26.11.1959
Neðri deild: 3. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 23 í C-deild Alþingistíðinda. (2147)

13. mál, áburðarverksmiðja

Flm. (Einar Olgeirsson):

Herra forseti. Með þessu frv. er farið fram á það við Alþingi, að það taki ákvörðun um, hvort eigi að takast að nokkru eða öllu leyti úr eigu ríkisins fyrirtæki, sem nú mun vera um 200 millj. kr. virði, eða hvort eigi að láta slíka tilraun misheppnast. Það er raunverulega verið að ákvarða um það með þessu frv., hvort það eigi raunverulega að láta það verða eins konar staðreynd í þjóðfélaginu, sem sagt er í einni gamalli vísu, að:

Steli ég litlu og standi ég lágt,

í steininn settur er ég,

en steli ég miklu og standi ég hátt,

í stjórnarráðið fer ég —

eða hvort eigi að koma í veg fyrir, að stærstu fyrirtæki ríkisins séu tekin úr eigu þjóðarinnar, svo að segja fyrir ekki neitt, og afhent einkaaðilum. Ef ógæfusamur vesalingur stelur frakka, þá er hann dæmdur í tukthús, ef hann næst, sviptur mannorði og sviptur kosningarrétti. En hér er um það að ræða, hvort áburðarverksmiðja ríkisins, sem samkv. lögum er sjálfseignarstofnun og eign ríkisins, eigi að vera ótvírætt ríkiseign eða hvort eigi að takast að fullu og öllu að ná henni úr eigu ríkisins.

Ég hef nokkrum sinnum áður reynt að vekja athygli þessarar hv. d. á því, hver hætta sé á ferðum í þessu efni, og það eru nú síðustu forvöð af ástæðum, sem ég kem að síðar, að taka ákvörðun um, hvort það eigi að takast eða mistakast fyrir þeim aðilum, sem reyna að gera þetta fyrirtæki að eign eins hlutafélags, að ná því þannig að meira eða minna leyti úr eigu þjóðarinnar og yfir í eign einkaaðila.

Það eru um 10 ár síðan lögin um áburðarverksmiðju ríkisins voru samþykkt. Ég býst við, að það séu aðeins 17 þingmenn af þeim, sem fjölluðu þá um það mál, sem enn eiga setu á Alþingi, svo að það er full þörf, að meiri hluti alþingismanna, sem síðan hefur komið til og bætzt hér í hópinn, geri sér fulla grein fyrir, hvers konar alvara hér er á ferðum.

Frá því fyrst var farið að tala um að koma upp áburðarverksmiðju hér á Íslandi, var alltaf rætt um það, að slík áburðarverksmiðja yrði að vera eign ríkisins: í fyrstu till., sem um þetta eru gerðar hjá skipulagsnefnd atvinnumála, Rauðku gömlu, síðan í því fyrsta frumvarpi, sem lagt er fyrir af utanþingsstjórninni, því næst í því frv., sem undirbúið er af nýbyggingaráði, þá dettur aldrei neinum alþingismanni annað í hug og neinum, sem um þetta mál fjallar, heldur en þetta fyrirtæki eigi að vera alveg ótvíræð eign ríkisins og ríkisins eins. Og þannig er frv. lagt fyrir af stjórninni, sem hér sat og gerði þetta frv. að lögum 1949, samstjórn Alþfl., Framsfl. og Sjálfstfl. Og þannig var þetta frv. samþykkt hér í neðri deild við þrjár umr. Við síðari umræðurnar í Ed., á þeim atburðaríku annadögum vorið 1949, er þessu frv. breytt þannig, að núverandi 13. gr. þess er bætt við, smeygt inn í við síðustu umræður á síðustu dögum þingsins og þrátt fyrir mótmæli samþykkt við eina umr. aftur hér í Nd. Þessi breyt., sem nú er 13. gr. laganna, var orðuð svo, að ef hægt yrði að safna 10 millj. kr. í hlutafé og 4 millj. a.m.k. þar af væru eign einkaaðila, þá skyldi verksmiðjan rekin sem hlutafélag. Þannig var það samþykkt, og þannig stendur það í lögunum. Í 3. gr. stendur ótvírætt: Áburðarverksmiðjan er sjálfseignarstofnun. Í 13. gr. stendur, að hún skuli rekin sem hlutafélag.

