu til útlána. Ég álít, að þetta hafi verið mjög óhagstæð lög fyrir sparisjóði úti á landi, vegna þess að þeir hafa mjög lítið fjármagn miðað við það, sem þeir þyrftu að hafa, og hefur svo lengi verið, og hafa því alls ekki getað fullnægt nándar nærri þeirri þörf, sem er í nágrenni þeirra til útlána. En hins vegar, ef það var nauðsynlegt 1957 að setja þessi lög og skylda sparísjóði til þess arna, þá sé ég ekki, að það hafi verið nein rök fyrir því að undanþiggja innlánsdeildir sömu kvöð. Innlánsdeildir eru, eins og menn vita, stofnanir fyrir sparifé, sem notað er heima í héruðunum á hliðstæðan hátt og sparifé úr sparisjóðunum, og þær hafa ekki einu sinni eins stóru hlutverki að gegna fyrir héruðin og sparisjóðirnir, vegna þess að fé þetta gengur raunar aðeins til þeirra stofnana, sem þeir eru í, kaupfélaganna. Ég tel, að með því að undanþiggja innlánsdeildirnar þessari kvöð, hafi hún verið nauðsynleg 1957, þá hafi þar verið gerður munur á innlánsdeildum og sparisjóðum, og þó að ég sé kaupfélagsmaður, þá tel ég það ekkert réttlætismál, að kaupfélögum sé gert hærra undir höfði en öðrum stofnunum að þessu leyti. Hins vegar hefði ég ekki með fúsu geði getað samþykkt þessi lög 1957. En ég tel ekkert athugavert við það að láta innlánsdeildirnar fylgja með nú, ef það er þörf á því vegna fjármálaástands þjóðarinnar, að seðlabankinn þurfi að fá eitthvað af fé á þennan hátt utan af landi, en það er neyðarúrræði að láta hann nota það. Sem sagt, ég álít, að þarna hafi verið gerður óeðlilegur munur á 1957 og þetta sé aðeins leiðrétting. Hins vegar mun þetta ekki hafa verið notað enn, og væntanlega og vonandi kemur ekki til þess, að það þurfi að nota það.