28.11.1959
Efri deild: 4. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 131 í C-deild Alþingistíðinda. (2215)

7. mál, gjaldaviðauki 1960

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Þeim til nokkurrar glöggvunar, sem hlýtt hafa á hina löngu ræðu hv. þm., vil ég skýra frá því, að það frv., sem hér liggur fyrir, er um heimild fyrir ríkisstj. til að innheimta árið 1960 nokkur gjöld með viðauka, þ.e. vitagjald, stimpilgjald, lestagjöld af skipum, skoðanagjöld af skipum og gjald af innlendum tollvörutegundum.

Frv. fjallar um framlengingu fyrir næsta ár á þessum gjöldum, nákvæmlega sams konar framlengingu og samþykkt hefur verið ágreiningslaust af öllum ár eftir ár og þing eftir þing. Ræða hv. þm. var gersamlega út í hött og óviðkomandi þessu máli, því að eins og ég tók fram hér áðan í umr. utan dagskrár, verður að samþykkja þetta frv. og þau frv., sem næst eru hér á dagskránni, nú, hvort sem þingi verður frestað eða ekki.

Það eru tvö meginverkefni, sem liggja fyrir þessu hv. Alþingi nú. Annað er vissar ráðstafanir og aðgerðir í efnahagsmálum þjóðarinnar, og hitt er afgreiðsla fjárlaga. Það er öllum hv. þm. ljóst, einnig þm. stjórnarandstöðunnar, að hvort tveggja þarfnast slíks undirbúnings, að það er ógerningur og óhugsandi að ljúka þessum tveim málaflokkum fyrir áramót. Hins vegar verður, vegna þess að þessi tekjustofnalög falla úr gildi um áramót, að fá þau framlengd nú, eins og um fjölda undanfarinna ára hefur verið gert ágreiningslaust.

Ég skal ekki á þessu stigi fara að ræða þingfrestunina, það mál liggur alls ekki fyrir í þessari hv. deild. Það liggur fyrir till. frá hæstv. forsrh. í sameinuðu Alþingi, sem verður tekin til meðferðar og umræðu nú eftir helgina þar, og þá gefst þingmönnum tækifæri til að ræða það mál, hvort ástæða er til þingfrestunar eða ekki. En ég býst við, að allir þeir, sem hlutdrægnislaust og í fullri alvöru og með ábyrgðartilfinningu íhuga þetta mál, hljóti að komast að þeirri niðurstöðu, að það sé rétt ráðstöfun og eðlileg að hafa þinghlé nú um skeið, til þess að ríkisstj. fái nægan tíma til að undirbúa efnahagsráðstafanir og fjárlög. Við höfum að vísu fordæmi þess, að Alþingi hefur verið haldið hér ekki aðeins vikum, heldur mánuðum saman starfslitlu, meðan ríkisstj. hefur glímt við þessi sömu mál, efnahagsmál. Við höfum fordæmi frá vinstri stjórninni, þar sem jafnvel margir mánuðir liðu, án þess að þingheimur gerði hér í rauninni nokkurn skapaðan hlut annan en bíða eftir því, að ríkisstj. fyndi bjargráð.

Ég verð að segja, að sú reynsla, sem fékkst um málsmeðferð vinstri stjórnarinnar, er með þeim hætti, að sporin hræða. Og ég sé ekki, að nokkur skynsamleg rök mæli með því, að meðan sú vinna og þær athuganir fara fram, sem þarf bæði í efnahagsmálunum og við fjárlagaundirbúninginn og verður vafalaust ekki lokið fyrr en eftir áramót, — ég sé ekki, að nokkur rök mæli með því, að þann tíma sitji Alþingi hér aðgerðalaust, eins og því miður oft hefur komið fyrir áður, en Alþingi og þjóðinni allri til lítillar sæmdar.