07.12.1959
Neðri deild: 15. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 95 í C-deild Alþingistíðinda. (2197)

37. mál, verð landbúnaðarafurða

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Hv. 1. þm. Austf. varpaði hér fram tveimur fyrirspurnum til mín og óskaði eftir að fá þeim svarað.

Hann sagði áðan, að það liti svo út, að ríkisstj. ætlaði að gera ráðstafanir í þinghléinu, sem hún ekki þyrfti að standa reikningsskap af. En ég vil minna hv. þm. á það, að Alþingi kemur væntanlega saman 28. jan. n.k., eða ekki síðar en þá, og það er vitanlega óhjákvæmilegt, að ríkisstj. þarf að standa Alþingi reikningsskap af því, sem hún gerir í þinghléinu, eins og í annan tíma, og eru svona orð hjá hv. þm., svo vanur sem hann er í ríkisstj. og á Alþingi, alveg sérstök í sinni röð.

Það er einnig dálítið sérstætt, að sá maður, sem hefur verið ráðherra um áratugaskeið, skuli láta sér detta í hug, að ein ríkisstj. afsali sér réttinum til þess að gefa út brbl. í þinghléi, sem stendur hátt á annan mánuð. Vitanlega getur alltaf komið eitthvað það upp á slíkum tíma, sem skapar nauðsyn til þess að gefa út brbl., ef ekki landbúnaðarmálin, þá einhver önnur mál. Það er þess vegna dálítið skrýtið, að hv. þm., svo reyndur sem hann er, skuli koma með slíkar fyrirspurnir sem þessar. Og mundi hann sem ráðherra nokkurn tíma hafa mælt með því, ef þinghlé ætti að vera hátt á annan mánuð, að sú ríkisstj., sem hann átti sæti í, afsalaði sér réttinum um það að gefa út brbl., hvað sem fyrir kynni að koma á tímabilinu, sem þinghléið stendur yfir? Ég hygg ekki.

Hv. 3. þm. Reykv. flutti hér rökstudda dagskrá við það frv., sem hér er um að ræða, og dagskrá þessi er að ýmsu leyti þannig, að segja má, að hún gangi mjög í rétta átt. Ég tel eigi að síður ekki rétt að samþykkja fram komna dagskrá, þar sem kunnugt er, að Stéttarsamband bænda og framleiðsluráð landbúnaðarins annars vegar og fulltrúar neytenda hins vegar eru að ræða þessi mál sín á milli. Það verður þess vegna að telja það óeðlilegt á þessu stigi málsins, að Alþingi grípi fram fyrir hendurnar á þeim og geri ákveðna samþykkt í þessu máli. Ég held, að það gæti orðið til þess að torvelda það samkomulag, sem nú er verið að gera, sérstaklega ef annar aðili teldi, að á sig væri gengið með því, að Alþingi samþykkti fram komna dagskrá.

Ég veit, að það hefur ekki vakað fyrir hv. 3. þm. Reykv. að torvelda það samkomulag, sem nú er verið að vinna að. Hann minntist á það áðan, hvernig lögin um sex manna nefndina urðu til og að enn eru tveir hv. fjhn.-menn í Nd., sem eiga hér sæti nú, sem störfuðu í þessari nefnd 1943. Þá átti ég einnig sæti í fjhn d., og ég er þess minnugur, að menn voru svartsýnir á það, að þetta samkomulag mætti takast. Ef einn af sex mönnum gerði ágreining, þá var allt til einskis unnið, en ef nefndin yrði sammála, þá skyldi það gilda sem lög. Ég tek undir það, sem hv. 3. þm. Reykv. sagði hér áðan, að þetta samkomulag hefur verið mikils virði, bæði fyrir bændur og neytendur. Það hefur stuðlað að því, að þessar stéttir hafa látið fulltrúa sína sitja að samningsborði um það, hver séu réttlát laun bóndans og hvað hann þurfi að fá fyrir afurðirnar til þess að bera svipað úr býtum og vinnandi menn við sambærileg störf. Þetta er ákaflega mikils virði, og það var í fyrsta sinn 1943, sem þessi viðurkenning fékkst. Það er þess vegna mjög áríðandi, að ekki verði eyðilagt það samkomulag og sú undirstaða, sem bæði ég og hv. 3. þm. Reykv. stuðluðum að að leggja 1943 og búið hefur verið að síðan. Ég treysti því og reyndar veit, að hv. 3. þm. Reykv. hefur jafnmikinn áhuga fyrir því og ég, að þetta samstarf megi halda áfram, og ég treysti því, að hann leggi sitt lóð á vogarskálina til þess, að nú verði samkomulag í þeirri deilu, sem verið er að reyna að leysa. Fulltrúar bænda og fulltrúar neytenda halda nú fundi, næsta fund á morgun, og úr því verður skorið í þessari viku, hvort samkomulag næst. Það er öllum til góðs, ef samkomulag tekst, en ég vil segja: öllum til ills, ef það tekst ekki. Hvers vegna skyldi það þá ekki takast, ef þetta liggur ljóst fyrir?

Ég tel, eins og ég áðan sagði, að þetta frv. — eða brbl. réttara sagt — eigi að ganga til 2. umr. og nefndar og það beri að halda áfram að vinna að því samkomulagi, sem nú er verið að leita eftir. Ef það tekst, þá er ég sannfærður um, að bæði neytendur og framleiðendur verða ánægðir og að sú undirstaða, sem lögð var með sex manna nefndinni 1943, stendur þá enn þrátt fyrir það ósamkomulag, sem varð s.l. sumar.