Það, sem svo gerist nokkrum árum síðar, 3–4 árum síðar, eftir að áburðarverksmiðjan er komin upp, er, að 2 af þáv. ráðh. Framsfl., hv. 2. þm. Vestf. og hv. 1. þm. Austf., gefa yfirlýsingar um það úr ráðherrastóli, að áburðarverksmiðjan sé eign hlutafélagsins. Þessum yfirlýsingum var þá þegar mótmælt af mér og fleirum og því lýst yfir, að þessar yfirlýsingar væru á persónulega ábyrgð þeirra ráðh., sem slíkt gæfu, en yrðu seinna meir notaðar í málaferlum um eignina á þessari verksmiðju til þess að reyna að sanna, að þessi áburðarverksmiðja væri eign hlutafélagsins. Og ég býst við, af því að ég hef gert grein fyrir því í grg, frv., að hv. þingmönnum sé ljóst, hvað það mundi þýða, ef svona yrði litið á. Áburðarverksmiðjan kostaði, þegar hún var byggð, um 130 millj. kr. Hlutaféð hins vegar er 10 millj. kr. Af því hlutafé eiga einkaaðilar 4 millj. kr. Allmikinn hluta af þeim 4 millj., nokkurn veginn jafnstóran hluta, eiga Samband ísl. samvinnufélaga og hlutafélagið Borgarvirki, sem aftur er eign allmargra annarra aðila. Ef einhvern tíma kynni að verða litið svo á af dómstólum, að þessar yfirlýsingar ráðherranna væru réttar, þá mundi um leið verða litið svo á sem þetta 10 millj. kr. hlutafélag væri eigandi verksmiðjunnar. Það mundi þýða, jafnvel þótt núverandi hlutföll héldust, að einkaaðilar, sem ættu hlutabréf upp á 4 millj. kr., mundu að 20 árum liðnum frá stofnun verksmiðjunnar, þegar verksmiðjan ætti eftir lögunum að vera búin að borga sig niður á kostnað þeirra, sem áburðinn nota, á kostnað bænda, — þá ættu eigendur þessara hlutabréfa, að upphæð 4 millj. að nafnverði, að eiga 2/5 hluta verksmiðjunnar. Það mundi þýða með því verði, sem verksmiðjan var á, þegar hún var byggð, um 52 millj. kr. Ég býst við, að nú hins vegar mundi verksmiðjan vera metin á ekki minna en 200 millj. kr. Það mundi þýða nú, að fyrir þessar 4 millj. kr. í hlutabréfum ættu þeir að eignast eign, sem væri 80 millj. kr. með núverandi peningagildi.

Það sér hver maður, hvað verið er að gera með þessu og hver hætta er á ferðum, ef svona er hægt að fara að. Ríkið útvegaði alla peningana til þess að byggja þessa verksmiðju, tók það allt að láni. Vextirnir og allt slíkt er reiknað í áburðarverðinu, og það liggur fyrir ráðherrayfirlýsing um, að allur slíkur kostnaður skuli alltaf reiknaður þar í, þannig að bændur landsins og aðrir, sem áburðinn nota, fá að borga þetta af sjálfu sér, og verksmiðjan heldur áfram með þeim afskriftum, sem árlega verða, svo að maður tali nú ekki um verðbólgu, að verða meir og meir, ef svo yrði litið á, að þessar ráðherrayfirlýsingar hefðu við rök að styðjast, eign þessara einkaaðila, sem lögðu fram 4 millj. kr. í hlutafé fyrir tæpum áratug.

