28.11.1959
Efri deild: 4. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 153 í C-deild Alþingistíðinda. (2230)

7. mál, gjaldaviðauki 1960

Ásgeir Bjarnason:

Herra forseti. Það er sjálfsagt margt, sem hægt er að hugleiða í sambandi við það frv., sem hér er til umr. Og þegar litið er til baka yfir það ár, sem senn fer að líða, þá mun það verða nokkuð einstakt í sinni röð, þegar tekið er tillit til Alþingis og sögu Alþingis frá upphafi.

Einhver mesta stjórnarskrárbreyting, sem gerð hefur verið hér á landi, hefur verið gerð á þessu ári. Og þegar fyrsta þingið kemur saman, eftir að sú stjórnarskrárbreyting er komin á, þá er svarið til þjóðarinnar þetta, — hæstv. fjmrh. sagði hér í dag, að það væri ekki starfsfriður fyrir Alþingi, og þó er sú kjördæmaskipan og skipan Alþingis komin á, sem hæstv. fjmrh. og hans flokkur og ríkisstjórnarflokkarnir hafa beitt sér fyrir um langt skeið. Það er einkennilegt, að þessir framsýnu menn, þessir framsýnu forustumenn Sjálfstfl. skyldu ekki koma auga á þessa hluti fyrr og reyna þá að koma þeirri skipan á Alþingi, sem var þannig, að hægt væri að hafa starfsfrið fyrir hlutaðeigandi ríkisstjórn. Það er merkilegur hlutur. Og þjóðin, hvers á hún að gjalda? Hvers á hún að gjalda í sambandi við kjördæmaskipunina, og hvers á hún að gjalda hjá núverandi ríkisstj., þegar hún hefur fengið framgengt þessu máli, sem hún hefur talið að væri mikilsvarðandi fyrir jafnrétti þegnanna í þjóðfélaginu? Það er náttúrlega allt í lagi kannske, þó að Alþingi sé sent heim. En ég geri ráð fyrir því, að þjóðin hafi sitt að segja og það geti komið til þess, að ríkisstj. hafi ekki starfsfrið fyrir þjóðinni, ef henni finnst rétti sínum misboðið. Og það er alveg einstakt í þingsögunni, þegar búið er að leggja mörg mál fyrir Alþingi, að þau skuli ekki vera afgr. til nefndar. Það er algengt, að það verður að vísa fjöldamörgum málum til umsagnar ýmissa aðila, og ekki hægt fyrir Alþingi að taka afstöðu til málanna, fyrr en eftir að þessar umsagnir berast. Og ég álít, að það væri mjög mikill ávinningur fyrir Alþingi og starfstíma þess, ef búið væri, áður en þingfrestun fer fram, að vísa málum til n. og senda þau til umsagnar þeirra aðila, sem eðlilegt er að fjalli um málefnin. En slíkt mun ekki verða nú, eftir því sem upplýst er. Og það er líka einsdæmi að taka ekki fjárlagafrv. til 1. umr., áður en þingfrestun fer fram.

En þegar rædd eru fjármál og þótt ekki séu stærri frv. en þau, sem liggja nú fyrir, þá er ástæða til þess að hugleiða ýmislegt, sem sagt hefur verið í þeim kosningum, sem fram hafa farið á þessu ári, varðandi fjármál og fjármálastefnur einstakra stjórnmálaflokka í landinu.

Sjálfstfl, og Alþfl. deildu um það fyrir síðustu kosningar, að hvor um sig hefði stolið stefnuskrá hins. En svo vel vill nú til, að þessir flokkar starfa saman og geta þá innbyrðis rifizt um sín stefnumál. Og ég efast um, að það hafi nokkurn tíma verið boðaðar róttækari aðgerðir í skatta- og efnahagsmálum þjóðarinnar en einmitt hafa verið boðaðar af þessum stjórnmálaflokkum, sem hlut eiga að ríkisstj. nú. Ég efast um það. Þess vegna er meiri ástæða til þess að hugleiða hvert einasta frv., sem varðar skattamál, nú frekar en áður hefur verið, með tilliti til þess boðskapar, sem birtur hefur verið í blöðunum og tilkynntur við komu núverandi hæstv. ríkisstjórnar.

Sjálfstfl. gaf út mikla stefnuskrá fyrir kosningarnar í haust, og Alþfl. virtist í meginatriðum vera þeirri stefnuskrá samþykkur. En þar stendur m.a., með leyfi hæstv. forseta:

„Framleiðslunni verði skapaður starfsgrundvöllur, er geri fært að draga úr og siðar afnema uppbætur og niðurgreiðslur, svo að atvinnurekendur beri sjálfir ábyrgð á rekstri sinum.“

Það er nú hvorki meira né minna um að ræða, ef slíkt skal gera, en að afnema niðurgreiðslur og skatta, sem munu nema á annan milljarð. Ég efast um, að nokkur ríkisstjórn eða nokkur stjórnmálaflokkur hafi fyrir kosningar boðað jafnróttækur aðgerðir í skatta- og efnahagsmálum þjóðarinnar og gert hefur verið þarna. Og það er því rík ástæða til að spyrja, til hvaða úrræða skuli gripið, þegar svo róttækar aðgerðir eiga sér stað.

