05.12.1959
Neðri deild: 13. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 90 í C-deild Alþingistíðinda. (2188)

37. mál, verð landbúnaðarafurða

forseti (BGr):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt til forseta d. í dag:

„Við undirritaðir alþm. leyfum okkur hér með, með skírskotun til 43. gr. þingskapa, að fara þess á leit við hæstv. forseta neðri deildar, að tekið verði til 1. umr. á þessum fundi deildarinnar frv. til laga um verðlag landbúnaðarafurða.

Skúli Guðmundsson,

Gísli Guðmundsson,

Þórarinn Þórarinsson,

Garðar Halldórsson,

Jón Skaftason,

Eysteinn Jónsson.“

Samkv. umræddri 43. gr. þingskapa verður þessi beiðni sex deildarmanna borin undir d. og þarf 34 atkv., til þess að málið verði tekið á dagskrá.