Ég hef nokkrum sinnum lagt þetta frv. fyrir, og því hefur aldrei verið mótmælt hér á Alþingi, að þetta hefði við rök að styðjast. Þeir menn, sem einu sinni gáfu þessar yfirlýsingar úr ráðherrastól, hafa aldrei treysts til að reyna að verja þær í þeim umr., sem hér hafa farið fram. Og ég held, að það sé nú ekki orðið nema herzlumunurinn, að Alþingi taki sjálft af öll tvímæli um þetta mál og slái því föstu, sem er sá rétti lagaskilningur, staðfestur í 3. gr. laganna, að þessi áburðarverksmiðja sé sjálfseignarstofnun og hún sé stofnun ríkisins, þó að hún hafi um skeið verið rekin að nafninu til sem hlutafélag. Það má máske afsaka það á ýmsan hátt, að menn létu sér detta í hug 1949 og á árunum þar á eftir að líta svona á. Í fyrsta lagi má segja svona á vissan hátt, þó að það sé kannske ekki fallegt orðatiltæki, að það hafi gengið yfir á árunum 1951–52 almenn þjófnaðaralda í mannfélaginu, sem var kölluð á fínu máli þeirra sérfræðinga, sem ráðleggja ríkum mönnum, hvernig eigi að stela af alþjóð og fátækum mönnum, á fínu máli var það kallað „frelsi einkaframtaksins“, — það gekk slík alda þá yfir. Í fyrsta lagi var verið að ræna launum af almenningi, það var lækkaður um 20% kaupmáttur launanna með gengislækkun og öðru slíku á þessum árum. Það var í öðru lagi gefið frjálst að leggja á, álagningarfrelsi, sem hæstv. núv. viðsk.- og menntmrh. afhjúpaði þá mjög rækilega í ágætum ræðum, sem hann hélt. Og það var í þriðja lagi gerð þessi atlaga til þess að reyna að pína stjórnarvöldin undir sterkum pólitískum og fjárhagslegum áhrifum vestan úr Ameríku til að taka úr eigu þjóðarinnar ýmis þau fyrirtæki, sem þá voru í hennar eigu eða var ætlað að vera í hennar eigu.

Það var þá t.d., sem verið var að stofna Framkvæmdabankann, og eitt af því, sem var lagt til, þegar það frv. var lagt fyrir, var, að það skyldi afhenda hlutafé ríkisins í Áburðarverksmiðjunni h/f, að upphæð 6 millj. króna, sem stofnfé Framkvæmdabankans. Benjamín Eiríksson, sem þá var efnahagsráðunautur ríkisstj. og ætlað var að verða bankastjóri þess banka og gaf þáverandi ríkisstj. ýmsar slæmar ráðleggingar, sem illa reyndust, eins og gengislækkunin og ýmis önnur mistök í fjármálum landsins, hann lýsti því þá yfir aðspurður á fundi fjhn. Ed. um, hvað hann ætlaði sér að gera við þessi hlutabréf ríkisins, 6 millj. kr., ef þau yrðu afhent sem stofnfé til Framkvæmdabankans, — hann sagði á fundi fjhn., eins og kemur fram í áliti minni hl. fjhn. 16. jan. 1953, að hann hugsaði sér, að þessi hlutabréf yrðu seld síðar. M.ö.o.: efnahagsráðunautur ríkisstj., sem þá var, núverandi bankastjóri Framkvæmdabankans, sá maður, sem einna mest áhrif hefur haft á þróun íslenzkra efnahagsmála frá 1950 með þeim mistökum, sem þá voru gerð með gengislækkuninni, — hann ætlaði sér að reyna að fá í eign Framkvæmdabankans 6 millj. kr. af hlutabréfum ríkisins í Áburðarverksmiðjunni h/f og láta síðan selja þessi bréf einkaaðilum. Samkvæmt yfirlýsingum framsóknarráðherranna hefði, ef þetta tiltæki hefði tekizt, öll áburðarverksmiðjan verið komin í eigu þeirra manna, sem hefðu keypt þessi hlutabréf upp á 6 millj. kr. Þegar einkaaðilar hefðu verið orðnir eigendur hlutabréfa upp á 10 millj. kr., hefðu þeir, ef yfirlýsingar framsóknarráðherranna hefðu haft við lög að styðjast, verið orðnir eigendur þess fyrirtækis, sem nú mun kosta um 200 millj. kr. Og þó að þetta mistækist þá, þó að það yrði stöðvað í meðferð þingsins að láta Framkvæmdabankann fá þessi hlutabréf sem stofnfé, þá getur svona komið fyrir aftur, svo framarlega sem Alþingi tekur ekki af skarið um svona mál.