Enn fremur stendur: „Stefnt verði að raunhæfri gengisskráningu og stöðugu gengi. Byggðir verði upp gjaldeyrisvarasjóðir í landinu, svo að þjóðarbúið verði ekki háð duttlungum erlendra lánveitenda um daglegar neyzluþarfir. Endurskoðun fleiri fram á lögum um skatta, tolla og útsvör með það m.a. fyrir augum að tryggja jafnrétti skattþegnanna og að skattar á eyðslu komi í stað tekjuskatts og útsvara, eftir því sem fært er.“

Það er ekki einungis það, að það skuli eiga að afnema tekjuskatt, heldur er látið í það skina, að það skuli afnema útsvör. Ég fæ ekki séð, hvernig þessu verður fyrir komið, vegna þess að svo misjafnar þarfir og margvíslegar eru hjá hinum einstöku sveitar- og bæjarfélögum í þessu landi, að það er ekki hægt fyrir ríkisvaldið að hafa bein afskipti af þeim hlutum. Og hræddur er ég um það, að einhverjum mundi finnast hann afskiptur í þeim efnum, ef ekki ættu neinir aðrir tekjustofnar að koma til greina fyrir sveitarfélögin en þeir, sem kæmu beint frá ríkinu. Þetta stangast líka allt á, vegna þess að það er í öðru tilfellinu boðað að afnema skatta og útsvör og í hinu tilfellinu er boðað, að það skuli stórhækka ýmiss konar útgjöld hjá því opinbera, eins og tryggingarstarfsemi og annað, sem að því lýtur, þannig að þegar farið er að stúdera þessar stefnuskrár og tilkynningar ríkisstjórnarinnar, þá stangast þar yfirleitt allir hlutir á. Það er því ekki ástæðulaust, þó að menn standi upp og varpi fram ýmsum spurningum, þegar slík stjórn sezt að völdum, sem svo víðtækan og róttækan boðskap hefur, að þess munu einsdæmi.

Það var líka mjög látið í það skína í síðustu kosningum, og það var ekki sízt Alþfl., sem talaði um það á hverjum einasta landsmálafundi, að ég hygg, eða frambjóðendur Alþfl., að hagur ríkissjóðs og hagur útflutningssjóðs væri með svo miklum blóma, að slíks mundu aldrei hafa verið dæmi áður, það væri hreinasta firra að vera að tala um, að þar mundu einhverjar skuldir safnast. eða þurfa að afla nýrra gjalda hjá þjóðinni, vegna þess að stjórnin, sem áður sat, hefði ekki gert sitt til þess að afla tekna fyrir þeim útgjöldum, sem hún hafði sjálf stuðlað að. En það leið ekki langur tími, þar til núv. ríkisstj. var mynduð og þar til boðskapur kom um það, að afla þyrfti verulegra nýrra tekna til þess að rísa undir þeim gjöldum, sem fyrrv. stjórn hafði stuðlað að. Þarna eru því ýmsir hlutir, sem stangast algerlega á, og því ástæða til að hugleiða og fá fram sannleikann í þessum efnum. Sé svo, að það sé svo góður hagur hins opinbera, að ekki sé þörf að afla neinna nýrra tekna eða kannske að framlengja þau gjöld, sem áður hafa verið, þá ættu að koma fram skýr svör og skýr greinargerð fyrir þeim hlutum, svo að ekki sé verið að samþykkja álögur á þjóðina að óþörfu. Þetta er hlutur sem vissulega ber að upplýsa hérna, og hæstv. fjmrh. ætti sannarlega að gefa okkur eins ýtarlega skýrslu og hann getur um fjárhag ríkisins, áður en við förum að samþykkja þær framlengingar á tekjustofnum fyrir ríkið, sem nú liggja fyrir, til þess að ekki sé verið að skattleggja þjóðina að óþörfu, eins og sjálfstæðismenn töluðu um í tíð vinstri stjórnarinnar, án þess þó að þeir kæmu með nokkur úrræði í dýrtíðarmálum, en hins vegar stuðluðu þeir að því, að stjórninni yrði næstum ókleift að fá nokkur lán erlendis og næstum ókleift að starfa sakir þeirrar baráttu, sem sú stjórnarandstaða háði fyrir kauphækkunum í landinu, enda sýndi það sig, að fyrsta úrræði stjórnarinnar var að fá afnumdar þær kauphækkanir, sem hún hafði sjálf barizt fyrir í sinni stjórnarandstöðutíð. Það kemur því úr hörðustu átt, þegar hv. 6. þm. Norðurl. e. (MJ) fer að tala um, að stjórnarandstaðan nú sé einstæð, því að ég efast um, að það hafi nokkurn tíma verið einstæðari stjórnarandstaða uppi hér á landi en Sjálfstfl. var í sinni stjórnarandstöðutíð, því að ég hygg, að það hefðu engir af hans kjósendum og gerhugulli mönnum búizt við jafnmikilli ófyrirleitni í stjórnarandstöðu og sá flokkur viðhafði á sínum tíma.

