29.01.1960
Neðri deild: 16. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1098 í B-deild Alþingistíðinda. (2086)

40. mál, útsvör

Sjútvmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Í 21. gr. l. um útsvör, nr. 66 frá 1945, segir, að aðalniðurjöfnun útsvara skuli fara fram á tímabilinu febrúar-maí, að báðum mánuðum meðtöldum, eftir nánari ákvörðun sýslunefnda og bæjarstjórna. Þó geti rn. heimilað hreppsnefnd eftir beiðni hennar að láta aðalniðurjöfnun útsvara fara fram siðar á árinu, ef ríkar ástæður mæla með því.

Nú kom það fyrir í einu sveitarfélagi hér nærlendis, Ólafsvíkurhreppi, að árið 1959 leið svo, að ekkert útsvar var lagt á á staðnum. Hverju það er að kenna eða hvernig á þessu stendur, skal ég ekki segja. En þarna var nokkur vandi á höndum, því að hreppsfélagið mátti vitaskuld ekki við því að missa heils árs útsvarstekjur út úr sínum rekstri. Nú var talið, að það væri ekki ótvíræð heimild útsvarsl. til þess að veita hreppsn. heimild til að leggja nýtt útsvar á fyrir árið 1959 eftir lok þess árs, því að eins og ég las upp, stendur í 21. gr. útsvarslaganna, að rn. sé heimilt að veita hreppsnefnd leyfi til þess að láta niðurjöfnun útsvara fara fram síðar á árinu, — og til þess að koma í veg fyrir, að nokkur vafi gæti á því leikið, að útsvarsálagningin væri lögleg, þótt hún færi fram eftir árslokin, þótti nauðsynlegt að gefa út brbl., sem tækju af öll tvímæli um þetta. Þess vegna voru 13. jan. s.l. gefin út brbl., sem fara í þá átt, að orðin í 21. gr., sem ég las, „á árinu“, verði numin burt og að rn. sé þess vegna heimilt að gefa hreppsnefnd leyfi til þess að leggja á útsvar síðar en á reglulegum tíma og þá ekki bundið við árið. Þessi brbl. voru elnungís sett til þess að reyna að bjarga hreppsfélaginu út úr þeim vanda, sem það var komið í með því að láta niður falla útsvarsálagninguna á árinu 1959. Og þetta frv. er borið fram til staðfestingar á þeim brbl. Málið er svo einfalt, að um það þarf ekki að hafa fleiri orð, og ég vil að síðustu leyfa mér að leggja til, að þessu frv. verði að umr. lokinni vísað til hv. heilbr.- og félmn.