Ég veit, að það er máske ýmislegt til, sem kann að afsaka svona tiltæki og svona tilraunir, ekki aðeins það, að menn séu haldnir hringavitlausum hagfræðilegum hugmyndum, eins og dr. Benjamín Eiríksson, og reyni að praktísera þær í þjóðfélagi eins og í okkar íslenzka þjóðfélagi, þar sem þær ekki eiga við, heldur líka hitt, að menn séu undir þrýstingi voldugra erlendra ríkisstjórna, sem vilja hafa þau áhrif á okkar þjóðfélag, að tekið sé úr eigu okkar þjóðar fyrirtæki, sem við álítum sjálfsagt að hún eigi.

Við vitum það ósköp vel, að það var á þessum tímum mikill þrýstingur að stjórnarvöldum landsins að hafa þau fyrirtæki, sem reist væru, ekki í eign íslenzku þjóðarinnar, heldur í eign einkaaðila, og mér er ekki grunlaust um, að meira að segja þeir menn, sem breyttu þessum lögum í nóv. 1949, hafi jafnvel ekki endilega gert það af því, að þeir væru svo fylgjandi einkarekstri út af fyrir sig, heldur af hinu, að þeir hafi verið hálfhræddir um, að viss lán, sem áttu að fást til þessara fyrirtækja, mundu varla fást, nema að nafninu til væri einhverju breytt þarna, og þeir ætluðust ekki til, að það yrði meira en nafnið.

Mér er a.m.k. kunnugt um, að það var harður þrýstingur á þá ríkisstj., — líklega hefur það aðallega verið eftir 1953, — sem þá sat að völdum, að koma sementsverksmiðjunni úr eign ríkisins í eign einstakra aðila — þrýstingur, sem mér er kunnugt um að ekki var látið undan, þannig að þegar frv. um sementsverksmiðjuna, — og þó held ég, að það hafi tafizt nokkuð af þessum ástæðum, — var flutt hér á Alþingi, þá var það flutt sem frv. um verksmiðju í ríkiseign og samþykkt þannig og er þannig. Það var ekki látið undan þrýstingi frá þeim amerísku stjórnvöldum, sem þá höfðu mikil áhrif á íslenzk stjórnmál. Þau íslenzku yfirvöld, ríkisstj. og Alþingi, sem fjölluðu um sementsverksmiðjuna, stóðu á verði, og sementsverksmiðjan er í dag ótvíræð eign íslenzka ríkisins, íslenzku þjóðarinnar, eins og áburðarverksmiðjan á að vera lögum samkvæmt og eins og Alþingi á að taka öll tvímæli af um að hún sé. Það var mikil heppni fyrir Ísland, að því skyldi vera afstýrt á þessum tíma og allar tilraunir í þá átt að koma stórfyrirtækjum þjóðarinnar í eign einstaklinga stöðvaðar. Það var mikil gæfa. Við vitum hins vegar, af hvaða orsökum þessar tilraunir komu. Það hafði þá seilzt til áhrifa á íslenzkan þjóðarbúskap voldugt erlent vald, auðvald Bandaríkjanna, og það virtist vera tilhneiging til þess að fara að beita samsvarandi aðferðum við að byggja upp íslenzkt fjárhagslíf eins og voldugir amerískir auðjöfrar höfðu beitt hjá sér. Það er orðin saga nú einvörðungu, hvernig amerískt auðvald reis upp, en aðferðirnar, sem það notaði, voru þannig, að meira að segja það að reyna að stela áburðarverksmiðjunni úr eign ríkisins var barnaleikur hjá þeim aðferðum, sem þá voru notaðar.