Þá er það eitt, sem gott væri að fá upplýst hjá hæstv. fjmrh., þegar verið er að ræða um skattamál þjóðarinnar, og getur gerbreytt afstöðu manna til hinna ýmsu skatta og gjalda, sem verið er að leggja á þjóðina, og það er það, hve miklar framkvæmdir núverandi hæstv. ríkisstj. hefur hug á að leggja í og hversu þarfar þær framkvæmdir kunna að vera, því að ég efast ekki um, að sé um þær framkvæmdir að ræða, sem verulega geta bætt hag landsmanna á næstu árum, þá vilji þjóðin gjarnan leggja mikið að sér, til þess að þær komist í framkvæmd, en aftur á móti hið gagnstæða, ef tekjur ríkisins eiga eingöngu að fara til eyðslu og ekki annars. Þetta er hlutur, sem gott væri að fá upplýstan undir þeim umræðum, sem nú eru, og ekki sízt í sambandi við það fyrsta frv., sem er á dagskránni í dag.

Það er líka vitað mál, að sjálfstæðismenn hafa staðið sem veggur gegn því, að skattlagðir væru þeir þegnar þjóðfélagsins, sem öðrum fremur hafa eignazt fé á undanförnum árum, síðan dýrtíðin í landinu fór vaxandi. Það má nú vel vera, að það sé ekki ástæðulaust, að Sjálfstfl. og sjálfstæðismenn séu á móti þessu, vegna þess að þeirra forustumaður, hæstv. forsrh., sagði eitt sinn, að dýrtíðin í landinu jafnaði kjör fólksins og þessa dýrtíð væri hægt að lækna með einu pennastriki. Hæstv. forsrh. hefur haft aðstöðu til að gera sitt pennastrik í dýrtíðarmálum, en ekki tekizt að lækna dýrtíðina. Og þrátt fyrir hækkandi dýrtíð í landinu hefur ekki sannazt spádómur hæstv. forsrh. um það, að kjör fólksins í landinu hafi jafnazt, því að ég hygg, að kjör fólksins í landinu hafi með hækkandi dýrtíð orðið mjög misjöfn. Það virðist því sanngjarnt af vinstri stjórninni að hafa komið á stóreignaskattinum og þar með skattlagt þá aðila í þjóðfélaginu, sem högnuðust öðrum fremur, til þess að lána út til hinna, sem verr eru staddir, til þess að koma yfir sig nauðsynlegu húsnæði, því að ég er þeirrar skoðunar, að Alþingi og þjóðfélagið sem heild eigi að stuðla að því, að sem flestir geti með góðu móti eignazt húsnæði yfir höfuðið. En þetta þótti sjálfstæðismönnum of gott í tíð vinstri stjórnarinnar og hafa notað ýmsar krókaleiðir til þess að koma því í kring, að stóreignaskatturinn, sem á var lagður, kæmi ekki til þeirra nota, sem honum var ætlað í upphafi.

Það er líka alveg einstakt hjá nokkurri ríkisstjórn, eins og fyrrv. ríkisstj. og hennar stuðningsflokki, Sjálfstfl„ sem ef til vill hefur stjórnað ríkisstjórninni meira en hennar eigin flokkur, að þessi stjórn skyldi hugsa sér að leysa dýrtíðarmál þjóðarinnar á kostnað einnar Þetta sýnir fyrst og fremst lítilsvirðingu þessara stjórnmálaflokka á bændastétt landsins, enda einustu stéttar í landinu, bændastéttarinnar. hygg ég, að bændur landsins muni minnugir þessa atviks um langa framtíð. Og það er líka einstæður tvískinnungsháttur Sjálfstfl. í þessu máli, því að hann var með því, að bráðabirgðalögin væru gefin út, og hann var með því, að bændurnir fengju sína lögákveðnu kauphækkun eða afurðaverðshækkun, hann var með hvoru tveggja, og nú er hann kominn í það mikinn vanda, að hann verður að reka þm. heim til þess að forðast að standa frammi fyrir því að þóknast Alþfl. eða að þóknast bændum landsins. Eina ráðið, sem hann sér til þess að standa ekki frammi fyrir þessum vanda, er að senda hið nýkjörna Alþingi heim, það Alþingi, sem kvatt er saman af meira réttlæti en nokkurt Alþingi, sem saman hefur komið, síðan endurreisn Alþingis átti sér stað, að orðan þeirra flokka, sem að ríkisstj. standa. Ég hefði haldið, að hæstv. ríkisstj. og hennar flokkar mundu sannarlega stuðla að því að taka betur á móti þessum þm., sem kjörnir eru á svona réttlátan hátt, heldur en raun ber vitni um. En þarna sést kannske betur en nokkur hlutur annar, hvað þessir flokkar ætla sér í framtíðinni að gera, þegar þeim tekst að fá meiri völd með þjóðinni. Það er að stuðla að meira einræði en nokkru sinni hefur þekkzt, því einræði, sem tíðkazt hefur á meðal hinna kommúnistísku og nazistísku þjóða um heim allan.