29.01.1960
Neðri deild: 16. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 1098 í B-deild Alþingistíðinda. (2087)

40. mál, útsvör

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Það eru merkilegar fréttir, sem hingað berast með þessu fáorða frv. Á einum stað á landi voru hafa menn verið í friði fyrir útsvarsálagningum árið sem leið. Þetta er í Ólafsvíkurhreppi vestra. En af þessu mætti draga þá ályktun, að þar væri gott að búa. Því miður bendir þó frv. til þess, að þar verði ekki varanlegur friður, því að nú á að setja lög, sem heimila þeim að leggja á útsvör fyrir árið 1959, þó að komið sé fram á árið 1960.

Eins og hæstv. ráðh. gerði grein fyrir, er þetta frv. um það að fella niður tvö orð úr 21. gr. útsvarsl., og mér skilst, að ef þetta verður samþykkt þannig, þá sé um leið komin í lög almenn heimild til þess, að hægt væri fyrir sveitar- og bæjarstjórnir að láta fara fram aðalniðurjöfnun útsvara oftar en einu sinni á sama almanaksárinu. Ég er ekki viss um, að það væri heppilegt, að slíkur siður væri upp tekinn, og þess vegna nokkuð vafasamt, að það sé ástæða til að gefa svo víðtæka heimild sem þetta frv. felur í sér. Það væri auðvelt að verða víð óskum og þörfum sveitarstjórnarinnar í Ólafsvikurhreppi með öðru móti, með því að hafa lögin aðeins um heimild fyrir hana til þess að láta nú fara fram niðurjöfnun fyrir árið 1959, þótt komið væri fram yfir áramótin. — Mér fannst ástæða til að vekja athygli á þessu, áður en máliðfer til n., og vildi beina því til hv. þn., sem fær málið, að íhuga þetta.