Það er til ein bók, sem er orðin ein af þeim klassísku bókum Bandaríkjaþjóðarinnar, sem var gefin út fyrir réttum 50 árum, eftir Gustavus Myers, sem heitir History of the Great American Fortunes, sem segir frá því, hvernig Morgan og allir þeir stóru auðjöfrar Ameríku öfluðu sér fjár. Það er bók upp á um 700 síður, þar sem rakin er öll fjárglæfrasaga allra voldugustu auðfyrirtækja Ameríku, og sá lærði prófessor, sem tekið hafði þessa bók saman, fór með hana til allmargra útgefenda í upphafi þessarar aldar og enginn þorði að gefa hana út, af því að allir bjuggust við svo miklum málaferlum frá þeim voldugu auðhringum út af þessari bók og hvernig flett var ofan af þeirra tiltækjum, að þeir bjuggust ekki við að standa undir því. Það var að lokum einn fátækur bókaútgefandi í Chicago, sem gaf bókina út. Það var aldrei höfðað eitt einasta mál út af þessari bók, og voru samt öll voldugustu auðmannafyrirtæki Ameríku rakin þannig sundur og saman, að það var sýnt, að það var þjófnaður og rán, mútur og svindl, sem var grundvöllurinn að þeirra auðsæld. Síðan hefur þessi bók í 50 ár verið gefin út sem klassísk bók um, hvernig auðvald Ameríku er til orðið.

Það var auðséð hér, að á árunum 1951–52 og þar á eftir var það mórall þessa auðvalds, sem átti að innleiða hér á Íslandi. Eins og járnbrautunum hafði verið — og öðrum slíkum fyrirtækjum — smám saman náð í eign einstakra auðhringa þar í Ameríku eins átti að byrja að fara að hér á Íslandi, og það er þetta, sem þarf að hindra. Eins og sú ríkisstj., sem hafði með sementsverksmiðjumálið að gera og lá undir þeim þrýstingi að gera það að einkafyrirtæki og taka það úr eign ríkisins, — eins og hún stóðst þá freistingu, eins á Alþingi nú að sjá til þess, að það leiki ekki lengur neinn efi á um, hver sé eigandi Áburðarverksmiðju ríkisins, og þetta er nú orðið brýnt mál, vegna þess að mér er ekki grunlaust um, að í því mati, sem fram hefur farið í sambandi við stóreignaskattinn og hans álagningu, hafi hlutabréf einstaklinga, sem eiga í þessu rekstrarfélagi áburðarverksmiðjunnar, verið metin á sjöföldu verði, m.ö.o.: 4 millj. kr. eign í því hlutafélagi hafi verið metin upp undir 30 millj. kr. Ég er ekki alveg viss í þessu. Ég hef áður komið með fsp. um þetta hér, en ekki getað fengið fullkomnar upplýsingar. En sé svo, þá liggur þetta mál þannig fyrir, að viðkomandi skattayfirvöld eru farin að líta á hlutabréf þessara aðila, sem eiga í þessu rekstrarhlutafélagi, sem gefandi þeim hlutdeild í áburðarverksmiðjunni sjálfri.

M.ö.o.: ef við látum það lengi viðgangast, að menn fari að borga t.d. stóreignaskatt grundvallaðan á svona mati, þá er hætta á ferðum. Þá fara rangar yfirlýsingar framsóknarráðherranna að öðlast það gildi, sem ég var að vara við og mótmæla, þegar þær fyrst voru gefnar hér í þessari hv. d. Og þá fara þeirra orð að verða ríkinu nokkuð dýr. Ég held þess vegna, að það séu síðustu forvöð að fara að taka í taumana og fara að skera alveg úr um það, að þetta sé eins og 3. gr. mælir fyrir, ótvíræð eign ríkisins. Ég er ekki þar með að eiga við að svipta þá aðila, sem hafa lagt fram á sínum tíma þessar 4 millj. kr. í þetta, eðlilegri eign og verðmæti þess fjár, sem þeir þá lögðu fram. Þess vegna geri ég ráð fyrir því í 3. gr. þessa frv., að þeim séu ekki greiddir aðeins 6% vextir, sem þeir geta fengið af því fé, heldur, sem ekki er óeðlilegt sökum þeirrar verðbólgu, sem fram hefur farið síðan, að hæstv. ríkisstj. sé leyfilegt með samþykki sérstakrar þingnefndar, er tilnefnd sé, að greiða þeim hærra verð til þess að fá þessi bréf nú þegar frá þeim, og það er að mínu áliti nauðsynlegt, að það sé gert nú á þessu þingi. Ég held, að það sé hættulegt, ef það dregst lengur.

