26.11.1959
Neðri deild: 3. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 29 í C-deild Alþingistíðinda. (2148)
13. mál, áburðarverksmiðja
Forsrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Ég ætla ekki á þessu stigi málsins að ræða efnishlið þess frv., sem hér er til umr. En mér finnst tæplega, að ég geti látið ómótmælt þeim köpuryrðum, sem hv. flm. viðhafði hér í garð síns gamla og nána vinar, dr. Benjamíns Eiríkssonar bankastjóra. Þessi merki maður, einn lærðasti hagfræðingur þjóðarinnar, mjög vammlaus í einu og öllu og eins og ég segi, hámenntaður, hann á ekki skilið á Alþingi slíkan dóm sem hann fékk hér, og ég vil ekki, að hann standi í þingtíðindunum alveg ómótmælt. Ég heyrði þó ekki annað honum til miska sagt í raun og veru heldur en að hann hefði átt þátt í því að misþyrma almenningi í þessu landi vegna gengisfellingarinnar, sem varð 1950. Það er rétt, að dr. Benjamín Eiríksson vann þá mjög merkilegt starf í þágu ríkisstj. ásamt prófessor Ólafi Björnssyni um undirbúning þess máls. En einn af stuðningsmönnum vinstri stjórnarinnar, enda þótt hann hafi að sönnu sinn skjöld tiltölulega hreinan persónulega, má ekki mótmælalaust telja þetta næga orsök til að bera mann svo þungum sökum, ekki sízt úr því að hann undi því, að hans flokkur átti þátt í miklu stórvægilegri gengisfellingu en við þó framkvæmdum þá.
Sem sagt, mitt erindi var þetta og ekkert nema þetta. Ég tel, að málið, sem hann talaði um, ef ég mætti strika út úr ræðunni kaflann um Morgan, sem mér fannst ekki koma þessu svo mjög mikið við, ég tel það mál vera þess virði, að það sé athugað nú sem fyrr, en skal ekki taka afstöðu til þess í dag, enda ekki þörf á því.