05.12.1959
Neðri deild: 13. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 90 í C-deild Alþingistíðinda. (2187)
37. mál, verð landbúnaðarafurða
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Það er nú nokkurn veginn auðséð á því, hvernig hagað er vinnubrögðum hér á hv. Alþingi, að stjórnin og sá meiri hluti, sem hana styður, er ráðinn í því að berja fram þá óhæfu að senda Alþingi heim og það, þótt sýnt hafi verið fram á það með alveg óhrekjanlegum rökum, að slíkt er brot á öllum þingræðisvenjum og frekleg móðgun við Alþ.
Ég ætla ekki að fara að endurtaka hér utan dagskrár allar þær ástæður, sem færðar hafa verið fyrir þessari skoðun. sem ég nú hef látið í ljós, enda á enn eftir að verða útvarpsumræða um það mál. En vegna þess, hvernig þetta horfir, vil ég beina einni ósk til hæstv. forseta þessarar d., og hún er sú, að hann taki nú á dagskrá í dag bráðabirgðalögin, sem nú loks hafa verið lögð fyrir þessa hv. d. Við í stjórn þingflokks framsóknarmanna höfum ritað hæstv. forsetum Alþingis og farið fram á það við þá, að þeir sæju um, að þingfrestun ætti sér ekki stað, fyrr en þetta mál hefði fengið endanlega afgreiðslu í þinginu, annaðhvort verið fellt eða endanlega samþ., ef það ótrúlega kæmi fyrir, að þingvilji væri fyrir þessu máli. Í framhaldi af þessu bréfi vil ég fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann taki nú þetta mál fyrir í dag, því að það má engan tíma missa, að því er virðist eins og nú horfir um það kapp, sem á það er lagt að reka þingið heim. Og ég vil einnig benda hæstv. ríkisstj. á, að það er mjög þýðingarmikið ekki síður fyrir ríkisstj., að endanleg afgreiðsla fáist á þessu máli, afurðamálinu, einmitt áður en kæmi til mála að fresta þinginu. Ég vil því mjög eindregið skora á hæstv. forseta að taka þetta mál fyrir nú þegar í dag. (Forseti: Áskorun hv. þm. verður tekin til athugunar.)