Ég vil taka það fram mínu máli til stuðnings og þessu frv. í fyrsta lagi, að ég styðst við lögin sjálf, 3. gr. þeirra. Í öðru lagi vil ég minna hv. þd. á, að þegar kosið var í stjórn áburðarverksmiðjunnar 1955, þá varð nokkur umræða um það, hvort Vilhjálmur Þór bankastjóri, sem þá var bankastjóri Landsbankans og samkv. lögum hans má ekki taka þátt í stjórn atvinnufyrirtækis, mætti vera í stjórn þess fyrirtækis. Það var nokkuð deilt um þetta, og forseti sameinaðs Alþingis, sem þá var Jörundur Brynjólfsson, kvað upp úrskurð, þar sem hann með svo hljóðandi orðum — með leyfi hæstv. forseta — tók af tvímæli af sinni hálfu, — hann sagði í úrskurðinum:

„Hér er um að ræða kjör af hálfu Alþingis til stjórnarstarfa í þessu fyrirtæki, áburðarverksmiðju ríkisins, og umboð þeirra manna, er Alþingi kýs, er veitt af hálfu Alþingis, þess opinbera, til þess að ráða af sinni hálfu þessari stofnun og á því ekki skylt við einkaatvinnufyrirtæki, heldur er það fyrst og fremst til að ráða þessu opinbera fyrirtæki ríkisins, sem Alþingi með kosningu veitir umboð þeim mönnum, sem til þess eru kjörnir.“

Á þeim grundvelli leyfir forseti sameinaðs Alþingis, að þessi maður, sem þá var bankastjóri Landsbankans, sé kosinn í stjórn þessa fyrirtækis, að þetta sé einvörðungu ríkisfyrirtæki.

Að öðru leyti er rétt að taka það fram, að strax í fyrsta skipti, sem ég flutti þetta frv., nokkurn veginn eins og það nú liggur fyrir á þskj. 13, eftir að þessar yfirlýsingar fóru að koma fram, þá lýsti sá maður, sem var forsrh. vorið 1949, þegar lögin um áburðarverksmiðjuna upphaflega voru samþykkt, Stefán Jóh. Stefánsson, því yfir sem alveg ótvíræðu, að áburðarverksmiðjan væri öll eign ríkisins og hlutafélagið aðeins rekstrarfélag. Hann er nú, eins og hv. þd. veit, okkar sendiherra í Kaupmannahöfn, lögfræðingur og forsrh. og ráðh. um alllangt skeið. Sömu afstöðu tók, þegar þetta mál fór til fjhn., núv. herra forseti Íslands, Ásgeir Ásgeirsson, sem þá var fulltrúi Alþfl. í fjhn. og leit alveg sömu augum á. Alþfl. hefur allan tímann, sem þetta mál hefur verið til meðferðar í þinginu, tekið þá sömu afstöðu og fram kemur í þessu frv. hjá mér um eignarheimildina, og þeir fulltrúar, sem Sjálfstfl. hefur átt í ríkisstj., bæði núv. hæstv. landbrh. og núv. hæstv. forseti þessarar hv. d., hafa ætíð tekið þá afstöðu, að þetta væri mál, sem sjálfsagt væri að athuga mjög gaumgæfilega, og aldrei tekið afstöðu gegn því. Hins vegar hefur málið enn sem komið er aldrei fengizt út úr fjhn. Nú má þetta ekki dragast lengur. Nú verður að taka ákvörðun um þetta mál, taka af öll tvímæli í því. Þess vegna hef ég nú flutt þetta mál nú þegar í upphafi þessa þings, og ég vil leyfa mér að vona, að þegar því nú verður vísað til hv. fjhn., eins og ég legg til, þá mæti þetta mál þeim skilningi í þeirri hv. n. og hér í d., að það orki ekki lengur tvímælis, að áburðarverksmiðjan sé ótvíræð eign ríkisins, og um það mál verði ekki hægt að deila seinna meir og við þurfum ekki að standa í neinum dýrum málaferlum út af slíku og því síður að eiga á hættu að missa þetta fyrirtæki úr eign ríkisins.

Ég vil svo leyfa mér að óska, herra forseti, að þessu máli verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og fjhn.