30.11.1959
Efri deild: 5. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 164 í C-deild Alþingistíðinda. (2235)

7. mál, gjaldaviðauki 1960

Frsm. meiri hl. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Hv. 3. þm. Norðurl. v. beindi þeirri fyrirspurn til mín á laugardaginn var, að ég upplýsti, hve miklu væri ætlað að þau gjöld næmu, sem ætlunin er að heimilað verði að innheimta samkvæmt þeim frv., sem hér liggja fyrir. Ég skal sízt af öllu ámæla þessum hv. þm. fyrir það, að hann tekur þingmannshlutverk sitt svo miklu alvarlegar en við flestir, sem hér höfum átt sæti á þingi að undanförnu, að hann vill ekki samþykkja skattafrv. nema gera sér grein fyrir því, hve miklar álögur sé verið að leggja á landslýðinn, þó að hitt beri að vísu að upplýsa, að þegar hv. flokksbróðir hans, 1. þm. Austf., lagði þessi sömu frv. fyrir þingið, voru engar upplýsingar um þetta atriði gefnar, og þegar við sjálfstæðismenn vorum í stjórnarandstöðu á síðasta kjörtímabili, þá réttum við upp höndina með þessu frv., bæði í n., sem um þau fjölluðu, og einnig á þingi, án þess að hnýsast nokkuð eftir því, hve miklar upphæðir þarna væri um að ræða. En ég skal fúslega játa það, að ábyrgðartilfinning okkar í stjórnarandstöðunni hefur kannske í þessu efni sem fleirum jafnvel farið úr hófi fram, þó að auðvitað beri stjórnarandstöðu alltaf að vera ábyrg. En ég sneri mér til starfsmanna fjmrn. og bað um þessar upplýsingar. Virtist að vísu svo sem þeim kæmi einkennilega fyrir sjónir þessi óvenjulega hnýsni þingmanna um þessi atriði. Skal ég nú gefa þær upplýsingar, sem ég hef að svo stöddu getað fengið.

Í frv. því, sem hér liggur fyrir, er gert ráð fyrir því, að ríkisstj. sé heimilað á árinu 1960 að innheimta með viðauka eftirtalin gjöld til ríkissjóðs: Í fyrsta lagi er 100% viðauki við vitagjald. Samkv. upplýsingum fjmrn. nam þetta á s.l. ári um 783 þús. kr. Í öðru lagi er 140% viðauki við stimpilgjald, lestagjald og leyfisbréfagjöld. Um þetta segir fjmrn. svo: „Ekki er unnt að upplýsa þá tölu, þar eð heimildin er einungis notuð upp í 100% af afsölum fyrir fasteignum og engin sundurliðun liggur fyrir um skiptingu milli afsala og annarra stimpilskyldra skjala.“ Meiri upplýsingar gat ég því miður ekki fengið um þetta atriði. Þriðja atriðið var 200% viðauki við skipaeftirlitsgjöld, en það var lauslega áætlað árið 1958 143544 krónur. Fjórði og síðasti liðurinn er svo álag á gjald af innlendum tollvörutegundum. Um þetta segir fjmrn.: „Ekki er unnt að upplýsa þá tölu, þar eð álagið er mismunandi eftir vörutegundum og engin sundurliðun til um skiptingu milli einstakra vörutegunda, en eins og frv. ber með sér, er þetta álag mjög mishátt.“ Því miður hefur mér ekki tekizt að fá um þetta fyllri upplýsingar en þær, sem nú greinir. Ég játa, að þær eru ekki fullnægjandi, en ég vænti þess með tilliti til aðstæðna og með tilliti til þess, að þetta mun aldrei hafa verið upplýst áður í sambandi við meðferð Alþ. á þessum málum, að fyrirspyrjandi um þessi atriði geri sig ánægðan með þá úrlausn, sem ég hef getað gefið í þessu efni.